Læknablaðið - 01.06.1954, Side 17
LÆKNABLAÐIÐ
93
Berklar í olnboga - synoviectomia
qtir i3jarna ^óniion.
Sjúkrasaga flutt á fundi L. R. í des 1953.
Berklarnir eru orðnir öðru
vísi en þeir voru, en þið þurf-
ið ekki mig til að segja ykkur
það. Berklahælin eru að tæm-
ast, bæði af því að færri sýkj-
ast og eins af liinu að fleiri
læknast og á skemri tima en
áður var. Þetta á fyrst og
fremst við um lungnaberkla,
sem ætíð hefir verið langstærsti
hópurinn, en berklar í beinum
og liðum hafa lika minnkað
mikið og sennilega að tiltölu
við almenna sýkingu.
Nú eru i Landakotsspítala
tveir sjúklingar með beina-
berkla, annar nýkominn,
drengur kornungur með
berklamein i hrygg. En fyrir
15—20 árum var ýkjulaust
sjöttungur sjúklinga í Landa-
koti með berkla í beinum eða
liðum.
Fram að þessu hefur ein
reitingarinnar, heldur má það
miklu fremur vera snerting
þeirra við innri líffærin, þegar
það fer innan í, sem er vara-
söm. Kunnugt er, að vírusið er
fyrst og fremst í innri líffær-
um, svo sem lifur og milta,
en naumast á fiðri nema þa í
slími, sem runnið hefði úr
líkamsopum og þornað í fiðr-
inu.
Nú mun vera til athugunar,
hvort leyfa skuli fýlungatekju
að nýju hér við land. Hvort
sem það verður gert eða ekki,
má gera ráð fyrir, að íslenzk-
ir læknar rekist öðru hverju
á psittacosis lungnabólgur, sem
borizt hafi frá fýl. 1 sjálfu sér
er ekki ólíklegt, að annar sjó-
fugl hér við land kunni að vera
hættulegur á svipaðan hátt, en
um það vitum við ekkert.
Þessi frásögn mín hefur ver-
ið nokkuð ósamstæð og hún
var gerð það með vilja, þar eð
tilgangurinn var að koma víða
við og rifja upp, hve sundur-
leit og margvísleg viðfangsefni
vírussjúkdómar eru. Langflest-
um vírussjúkdómum er það
sameiginlegt, að leiðir þeirra í
náttúrunni eru krókóttar og að
þær eru okkur enn að miklu
leyti iiuldar. Sjúkdómar þess-
ir hafa þvi mikla þýðingu bæði
í hagnýtu og fræðilegu tilliti.
Hér hefur ekki verið minnzt
á Iiugsanlega þýðingu vírusa
fyrir æxlismyndanir í fólki.
Það mál er alltof umfangsmik-
ið til að ræðast hér. Þá má
nefna, að líkurnar fyrir þvi, að
sum krabbamein eigi sér slík-
an uppruna, fara heldur vax-
andi.