Læknablaðið - 01.05.1958, Síða 29
L Æ KNABLAfilD
47
semi og sjálfsafneitun um náms-
tímann og óhæfilega mikilli
aukavinnu á starfsárunujn.
Slík aukavinna rýrir starfsná-
kvænmi og getur orðið þess
valdandi, einkum þegar til
lengdar lætur, að þjónustan
verði ekki eins góð og læknar
sjálfir og almenningur hljóta að
krefjast. Þrátt fyrir þetta munu
læknar ekki ná þeim ævitekj-
um, sem þarf til þess að jöfn-
uður geti orðið við aðrar stéttir.
Ástæða er til að vekja athvgli
á því atriði í skýrslu Guðjóns
Hansen, að verðmæti tekna, sem
aflað er fvrri hluta ævinnar, er
meira en þeirra, sem aflað er
síðari hluta hennar.
-— ---•-------
Frá læknum
Gunnlaugur Snædal hefur hinn 6.
maí 1958 fengið leyfi til þess að
mega starfa sem sérfræðingur í
kvensjúkdómum og fæðingarhjálp.
Hann var ráðinn aðstoðarlæknir við
handlæknisdeild Landspítalans frá
1. jan. 1958.
Jóhannes Ólafsson, cand. med.,
hefur hinn 6. mai 1958 fengið leyfi
til að mega stunda almennar lækn-
ingar hér á landi. Jóhannes dvelur
nú erlendis við framhaldsnám.
Björn Önundarson, cand. med.,
var settur héraðslæknir í Flateyjar-
héraði frá 1. júlí 1958 að telja.
Jón GuSgeirsson, cand. med., hef-
ur verið settur héraðslæknir í Kópa-
skershéraði frá 1. ágúst 1958.
Daníel Daníelsson, cand. med., var
ráðinn aðstoðariæknir héraðslækn-
isins í Borgarneshéraði frá 1. júlí
til septemberloka 1958.
Jósef Ólafsson, cand. med., var
settur staðgöngumaður héraðslækn-
isins í Patreksfjarðarhéraði frá 2.
júlí 1958 og þar til öðruvísi yrði
ákveðið.
Per Lingaas, cand. med., var af
heilbrigðismálaráðuneytinu ráðinn
aðstoðarlæknir héraðslæknisins í
Hvammstangahéraði frá 1. júlí 1958
og þar til öðruvísi yrði ákveðið.
Guörún Jónsdóttir, cand. med. &
chir., hefur hinn 2. júlí 1958 fengið
leyfi til að stunda almennar lækn-
ingar hér á landi.
Einar Helgason, cand. med. &
chir., hefur hinn 2. júlí fengið leyfi
til þess að stunda almennar lækn-
ingar hér á landi.
Magnús Ásmundsson, cand. med.
& chir., hefur hinn 11. júlí 1958 feng-
ið leyfi til þess að mega stunda
almennar lækningar hér á landi.
13. Alþjóðaráðstefna um at-
vinnusjúkdóma og heilsuvernd
á vinnustöðum,
(13. International Congress on
Occupational Healtli)
verður haldin í New York borg
í júlímánuði 1960.
Á ráðstefnunni verður aðallega
fjallað um, hvernig komið verði I
veg fyrir atvinnuslys og atvinnu-
sjúkdóma. Þátttakendur frá mörg-
um löndum munu skýra frá eigin
reynslu og rannsóknum bæði á sjúk-
lingum og í rannsóknastofum.