Læknablaðið - 01.05.1958, Side 12
34
iÆKNABLAÐIli
MeSal annarra þjóða hefur
þetta vandamál einnig borið á
góma og leitt til þess, að gerðir
hafa verið útreikningar til sam-
anburðar á tekjum (ævitekjum)
lækna og annarra stétta. Sér-
stök ástæða er til að benda á
útreikninga, sem framkvæmdir
voru í Svíþjóð á árunum 1939
—44 og 1950. Þessum reikning-
um var hagað þannig, að gerður
var samanburður á kjörum
sporvagnsstjóra og lækna. —
Nettótekjur sporvagnsstjórans
frá 16 ára aldri voru lagðar til
grundvallar, og reikningunum
hagað þannig, að læknirinn
hefði sömu fjárhæð árlega til
neyzlu allt frá 16 ára aldri.
Söfnuðust þá fyrir skuldir á
námsárum læknisins allt til þrí-
tugs. Þessar skuldir þurfti að
sjálfsögðu að endurgreiða á síð-
ari liluta ævinnar. Niðurstaða
þessa samanburðar varð, að
læknir þurfti að hafa þrefalt
hærri árslaun en sporvagns-
stjórinn þann tíma ævinnar,
sem hann aflaði tekna, til að
geta staðið í skilum við skulda-
greiðslur og liaft árlega jafn-
mikið fé til eigin umráða og
sporvagnsstjórinn. Kom þetta
mönnum, sem ekki þekktu vel
til, mjög á óvart. Síðar lét eitt
af stórhlöðum Stokkhólms end-
urtaka útreikninga á svipaðan
hátt. Kom þá í ljós, að læknar
þurftu að hafa um 180% hærri
tekjur en sporvagnsstjórar frá
35 ára aldri, til að háðir hefðu
sömu ævitekjur. En ef tekið var
tillit til kostnaðar praktiserandi
lækna vegna lækningastofu
o. þ. h., þurftu tekjur að vera
300% hærri en sporvagnsstjór-
ans. Síðan þessir útreikningar
voru gerðir hafa kjör sænskra
lækna batnað mikið og var að
sjálfsögðu höfð hliðsjón af þess-
um útreikningum við kjarahæt-
urnar.
í des. 1955 stóðu fyrir dvrum
sanmingar um kjör kandidata
og lagfæringar á kjörum ann-
arra spitalalækna og sjúkra-
samlagslækna í Revkjavík.
Lét þá stjórn L. R. gera
liagfræðilega útreikninga og
samanburð á ævitekjum fast-
launalækna annars vegar og
lögregluþjóna og barnakennara
hins vegar. Flestir læknar liöfðu
gert sér ljóst, að ævitekjur
þeirra voru minna virði en ým-
issa annarrra stétta. Fáa mun
liins vegar liafa órað fyrir, að
sá munur væri eins mikill og
útreikningarnir leiddu i ljós.
Stjórn L.R. taldi rétt og nauð-
synlegt, að öllum læknum væri
gefinn kostur á að kynna sér út-
reikningana og niðurstöður
þeirra. Til nánari skýringar
fara hér á eftir bréfaskipti
stjórnar L.R. og Guðjóns Han-
sens, tryggingafræðings, sem
annaðist útreikningana.
20. des. 1955.
Hr. tryggingafræðingur
Guðjón Hansen.