Læknablaðið - 01.06.1954, Síða 15
LÆKNABLAÐIÐ
91
ein og ein kind, af hans völd-
um, en allmargt fé fær liann
og margt er lasburða um tima.
Vírusstofnarnir úr slátui hól-
unni og aðrir, sem fundusí í
dermatitis-skemmdum í sauð-
fé, höguðu sér nákvæmlega
eins, og mjög sérkennilega,
þegar sauðfé var sýkt með
þeim. Ég held þess vegua, að
sláturbóla stafi af sama virus
og „contagious pustular der-
matitis" i sauðfé. Ókunnugt er,
hvort sláturbóla er eini sjúk-
dómurinn, sem þetta vírus
veldur i mannfólki, eða hvort
það t. d. gæti setzt að á slím-
húðum öndunarfæra og valdið
þar einhverjum kvilla.
Kúabóla.
Þetta minnir á annan húð-
kvilla, sem fyrir kemur hér á
landi og vel má minna lækna
á. Þar flytzt smitið öfuga leið
eða frá manni til dýrs. Ég á
hér við kúabólusmitun. Það er
allalgengt, alltof algengt, að
sveitakrakkar, sem hafa verið
bólusettir með kúabólu, sýki
kýrnar heima hjá sér. Þetta
hefur komið fyrir á hverju ári,
sum árin á nokkrum stöðum,
og veldur oft talsverðu tjóni.
Kýr eru mjög næmar fyrir
kúabóluvírusi, og eftir að bóla
er komin út á krökkum, ættu
þau ekki að koma nálægt kúm
eða fjósi. Oftast virðist smit-
unin berast á kýrnar við mjalt-
ir og þær fá þá bólur og sár
á spenana. Kýrnar verða tals-
vert mikið veikar og sumar
ná sér ekki, og komið hefur
fyrir, að orðið hefur að lóga
flestum kúm á bæjum vegna
kúabólu. Ég minnist sjúkdóms,
sem kom upp á bæ í nágrenni
Reykjavíkur fyrir fáeinum ár-
um, þar fengu 10 kýr á bænum
kúabólu og voru sjúkar mest-
allt sumarið. Að lokum varð að
slátra 4 kúnum af 10 og hlauzt
af þessu mikið fjárhagstjón og
óþægindi, auk þess sýktist
bóndinn á bænum, sem hafði
mjólkað kýrnar og annar mað-
ur, sem siðar kom heimilinu
Jtil aðstoðar, tók kúabóluna.
Bóndinn fékk hornhimnubólgu
á annað augað og varð að
liggja alllengi á sjúkrahúsi í
Reykjavík. Okkur tókst að
sanna, að allt voru þetta kúa-
bólusýkingar.
Að ofansögðu er auðsætt, að
það er ekki að ófyrirsynju, er
ég nota þetta tækifæri til að
minna lækna, aðallega lækna
í sveitahéruðum, á að brýna
fyrir fólki, að nýbólusettir
krakkar eru stórhættulegir
kúm og að kýr, sem kunna að
hafa sýkzt af krökkunum eru
aftur hættulegar fyrir þá, sem
þær mjólka og aðra, sem um-
gangast þær.
Psittacosis.
Dýralíf hér á landi er svo
sem kunnugt er næsta fáskrúð-
ugt, villt dýr með heitu blóði
finnast hér naumast nema fugl-
ar. Okkur stafar því yfirleitt