Læknablaðið - 01.03.1963, Page 82
46
LÆKNABLAÐIfí
Páll Ásmundsson, cand. med.,
var ráðinn aðstoðarlæknir héraðs-
læknisins í Hafnarfirði frá 14. sept.
til októberloka 1962.
Einar Helgason, læknir, hefur
hinn 27. sept. 1962 fengið leyfi til
þess að starfa sem .sérfræðingur
í efnaskipta- og hormónasjúkdóm-
um innan lyflæknisfræðinnar. Ein-
ar hefur opnað lækningastofu í
Reykjavík.
Guðjón Lárusson, cand. med.,
hefur hinn 27. sept. 1962 fengið
leyfi til þess að stunda almennar
lækningar hér á landi og frá sama
degi leyfi til þess að mega starfa
sem sérfræðingur í lyflæknisfræði
með sérstöku tilliti til efnaskipta-
sjúkdóma. Guðjón hefur undanfar-
ið starfað við Borgarspítalann í
Reykjavik.
Eggert Brekkan, cand. med., hef-
ur hinn 2. okt. 1962 fengið leyfi
til að stunda almennar lækning-
ar hér á landi.
Haukur Þórðarson, læknir, hef-
ur hinn 1. nóv. 1962 fengið leyfi
til þess að starfa sem sérfræðingur
í orkulækningum (nuddlækning-
um).
Stefán Bogason, læknir, hefur
hinn 1. nóv. 1962 fengið leyfi til
þess að starfa sem sérfræðingur
í svæfingum og deyfingum.
Páll Ásgeirsson, cand. med., hef-
ur hinn 1. nóv. 1962 fengið leyfi
til þess að mega stunda almennar
lækningar hér á landi.
Valur Júlíusson, cand. med., sett-
ur héraðslæknir í Seyðisfjarðar-
héraði, verður áfram settur héraðs-
læknir í því héraði frá 1. nóv. 1962
og þangað til öðru vísi verður
ákveðið.
Guðjón Sigurkarlsson, cand.
med., var settur héraðslæknir í
Súðavíkurhéraði frá 1. nóv. 1962
og þar til öðru vísi yrði ákveðið.
Hannes Finnbogason, læknir,
hefur hinn 3. des. 1962 fengið leyfi
til þess að starfa sem sérfræðing-
ur í handlækningum.
Henrik Linnet, héraðslæknir,
hefur hinn 3. des. 1962 fengið leyfi
til þess að mega starfa sem sér-
fræðingur í geislalækningum.
Magnús Blöndal Bjarnason,
læknir, hefur hinn 3. des. 1962
fengið leyfi til þess að mega starfa
sem sérfræðingur í handlækning-
um.
Ólafur Ólafsson, cand. med., hef-
ur inn 3. des. 1962 fengið leyfi
til þess að stunda almennar lækn-
ingar hér á landi.
Jósef Ólafsson, læknir, hefur
hinn 4. des. 1962 fengið leyfi til
þess að mega starfa sem sérfræð-
ingur í lyflækningum.
Sigursteinn Guðmundsson, lækn-
ir, var skipaður héraðslæknir í
Blönduóshéraði frá 10. des. 1962.
Gunnar Guðmundsson, læknir,
•hefur hinn 11. des. 1962 fengið
leyfi til þess að starfa sem sér-
fræðingur í geðsjúkdómum.
Ólafur Haukur Ólafsson, cand.
med., hefur hinn 11. des. 1962 feng-
ið leyfi til þess að mega stunda
almennar lækningar hér á landi.
Sigurður Sigurðsson, cand. med.,
hefur hinn 17. des. 1962 fengið
leyfi til að stunda almennar lækn-
ingar hér á landi.