Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 21

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ 53 (féjarni Jói onaon: UM HÖFUÐSL¥S Höfuðslys eru oftast nær flók- in. Þau ein tilfelli eru einföld, þegar ekkert skaddast nema ytra borðið, mjúkir hlutar og bein. Þegar heilinn verð- ur fyrir áverka, eru þau ætið flókin. 1 fyrsta lagi af því, að heilinn stjórnar allri starfsemi líkamans, bæði þeirri, sem okk- ur er sjálfráð, og eins liinni, sem ekki kemur til vitundar okkar. í öðru lagi af því, að við þekkjum ennþá næsta lít- ið starfsemi heilans. Þó að þessi þekking hafi tekið stórstígum framförum síðustu áratugina, held ég, að okkur sé bezt að taka undir með Newtonogsegja, að við þekkjum flæðarmálið, en úthafið allt er lokuð bók. Þess vegna er ekki unnt, hvorki í stuttu máli né löngu, að gefa einfalda eða fullkomna skýringu á heilaslysum, en hins vegar verður að hafa einhverja viðmiðun til að fara eftir í með- ferð þeirra. Og þá hafa menn valið þá leið hér eins og ann- ars staðar að búa sér til vinnu- kenningar, sem notaðar eru, þar til annað reynist sannara. Sann- leikurinn er sem sé ekki óskeik- ull, lieldur afstæður. Ég held, að vísindalegur sannleikur sé það, sem bezt skýrir ákveðið fyrirbæri í ljósi þeirra stað- með dætrunum þremur, tengda- syninum, sem reynzt hefur henni bezti drengur, og litla dóttursymnum, sem ber nafn afa síns, Gunnar Jóhannes, og vonandi erfir gjörvuleika hans og gengi, þvi að Gunnar var lánsmaður, þó að ævi lians yrði skemmri en skyldi. Gunnar var kvæntur hinni ágætustu konu, sem átti hug hans allan. Dætrum þeirra er við brugðið fyrir gjörvuleik, og' heimili þeirra er með þeim menningarbrag, sem góðar gáf- ur og smekkvísi fá ráðið. Mér finnst einkennilegt, að mæta honum Gunnari ekki á götunni oftar. Þegar ég sá hann tilsýndar, varð ég alltaf léttari i skapi, hvatari í spori, og fór að hugsa um, hvaða brandara ég gæti smellt á hann, er fund- um okkar bæri saman. Vel gæti ég hugsað mér, að þegar við Gunnar hittumst næst, tæki hann á móti mér með orðum eitthvað á þessa leið: „Ef þér verður mjög heitt þarna niðri, þá láttu mig vita, og ég skal þá kippa þér upp hingað i sól- skinið og sunnanvindinn.“ Bless á meðan, Gunnar. Jón Sigtryg-gsson.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.