Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 60

Læknablaðið - 01.06.1961, Page 60
88 LÆKNABLAÐIÐ framkvæmd af almennum lækni. Þau verk ber sérstaklega að verðleggja með tilliti til hærri krafna um sérþekkingu, sérþjálfun og áhaldakost. Hins vegar er ekki fyrir það að synja, að héraðslæknir geti frain- kvæmt — og jafnvel verði að framkvæma, ef nokkur tiltök eru — ýmsar rannsóknir og að- gerðir, sem teljast sensu stric- tiori sérfræðilegar, enda vand- séð, livað ekki megi telja sér- fræðilegt, ef frá eru skilin fyr- irhafnarminnstu læknisverk. Tæpast getur þá talizt ósann- gjarnt, þótt krafizt sé sama gjalds fyrir sömu vinnu, ef ein- ungis veltur á almennri læknis- kunnáttu og dómgreind, hvort árangur kemur í einn stað nið- ur. Engum hónda kemur nú til hugar að stunda búskap með þeirri fornaldartækni, sem hér hélzt fram yfir siðustu alda- mót, svo fremi liann aetli sér annað og meira en „kjánalegt sport“. Engan skyldi því undra, þótt héraðslæknar, sem einir verða að taka á sig ábyrgð vegna aðkallandi og mikilvægra ákvarðana, sem óhægt er að skjóta undir annan dóm, kjósi að njóta góðs af öryggi nú- tímatækni. Sjúkdómagreining er undir- staða allrar læknishjálpar. Áður fyrrvarhún íþróttmeðþeim tak- mörkunum, sem settar eru m. a. skynfærum og athygli. Enn er hún íþrótt, en hafin í æðra veldi vísindalegrar tækni. Nú þykir sjálfsagt i mörgum menningar- löndum, að almennir læknar séu vel búnir að tækjum, sem auð- velda þeim starfið. Má þar til nefna röntgentæki, smásjá og kolorimeter, svo að eitthvað sé nefnt. Hér á landi er héraðslækn- um, sem öðrum læknum utan sjúkrahúsa og rannsóknarstofn- ana, ætlað að sjá sér fyrir tækj- um á eigin kostnað. Sennilega munu fæstir þeirra liafa ráð á að fá sér eitt vandað tæki, livað þá fleiri. Fer þá hvað efl- ir öðru, þjónusta og aðhún- aður. Því verður heldur ekki mót- mælt, að vinnugjald það, sem héraðslæknum er heimilt að taka, hvetur þá ekki til tækja- kaupa, sízt þegar samanhurður er gerður við taxta L. R. Svo mjög hallast þar á. Hitt er svo annað mál, að oftast munu aðr- ar hvatir en fjái’von búa undir hverskonar viðleitni þeirra til bættrar þjónustu. Skulu hér tekin fáein dæmi um rannsóknir, sem oft getur verið nauðsynlegt að gera í hér- aði og útheimta einungis al- menna lækniskunnáttu, en dýr tæki og talsverða fyrirhöfn; enn fremur dæmi um algengar að- gerðir, sem sjálfsagt þykir að framkvænia í liéraði, þegar svo her undir.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.