Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 29

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 29
LÆKNABLAÐIÐ 61 og virðast ekki illa á sig komn- ir. Stafar það væntanlega af því, að hausbrotið, sem oftast er samfara dilaeeratio, keniúr í veg fyrir þrýstingshækkun í heilabúinu, þegar slvsið verður; það verkar eins og öryggishani á gufukatli. Oft eru staðbund- in einkenni samfara, eftir því hvar skemmdin er, lamanir, málleysi, sjóntruflanir Venju- lega er mikið blóð i mænu- vökva, stundum svo mikið, að enginn liquor sýnist vera i blóð- inu. Blóðþrýstingur, púls, önd- un og liiti eru oft eðlileg, svo og þrýstingur i heilabúi, en stundum eru sjúklingar lostnir og þarf þá að sjálfsögðu að taka það til meðferðar á undan öllu öðru. Meðferð á þessum sjúkling- um beinist að heilasárinu, þ. e. að stöðva blæðingu og hreinsa burtu dauðan vef. Ef sárið er vel lireinsað, grær það með glia- öri, en annars er liætt við band- vefsöi’i, sem gjarnan vex við lieilabast, meningeo-cerebralt ör, og þau ör gefa flog. Þegar sárið hefur verið lireinsað, þarf að loka basti, sauma saman rif- una, ef hægt er, en annars að bæta, og er þá notuð fascia í bótina, annaðhvort fascia tem- poralis eða fascia lata. Skotsár eru sérstök tegund af dilaceratio. Fer áverkinn að langmestu leyti eftir liraða kúl- unnar, eins og ég hef vikið að hér að framan, því að höggið, er hún slær, stendur í réttu hlut- falli við þunga liennar í fyrsta veldi, en hraðann í öðru. Tvö- faldur hraði, ferfalt högg, þre- faldur hraði, nífalt högg. Til gamans má geta þess, að lifandi afl kúlu úr stríðsriffli (30—06) er 10000 kgm, en afl kúlu úr smáriffli (cal. 22) og kinda- byssu er frá 150—500 kgm eftir hleðslu, og er þá miðað við hraða kúlunnar, þegar hún skil- ur við hlaupið. Til þess að skilja áhrif kúluskots á heilann þurf- um við að rifja upp svolitið meiri eðlisfræði. Ef við höfum lokað ker fullt af vökva, dreif- ist þrýstingur í því jafnt í all- ar áttir. Yið getum litið á heila- búið sem þvílíkt ker, og dreifist höggið af kúlunni í allar áttir, þegar hún er komin í gegnum beinið. Sé aflið mikið, fer heil- inn i graut og kúpan getur brotnað í smámola, en sé mjög af kúlunni dregið, þarf hún ekki að gera meiri skaða en göngin, sem hún lætur eftir sig. Þá eru ótaldar blæðingar, og eru þær aðallega tvenns konar, sem gát þarf að hafa á: haema- toma epidurale og h. subdurale. Utanbastsblæðing (h. epidur- ale) er gamalþekkt, en frekar er hún sjaldgæf. Hún kemur af því, að slagæðar utan á basti rifna, stundum eru það smáæð- ar, en oft eða oftast ein af aðal- greinum miðmengisslagæðar. Hún kemur úr ytri hálsslag- æð (a. carotis externa), fer upp

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.