Bændablaðið - 14.11.2013, Síða 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 2013 13
Sjáðu kosti tilboðsins og tryggðu þér hagstætt verð og afhendingu í tæka tíð:
✔ 15% afsláttur af verðlistaverði ef pantað er fyrir 5. janúar 2014
✔ Vélin er af árgerð 2014
✔ Kaupandi staðfestir pöntun sína með undirskrift og bindur því ekki
lausafé frá rekstri marga mánuði fram í tímann
✔ Kaupandi gengur frá greiðslu við afhendingu og getur því skipulagt
vélakaup fram í tímann
✔ Verksmiðjuábyrgð gildir til 2015
✔ Kaupandi fær þá vél sem honum hentar en ekki vél sem orðið hefur
útundan í sölu sumarið 2013
Hverri seldri vél fylgir
taska og THERMOS
hitabrúsi.
Á R A M Ó TAT I L B O Ð
FR
U
M
-
w
w
w
.f
ru
m
.is
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Óseyri 2 603 Akureyri
VERKIN TALA
Ég keypti tvær Kuhn vélar af Vélfangi í fyrra, sláttu vél af
gerð inni GMD 350 og fjöl fætlu af
gerðinni GF 642. Í stuttu máli eru
báðar þesar vélar að fara langt
fram úr mínum von um, þær skila
sínu verki 100%.
Ég mæli hiklaust með KUHN!
Sverrir Guðmundsson
Hvammi Norðurárdal,
311 Borgarnes
Ég keypti KUHN GA 7501 hjá Vélfangi síðastliðið vor. Vélin er „tær“ snilld,
það er sama hvort túnið sé óslétt, jafnvel
illfært eða vel slétt, alltaf skilar vélin
fullkomnum rakstri. Og þetta tveggja
stjörnu „flykki“ er lipur eins og dansmær.
Svo er það sér kapítuli hversu auðveldara
er að inn mata rúllu bindi vélar úr múgum
eftir svona vélar.
Skúli Sigurbjartsson
Sólbakka, 531 Hvammstanga
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 28. nóvember
Starfsmenn Gömlu gróðrar-
stöðvarinnar hafa gaman af því
að fylgjast með vexti trjáa og
hafa undanfarin ár mælt nokkur
tré í görðum á Akureyri. Á dög-
unum var mæld Alaskaösp við
Oddeyrargötu sem mæld hafði
verði árið 1999 og var hún þá 19
metrar að hæð.
Nokkrum árum síðar, árið 2005,
mældist hún 21,5 metrar að hæð og
nú fyrr í haust var aftur farið af stað
til mælinga og reyndist öspin þá hafa
náð 24,5 metra hæð. Starfsmenn
Norðurlandsskóga telja að umrædd
ösp sé sú hæsta á Norðurlandi og
jafnvel þótt víðar væri leitað.
Hæsta öspin á
Norðurlandi
Alaskaösp við Oddeyrargötu er 24,5
metrar að hæð.
Landgræðslan og Umhverfis-
stofnun hlutu á árinu rúmlega
tveggja milljóna króna styrk úr
Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða til að bæta aðgengi ferða-
manna í Dimmuborgum. Talið er
að yfir 200.000 manns heimsæki
Borgirnar árlega. Augljóst er að
slíkur fjöldi ferðamanna veldur
miklu álagi á göngustíga þar og
viðkvæman gróður. Þetta kemur
fram á vef Land græðsl unnar.
Tekin var
á k v ö r ð u n
um að nota
styrk inn til
að malbika
göngu stíginn
frá að komunni
í Borg irnar og
inn á Hallar-
flöt en til
gamans má geta þess að þar er sæti
jóla sveinanna, sem fara nú brátt
að láta sjá sig í Dimmuborgum.
Snjóbræðslu kerfi var sett í hluta
stígsins, ekki síst til að bæta aðgengi
fatlaðra og auka öryggi ferða manna
almennt.
Fleiri stígar malbikaðir síðar
Fyrirtækið Kraftfag ehf. var ráðið
til verksins og þótti starfsmönnum
þess mikið til koma að vinna í slíku
umhverfi. Á næstu árum er stefnt er
að því að malbika fleiri göngustíga í
Dimmuborgum og bæta merkingar.
Einnig þarf að bæta aðstöðu fyrir
farartæki með því að malbika og
merkja bílastæði. Framgangur þeirra
mála ræðst síðan af því hvernig gengur
að tryggja fjármagn til verksins.
Dimmuborgir:
Malbikaðir stígar
bæta aðgengi
Styrkur sem fékkst úr Framkvæmda-
sjóði ferðamannastaða var notaður
til að bæta aðgengi ferðamanna í
Dimmuborgum.
Myndir / Landgræðslan