Bændablaðið - 14.11.2013, Page 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 201312
Fréttir
Alveg er það forkastanlegt
að fylgjast með kröfugerð og
virðingarleysi forystumanna
Samtaka verslunar og
þjónustu. Andrés Magnússon
framkvæmda stjóri talar
með þeim hætti eins og hann
einn viti betur en færustu
vísindamenn og prófessorar
hvernig sjúkdómar geti borist
milli landa. Honum liggur svo
mikið á í stóra kjötmálinu að
nú ætlar hann að fá burðardýr
til að koma með hrátt kjöt til
Íslands í gegnum tollinn.
Hann talar í fjölmiðlum eins
og það sé forgangsmál hvað sem
það kostar að gefa frelsi til að
flytja hingað hrátt kjöt. Hann
líkir þessu við bjórbannið og talar
eins og málið sé ekki stærra en
að koma með nærbuxur frá Kína.
Hann tók að sér að kæra málið til
Eftirlitsstofnunar EFTA og engum
kom á óvart að svar þeirra væri
að laga yrði lögin að reglum á
Evrópska efnahagssvæðinu. Í
ESB hefur aldrei verið skilningur
fyrir því að ekki mætti banna
frjálsa för á hráu kjöti eða lifandi
dýrum.
Og svo er hitt að sumir
íslenskir embættismenn hálf
skammast sín fyrir að bera þessa
sérstöðu sem hér er til staðar upp
á fundum og í samninganefndum.
Væri nú ekki rétt hjá blessuðum
Andrési að hinkra og fá í hendur
niðurstöðu sem mun liggja fyrir
á fyrrihluta næsta árs. En Stephen
Cobb frá Nýja-Sjálandi hefur
verið ráðinn til að meta áhættu
þess fyrir heilsu manna og dýra
hér á landi ef innflutningur á
hráu kjöti yrði heimilaður til
Íslands. Hversvegna ekki að bíða
niðurstöðu þessa færa manns sem
rekur ráðgjafarfyrirtæki í Nýja-
Sjálandi en þar eru aðstæður ekki
ólíkar og hér og enginn afsláttur
eða áhætta tekin. Ef Andrés bryti
þeirra löggjöf með því að smygla
hráu kjöti til Nýja-Sjálands yrði
refsingin þyngri en fyrir að
smygla eiturlyfjum.
Smitsjúkdómastaða húsdýra
á Íslandi
Það er landfræðileg einangrun
Íslands sem er höfuðástæða þess
að húsdýr hérlendis eru að mestu
laus við mörg þeirra smitefna
sem landlæg eru í húsdýrum
utan Íslands. Innflutningur lifandi
dýra var bannaður hér 1882 eftir
blóðugan niðurskurð þar sem
sauðfjárstofninn nánast var feldur.
Það er talið að smitsjúkdómastaðan
hér sé enn svipuð og við upphaf
Íslandsbyggðar.
Hvernig geta pestir borist til
landsins?
1. Með lifandi dýrum og
erfðaefni þeirra þá eða
sæði.
2. Með fóðri, grunur er um að
salmonella hafi borist með
fóðri.
3. Með fólki, fatnaði, verk-
færum og farartækjum.
4. Með afurðum dýra, þá eða
hráu kjöti, húðum o.fl.
Nú er ekki verið að halda því fram
að erlendur matur sé eitraður en
þær aðstæður verða til að upp
getur blossað sjúkdómur ef
smitefnið kemst í snertingu við
hina hreinu búfjárstofna okkar. Ef
það gerist væri einnig lýðheilsu
ógnað, mannslíf í hættu. Hvað
sem líður orðaflaumi Andrésar
og innflutningsmannanna sem
brúka mjög orðið frelsi, frelsi í
innflutningi búfjár og á hráu kjöti
gæti snúist við og stráfellt dýrin
okkar og kostað slík útgjöld að við
risum ekki undir kostnaðinum.
Frostið drepur sýkla
Við flytjum inn frosið kjöt,
frostið drepur sýkla. Hrein og
ný nærföt má flytja inn hvaðan
sem er, kjötið og lifandi dýr er
allt annað dæmi. Sumir miklir
menn kenna bændum um þessa
hindrun en svo er ekki, hún er
studd rökum færustu manna í
læknisfræði við Háskólann. Þeir
segja að sjúkdómastaða íslenskra
búfjárstofna sé í mörgu tilliti
einstök, og auðlind sem beri að
verja með öllum tiltækum ráðum.
Farðu varlega
Margir kaupmenn skjólstæðingar
Andrésar auglýsa til að upplýsa
viðskiptamenn sína og fullvissa
þá um öryggi vörunnar að í
kjötborði þeirra sé bara íslensk
kjötvara. Farðu varlega Andrés
Magnússon, þú ert ekki alvitur
fremur en ég en við skulum lesa
saman skýrslu Stephen Cobb
þegar hún kemur út.
Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri SAM:
Farðu varlega Andrés
Magnússon
Kokkalandsliðið er í æfingabúðum
á Icelandair-hótelinu á Akureyri
þessa dagana og býr sig undir
Heimsmeistarakeppni kokka-
landsliða sem haldin verður í
Lúxemborg í nóvember á næsta
ári. Þátttaka í keppni sem þessari
krefst mikils undirbúnings og er
því mikilvægt fyrir liðið að koma
saman til að geta einbeitt sér að því
að undirbúa öll þau smáatriði sem
fylgja matargerðinni.
Í Heimsmeistarakeppninni er keppt
í tveimur greinum, annars vegar í að
laga margs konar veislurétti sem eru
sýndir kaldir á sér útbúnu uppstilltu
borði. Það eru mörg handtök við að
búa til allar einingarnar sem settar eru
á kalt borð sem þetta, fingramatur,
forréttir, aðalréttir, eftirréttir og
konfektmolar auk þess sem borðið
er skreytt með stóru sykurlistaverki.
Hinn hluti keppninnar er veislumáltíð
fyrir þriggja rétta matseðil. Þá er
eldað fyrir 110 manns og maturinn
afgreiddur líkt og um veitingastað
væri rað ræða.
Í æfingabúðunum á Akureyri
ætlar kokkalandsliðið að matreiða
og útbúa kalt borð sambærilegt við
það sem verður í keppninni sjálfri að
ári liðnu. Þegar borðið hefur verið
sett upp verða sérstakir dómarar
fengnir til að dæma afraksturinn
samkvæmt alþjóðlegum reglum
matreiðslumeistara.
Kokkalandsliðið æfir á Akureyri
fyrir heimsmeistarakeppni
Í kokkalandsliðinu eru: Hákon Már Örvarsson, faglegur framkvæmdastjóri,
Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri, Bjarni
Siguróli Jakobsson, Axel Clausen, Hrafnkell Sigríðarson, Daníel Cochran,
Garðar Kári Garðarsson, Fannar Vernharðsson, Ylfa Helgadóttir, Hafsteinn
Ólafsson, Arnar Jón Ragnarsson og María Shramko, sem er meistari í
sykurskreytingum.
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!
Eigenda- og ræktendafélag
landnámshænsna (ERL) hélt
aðalfund sinn í Bændahöllinni
laugardaginn 9. nóvember síðast-
liðinn og fagnaði um leið 10 ára
afmæli félagsins. Mæting var með
mesta móti, um 30 manns, og var
Hugi Ármannsson, bóndi á Stóra-
Núpi, kosinn nýr formaður félagsins.
Mikill samhugur ræktenda
Landnámshænan hefur nú öðlast
almenna viðurkenningu hérlendis og
er búin að marka sér sess í Evrópu og
Ameríku einnig. Félagið samþykkti
fyrir tveim árum útlitslýsingu
landnámshænsna byggða á þeim
stofni sem safnað var saman af dr.
Stefáni Aðalsteinssyni og var grunnur
þess stofns sem nú er í ræktun.
Á aðalfundinum var samþykkt
tillaga Óafs Dýrmundssonar um
að stjórn félagsins komi upp
skrá yfir viðurkennda ræktendur
landnámshænsna samkvæmt gildandi
reglum um útlits- og atferliseinkenni.
Það verði gert með þeim hætti að
öllum félögum ERL sem rækta slík
hænsni og
dreifa þeim
verði gefinn
kostur á að
sækja um
skráningu
að undan-
g e n g i n n i
úttekt á
ræktun og
a ð b ú n a ð i
hænsnanna,
sem stjórnin
eða fulltrúar
hennar annast. Með þessu er hægt að
tryggja kaupendum landnámshænsa
að þeir fái unga sem falla að
útlitslýsingunni og það mun einnig
bjóða upp á betra samstarf ræktenda
og gera þeim kleift að styrkja stofna
sína með auðveldari hætti.
Auk skýrslu formanns, Júlíusar
Más Baldurssonar, og hefðbundinna
aðalfundarstarfa voru samþykktar
nokkrar lagabreytingar. Fjárhagur
ERL er góður, umræður um ýmis efni
voru líflegar og fram kom sterkur vilji
félagsmanna til að varðveita sem best
það erfðaefni sem í stofninum býr. Þá
var kynnt á fundinum nýtt tölublað
félagsritsins, „Landnámshænan“, með
fróðlegt og fjölbreytt efni að vanda.
Hugi Ármannsson nýr formaður
Við stjórnarkjör var kosinn nýr
formaður ERL í stað Júlíusar Már
Baldurssonar, sem gaf ekki kost á
sér áfram. Nýr formaður er Hugi
Ármannsson, bóndi á Stóra-Núpi í
Gnúpverjahreppi hinum forna. Auk
hans kom Ása Lísbet Björgvinsdóttir
ritari ný inn í stjórnina en þar situr
einnig Valgerður Auðunsdóttir
gjaldkeri.
Í lok fundar voru fráfarandi
formanni og öðru stjórnarfólki þökkuð
vel unnin störf í þágu félagsins. Þess
má geta að undir liðnum „Önnur mál“
var vikið að erfiðleikum fólks við að
fá að halda fáein hænsni í þéttbýli
og skort á reglum um leyfisveitingu
og aðbúnað. Þó eru fáein dæmi þess
að settar hafi verið slíkar reglur,
til dæmis á Akureyri og Selfossi,
en hanar þykja of hávaðasamir og
verða því þéttbýlishænurnar að vera
án þeirra.
Landnámshænsnafélagið 10 ára:
Hugi Ármannsson kjörinn nýr formaður á aðalfundi
Tillaga samþykkt um að gera skrá yfir viðurkennda ræktendur landnámshænsna
Landsnet byggir nýtt tengivirki
og varaaflstöð í Bolungarvík
Byggingu nýs tengivirkis og vara-
aflstöðvar Landsnets í Bolungar-
vík miðar vel áfram og er stefnt að
því að stöðin verði tekin í notkun
í október 2014. Hún á að tryggja
orkuafhendingu á norðan verðum
Vestfjörðum og tengivirkið leysir af
hólmi núverandi virki í Bolungarvík
sem er á snjóflóðahættusvæði.
Áætlaður heildarkostnaður við
verkefnið er um hálfur annar
milljarður króna.
Verkefnið, sem ber vinnuheitið
Varaafl á Vestfjörðum, er unnið í
samstarfi við Orkubú Vestfjarða,
sem mun einnig hafa aðstöðu í
nýja tengivirkinu fyrir sinn búnað.
Undirbúningur hófst haustið
2012 og eru varaaflsstöðin og
nýja tengivirkið, sem verður áfast
dísilrafstöðvarhúsinu ásamt tveimur
100 rúmmetra olíutönkum, sunnan
þéttbýlisins í Bolungarvík, á lóð nr.
24 við Tjarnarkamb.
Framkvæmdum við jarðvegsvinnu
og grunn hússins lauk fyrr í haust og
er nú unnið að uppslætti. Stefnt er að
því að steypa upp veggi fyrir áramót
og þakplötu sem fyrst á nýju ári þegar
veður leyfir, en byggingu hússins á að
mestu að vera lokið næsta vor. Búið
er að samþykkja tilboð í vélbúnað frá
Attacus Power AB og er gert ráð fyrir
að því að byrjað verði að koma vélum
fyrir í húsinu í byrjun júní. Einnig er
búið að samþykkja tilboð í uppsetn-
ingu rafbúnaðar og mun Orkuvirki
sjá um þá framkvæmd næsta sumar.
Þotan hf. sá um jarðvegs-
framkvæmdir og ÍAV annast bygginga-
framkvæmdir. Fullnaðarfrágangi
utanhúss á að vera lokið 1. júlí og
gangsetning varaaflsstöðvarinnar er
áætluð í október 2014.
Samhliða byggingu vara afl-
stöðvarinnar og tengivirkisins er unnið
að breytingum á Bolungarvíkurlínum
1 og 2 og hefur verið samið við
Gámaþjónustu Vestfjaðra um að
Unnið að undirstöðum nýju vara-