Læknablaðið - 01.05.1958, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
35
Stjórn Læknafélags Reykja-
víkur hefur ákveðið aS láta gera
samanburS á ævitekjum lækna
og annarra stétta, sem ekki hafa
aS baki langa sérmenntun. Taka
skal tillit til allra þeirra atriSa,
sem telja má meS vissu, aS liafi
áhrif á ævitekjurnar. Stjórnin
hefur komiS sér saman um aS
leita til yðar hr. tryggingafræS-
ingur, GuSjón Hansen, um
nauSsynlega útreikninga og
tryggingafræSilegar leiSbein-
ingar.
Til þess aS ekki þurfi aS taka
tillit til atvinnuöryggis og ým-
issa annarra óákveSinna atriSa,
sem erfitt er aS meta til fjár,
mætti bera fastlaunaSa lækna
saman við aðra fastlaunamenn,
sem aSeins hafa aS baki stutt
undirbúningsnám, t. d. barna-
kennara eSa lögregluþjóna.
Námsferill lækna sé reiknað-
ur frá 16 ára aldri, 4 ár í
menntaskóla með 3 mánaða
sumarleyfi, sem nota mætti til
vinnu (laun skv. XIV. fl. fyrri
tvö árin og skv. XIII. flokki síð-
ari tvö árin). Námsbókakostn-
aður reiknast 300,00 kr. á ári.
Sjö ár í háskóla með tveggja
mánaða sumarvinnu að jafnaði
(laun skv. XIII. flokki í 5 ár
og skv. VIII. flokki í 2 ár).
Námsbókakostnaður reiknast
700,00 kr. á ári í 6 ár. Hefst þá
kandidatsár, sem er launað nú
með 4.178,00 kr. á mán. fyrir
ca. 400 klst. vinnu. AS kandi-
datsárinu loknu geta læknar
liafið sjálfstæð störf eða snúið
sér að sérfræðinámi, sem tekur
a. m. k. 3 ár. Það er vel í lagt
að reikna með því að lielming-
inn af þeim tíma geti læknar
liaft laun skv. VII. flokki, en
engin laun liinn helminginn af
tímanum, sem sérnámið tekur.
Að sérnáminu afloknu má gera
ráð fyrir, að læknar starfi sem
2. aðstoðarlæknar í a. m. k. 2
ár (laun skv. VII. flokki) og
síðan 1. aðstoðarlæknar (deild-
arlæknir) í 17 ár (laun skv. V.
flokki) og yfirlæknir i 15 ár
(til 65 ára aldurs) laun skv. IV.
fl).
Til samanburðar skal taka
menn, sem enga sérstaka und-
irbúningsmenntun hafa og byrj-
uðu störf 16 ára, launaðir skv.
XIV. fl. í 2 ár, skv. XIII. flokki
i 3 ár og síðan sem lögreglu-
þjónar í X. flokki í 30 ár og
varðstjórar í 14 ár í VIII. fl. (til
65 ára). Menn með stutt undir-
húningsnám, barnakennarar,
sem hafa stundað 4 ára kenn-
araskólanám með 3 mán. sum-
arvinnu á sama hátt og mennta-
skólanemendur. Starfi að barna-
kennslu skv. IX. fl. í 35 ár og
sem skólastjórar í 10 ár (til 65
ára aldurs) og taki þá laun skv.
VIII. fl. Reiknað sé með 3 mán.
sumarvinnu skv. XIII. launa-
flokki í viðbót við árslaun kenn-
aranna.
Reiknað skal með að tekjum
sé safnað og tekið tillit til vaxta
og skatta eins og þeir eru hjá