Bændablaðið - 14.11.2013, Side 1
22. tölublað 2013 Fimmtudagur 14. nóvember Blað nr. 407 19. árg. Upplag 31.000
Framleiðsla á svínakjöti hefur
aukist um 5,7% á 12 mánaða
tímabili frá október í fyrra þar til
í október í ár. Útflutningur hefur
aukist umtalsvert undanfarna
mánuði, en eingöngu er um
útflutning á innmat að ræða.
Innflutningur á beinlausu
svínakjöti hingað til lands hefur
aukist verulega undanfarið.
Skilaverð til bænda fyrir
framleiðslu sína hefur nú í haust
lækkað töluvert, en sem dæmi má
nefna að Sláturfélag Suðurlands
hefur lækkað skilaverð um 55
krónur frá því í september.
Erfitt að átta sig á stöðunni
Hörður Harðarson, formaður
Svínaræktarfélags Íslands, segir
erfitt að átta sig nákvæmlega á því
hvað sé að gerast á markaði og þar
geti margir þættir spilað saman.
Aukinn innflutningur á svínakjöti
hafi eflaust áhrif, sem og sala á
öðrum kjöttegundum.
Aukin innanlandsframleiðsla
Samkvæmt yfirliti frá Lands-
samtökum sláturleyfishafa hefur
framleiðsla á svínakjöti aukist um
5,7% á einu ári, á tímabilinu frá því
í október árið 2012 til október 2013.
„Það kom svolítið skot í september
og framleiðslan jókst en svo minnkaði
hún aftur á móti í október miðað við
sama mánuð í fyrra um 4,4,%,“ segir
Hörður.
Mun meira flutt út af innmat
Hann segir athyglisvert að sjá
að útflutningur á innmat hafi
aukist mjög
undanfarið, en
hann nemur um
517 tonnum.
„Það slagar
upp í að vera
m á n a ð a r -
f r a m l e i ð s l a
hjá okkur, hún
var sem dæmi
584 tonn í
október. Þarna
er greinilega
sóknarfæri sem sláturleyfishafar geta
nýtt sér og hafa gert. Við höfum ekki
heimild til að flytja ferskt svínakjöt
inn á Evrópusambandslöndin en
aðrar reglur gilda um innmatinn,“
segir hann. Á einu ári, frá október í
fyrra og þar til í október í ár, hefur
útflutningur aukist um 117%.
Innflutningur aukist verulega
Innflutningur á frosnu svínakjöti,
þ.e. beinlausum vöðvum, hefur aftur
á móti aukist verulega undanfarna
mánuði. Á fyrstu 9 mánuðum þessa
árs nam innflutningur 445 tonnum
en var fyrir sama tímabil í fyrra 217
tonn. Kjötvinnslur nýta kjötið að
hluta til í framleiðslu sína en annað
fer beint á neytendamarkað.
Lækka verð til bænda
Sláturfélag Suðurlands lækkaði
skilaverð til bænda um 35 krónur
á mánudag í þessari viku en hafði
í september lækkað verð um 20
krónur, samtals um 55 krónur.
Hörður segir að þetta sé tæplega
12% lækkun í heild á skilaverði.
„Ég átta mig ekki alveg á þessu
og finnst þessi lækkun alls ekki vera
í samræmi við þær opinberu tölur
sem fyrir liggja, en vissulega hefur
innflutningur aukist verulega,“ segir
hann.
/MÞÞ
Tæplega 6% aukning á svínakjötsframleiðslu hér á landi frá október 2012 til septemberloka 2013:
Innflutningur á frosnu svínakjöti
hefur tvöfaldast á níu mánuðum
– útflutningur á innmat eykst en SS hefur lækkað skilaverð til bænda í tvígang síðan í september, um samtals tæp 12%
Bolungarvík:
Frábærar
viðtökur
Mjólkurvinnslustöðin Arna í
Bolungarvík hefur fengið mjög
góðar viðtökur með framleiðslu-
vörur sínar sem komu á markað
fyrir skömmu. Fyrirtækið sér-
hæfir sig í framleiðslu á hágæða
laktósa fríum mjólkurafurðum sem
framleiðsla hófst á í haust.
Hafa viðtökurnar farið langt
fram úr björtustu vonum eigenda.
Fyrirtækið er til húsa þar sem áður
var rækjuverksmiðjan Bakkavík
og þar áður gamla frystihús Einars
Guðfinnssonar.
Þó að vörurnar séu fyrst og fremst
hugsaðar fyrir einstaklinga sem
finna fyrir óþægindum við neyslu
á venjulegum mjólkurafurðum
segja forsvarsmenn Örnu að þær
henti öllum öðrum líka, bæði þeim
sem kjósi mataræði án laktósa og
auðvitað öðrum sem kunni að meta
vörunrnar.
Forsvarsmenn segja ýmsa
spennandi hluti í deiglunni hjá fyrir-
tækinu, úr laktósafrírri mjólk, eins og
skyrframleiðslu með gamla laginu
og ostagerð. Lesa má nánar um
þetta nýja fyrirtæki í mjólkuriðnaði
á Vestfjörðum á bls. 26 og 27. /HKr.
Hálfdán Óskarsson, mjólkurtæknifræðingur og stöðvarstjóri hjá Örnu (til vinstri á myndinni), er einn af ellefu eigendum í nýrri mjólkurstöð sem komið
er starfsmaður stöðvarinnar. Mynd / HKr.
Hörður Harðarson
Svínakjötsframleiðslan á Íslandi hefur aukist lítillega milli ára. Myndir / TB
18 22
Vinna að hönnun
umhverfisvænna
háspennumastra
30
Hestamannafélagið Léttir
á Akureyri 85 ára
Fánasmiðjan á Ísafirði
– mjög vel tækjum búin og er helst
að kljást við samkeppni frá Kína