Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 19

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ 51 ýmist fallega innbundnar eða klæddar í snotran pappír .... Á skrifborðinu lágu blýantar og pennastengur i þráðbeinni röð og óskrifaðar pappirsarkir í ferhyrndum stafla .... Hver lilutur ber það með sér að bafa verið valinn af smekkvisi og varðveittur af ástúð.“ Gunnar las jafnan góðar bæk- ur, liafði vndi af myndlist, var tíður gestur i leikhúsi og þá ekki síður í hljómleikasal, því að í liuga lians var tónlistin drottning listanna. Hann átti gott hljómplötusafn og bafði nýlega komið sér upp fullkomn- um tækjum til að liafa þess sem bezt not. Hann hafði hönd í bagga með uppsetningu þessara tækja og smiðaði raun- ar sjálfur nokkurn hluta af um- búnaði þeirra. Hann var þjóð- hagasmiður frá náttúrunnar hendi og hafði auk þess lesið rækilega um þetta efni í erlend- um tækniritum. Þegar allt var komið á laggirnar, sameinuðust smiðurinn og tónlistarunnand- inn í einlægum fögnuði yfir ár- angrinum. Gunnar Cortes var góður fé- lagi, léttur í skapi, prúður, stillt- ur og fremur blédrægur, en gat þó verið einbeittur, ef honum þótti þörf á. í tali, fasi og fram- göngu allri hafði hann tileink- að sér það bezta og hóflegasta í menningu samtímans,eða ef til vill var einstök séntihnennska honum meðfædd. En hvort sem heldur var, þá verður persónu- leikinn ógleymanlegur þeim, sem höfðu af honum einhver teljandi kynni. Ástvinum Gunnars og nán- ustu vinum verður minningin um hann Ijós á vegum allt til leiðarenda. Þórarinn Guðnason. — o — Það var Jiaustkvöld eitt fyrir 30 árum, í suddarigningu, er ég kom gangandi niður Banka- stræti, að ég heyrði kallað nafn mitt. Þegar ég leit upp, sá ég á horninu bjá Haraldarbúð hina friðustu mey og þann fönguleg- asta svein, sem ég til þessa hafði augum litið. Var þar kominn Gunnar Cortes, sem ég liafði þá nýlega kynnzt, en báðir vor- um við að hefja nám i læknis- fræði þetta haust. „Þetta er konan mín, Krist- rún, kölluð Rúna,“ sagði Gunn- ar þegar í stað, „og þú lætur liana í friði.“ Það var nú ekki siður að vera að festa ráð sitt á fyrsta ári i læknisfræði í þá daga, svo að ég tók þetta lal hans ekki mjög alvarlega,en varð þó þegar í stað bálskotinn í Rúnu — og sama held ég að hafi mátt segja um flesta kunningja okkar þá, sem utan af landsbyggðinni komu og kynntust Rúnu. En þau bál kulnuðu fljótlega af algjörum næringarskorti, þvi að Gunnar átti bug Rúnu allan, og þegar við vorum búnir að sætta okkur

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.