Læknablaðið - 01.07.1954, Blaðsíða 10
104
LÆKNABLAÐIÐ
varir við misfellur í þessum
efnum. Og samkvæmt 40. gr.
framfærslulaganna nr. 80/1947
ber héraðslæknum að líta eftir
því, að vel sé farið með styrk-
þega í umdæmum þeirra, og
þyki þeim misbrestur á og um-
vöndun stoðar elcki, ber þeim
að kæra málið fyrir lögreglu-
stjóra.
Um 2.
Hér er um ýms lagaákvæði
að ræða, sem læknum er að
sjálfsögðu vel kunnugt um, og
ég rek því ekki ýtarlega hér.
Má t.d. benda á ákvæði laganna
um varnir gegn útbreiðslu
næmra sjúkdóma, þar sem
læknum er lögð skylda á herð-
ar um að fylgjast með slíkum
sjúkdómum og tilkynna það
lögregluyfirvöldum, ef þörf
krefur. Og svipuðu máli gegnir
um ákvæði laga um varnir
gegn því, að næmir sjúkdómar
berist til landsins. Svipaðar
skyldur hvíla og á læknum í
sambandi við framkvæmd
berklavarnalaga, þ. e. um til-
kynningar um berklaveikt fólk,
einnig til forráðamanna skól?,
hæla og þ. h., skráning og
skýrslugjöf, um að leita full-
tingis lögx-eglustjóra vegna
rannsókna eða varúðarráð-
stafana í þessum efnum, lil-
kynningar um skipti á dvalar-
staðsjúklinganna o.s.frv. Sama
máli gegnir og um framkvæmd
laga um varnir gegn kynsjúk-
dómum, með skráningarskyldu
s j úklinganna, tilkynningar-
skyldu til heilbrigðisyfirvalda,
einnig til foreldra eða forráða-
manna yngri sjúklinga en 16
ára, um eftirgrennslan eftir
smitberum, um að leita aðsloð-
ar lögreglustjóra, ef sjúklingur
hlýðir ekki settum reglum, svo
og tilkynningar um það, ef
slíkir sjúklingar ætla að ganga
í hjónaband. 1 sambandi við
meðferð holdsveikra sjúkiinga
gilda og svipaðar reglur. Þá ma
og i þessu sambandi benda á
hið almenna ákvæði 7. gr.
læknalaganna frá 1932, þar
segir að læknum sé skylt að
láta hinu opinbera í té vottorð
um sjúklinga, sem þeir haía
eða hafa haft undir höndum,
er slíkra vottorða er krafizt
vegna viðskipta sjúklinganna
við hið opinbera vegna fátæk-
rahjálpar, styrkveitinga, trygg-
inga eða þess háttar. I sain-
bandi við almannatryggingar
kemur þetta t.d. allmjög íil
greina. Þá má og benda á
ákvæði laga um dánarvotíorð
og dánarskýrslur.
Um 3.
Áður en ég rek reglur þær,
sem um þetta efni gilda, vil
ég aðeins drepa lauslega á rök
þau, sem færð eru fyrir laga-
ákvæðum þessum. — Þjóðfé-
lagið veitir þegnunum vernd á
réttindum sínum annarsvegar
með því að setja um þau efnis-