Læknablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 62
36
LÆKNABLAÐIÐ
verið nefnd liræðsluviðbrögð.
Nákvæmlega sams konar
vöðvasamdráttur á sér stað við
innspýtingu af örlitlu ACH-
magni.
Rannsóknir á ofdrykkju-
mönnum liafa sýnt, að brevti-
' legt liugarástand og tilfinn-
ingablæbrigði auka ýmsa vaka
í blóðinu (12), og eittlivað svip-
að gildir um taugaveiklaða og
geðsjúka menn (13). Þessi
aukning blóðvaka á sér einnig
stað við ýmis geðbrigði heil-
brigðra manna, en er þó tölu-
vert minni.
Rannsóknir þessar leiddu i
ljós aukningu blóðvaka og efna
líkum ACH, epinephrins eða
adrenalins og norepinephrins,
samfara kvíða, spennu eða
hugaræsingu, og í hefnigirnis-
og gremjuástandi.
Hugarástand sjúklinganna
var rannsakað og mælt með
sálfræðilegum prófum, og eft-
ir því sem spennan varð meiri,
jókst að sama skapi magn vak-
anna í blóðinu.
Eftir því sem lengra leið frá
því, er drykkjumennirnir
liöfðu neytt áfengis, og líða tók
að því, er þeir samkvæmt
venjum sínum hefðu farið að
drekka aftur, jókst órói þeirra
og spenna. Fylgdu þessu vöðva-
verkir og aukin vöðvaspenna,
liöfuðverkir og þreytutilfinn-
ing. Þeir urðu mislyndir, argir
og uppstökkir. Sýndi þetta, að
allt miðtaugakerfið var mjög
viðkvæmt og ofnæmt. Sam-
fara þessu varð aukning vak-
anna í blóðinu svo mikil, að
magn þeirra tvö- til þrefald-
aðist og komst upp í 30—70
gamma í ml. af ACH-líku efni.
í snöggum viðbrögðum
vegna áreynslu og átaka eru
það þessir vakar, sem mergur
nýrnahettnanna framleiðir, er
mynda fyrsta hlekkinn í or-
saka- og afleiðingakeðju lík-
amlegra atburða. Vakarnir frá
berki nýrnahettnanna, cortison
o. fl., koma svo einnig síðar til
skjalanna.
Rottur voru settar i veltu-
grind, og þeim var velt sitt á
hvað. Eftir þvi sem áverkar
þeirra' urðu meiri í þessum
litla lífsins ólgusjó, þeim mun
meira hækkaði adrenalin-,
öðru nafni epinephrin-, og
norepinephrin-magnið í blóð-
vatni þeirra og jókst mjög ört,
þegar áverkarnir urðu tölu-
vert alvarlegri og oftar endur-
teknir (14).
Rannsóknir hafa leitt í ljós,
að ACH getur haft sömu áhrif
og taugaboð og verkað milli-
liðalaust á börk nýrnahettna
þeirra dýra, sem svara örvun
frá stóru iðratauginni með
auknu vaka-útstreymi (15).
Rosenfeld ræðir þessa uppgötv-
un og telur miklar likur til
þess, að ACH hafi bein stjórn-
andi áhrif á starfsemi bæði
mergs og barkar nýrnahettna.
Hvetjandi áhrif ACH — vef-