Læknablaðið - 01.03.1963, Side 31
LÆKNABLAÐIÐ
9
^JJriitíjörn JJr
o/orn ryt/í/uaion .
Nokkur orð um greiningu og meðferö fyrir og
eftir aðgerð.
Greining á atresia oesophagi
er að jafnaði vandalaus, þegar
um hreina atresia er að ræða.
í vitum nýfæddra barna er allt-
af meira eða minna af slími,
sem sogið er í burtu strax eflir
fæðingu, en þar sem munnvatns-
myndun er töluvert mikil lijá
nýfæddum börnum, safnast
fljótlega aftur vökvi í munn-
inn. Stór börn komast fljótt upp
á að kyngja þessu munnvatni,
en lítil börn hafa ekki eins
]>roskaðan kyngingar-reflex og
slefa því meira. Ef rennslið er
óeðlilega mikið og jafnt, á það
að velcja grun um atresia, sér-
staklega ef litarháttur er ekki
góður, ef barnið hóstar eða
svelgist á eða blánar, áður en
því er gefið nokkuð að drekka.
Ef móðirin hefur haft hydram-
nion, er enn meiri ástæða til
að vera á verði, þvi að talið er,
að mikill hluti þeirra kvenna,
sem eignast börn með atresia,
liafi liaft hydramnion eða
óvenjumikið legvatn.
Þau atriði, sem nefnd hafa
verið, eru þó sjaldan næg
ástæða til gruns um atresia, og
börnunum er gefið að drekka.
Barnið tekur við og kyngir, en
strax eftir fyrstu sopana rennur
upp úr því, þvi svelgist á, það
hóstar og blánar, því að ekkert
rúm var fyrir fæðuna í hinum
lokaða poka, sem var þegar full-
ur af munnvatni og slími. Þeg-
ar barnið hefur jafnað sig, er
reynt aftur, en allt fer á sömu
leið, barninu svelgist á, það
blánar og hóstar enn meira en
áður. Stór og kröftug börn jafna
sig venjulega eftir skemmri eða
lengri hóstaköst og cyanosis, en
minni og kraftlítil börn geta
hreinlega drukknað.
Þessi einkenni ættu að vekja
sterkan grun um, að barn hafi
atresia, og er þá tiltölulega auð-
velt að fá örugga vissu um,
hvort svo sé eða ekki. Aðferð-
in er sú að renna mjórri
gúmmí- eða polyethvlenslöngu
niður í gegnum munn eða nef.
Þegar komið er 12—14 cm nið-
ur, stöðvast slangan skyndilega
og kemst ekki lengra. Ef pokinn
er víður og slangan mjúk, ber
þess þó að gæta, að hún getur
hringað sig niður í pokann og
þá virzt ganga niður í maga.
Til þess að ganga úr skugga
um, hvort hún sé niðri í maga,
er gott að sprauta 2—3 cc af
lofti niður í gegnum hana og
hlusta yfir maganum. Hevrisl