Læknablaðið - 01.06.1968, Síða 56
134
LÆKNABLAÐIÐ
Mikið er undir því komið, live hratt hlóðið safnast fyrir
innan gollurshússins. Sé 150 ml af vökva sprautað inn í það á
minna en 30 mínútum, veldur það dauða. A hinn bóginn geta
jafnvel þrír lítrar safnazt þar fyrir, án þess að af því stafi alvar-
leg hætta, ef það gerist mjög hægt. Helztu einkenni: Hraður
hjartsláttur (tachycardia), blóðþrýstingsfall, hækkaður hláæða-
þrýstingur, lost. Bláæðaþrýstingur er talinn hetri mælikvarði til
að fylgjast með gollurshlæðingu (lijarta-tamponade) en venju-
leg hlóðþi-ýstingsmæling.
Meðferð á gollurshlæðingu er gollurshússástunga (pericardio-
centesis), ef til vill thoracotomia og pericardiotomia.
8. Rifa á ósæðinni (ruptura aortae) orsakar venjulega
dauða þegar i stað af innri hlæðingu. Algengust mun rifa á ósæð
vera í sambandi við meiri háttar bifreiðaslys, en kemur einnig
af öðrum orsökum, svo sem falli úr mikilli hæð. Einstaka menn
lifa þó af slíka rifu á ósæð, og ef unnt er að greina hana strax, er
möguleiki til að gera við áverkann á æðinni, og er hún þá saum-
uð saman eða skaddaði hluti hennar numinn í burtu og Teflon-
hútur (graft) settur í staðinn.
Hjá öðrum getur myndazt meginæðargúlpur (aneurysma
traumatica aortae), ýmist fljótiega eftir slysið eða mörgum ár-
um seinna. Ósæðargúlpur, sem fer stækkandi, þarfnast aðgerð-
ar. Þar sem þessir gúlpar eru venjulega rétt ofan við upp-
tökin á arteria subclaviana sin., þrýsta þeir gjarna á vinstri
aðalbarkakvísl og geta þá gefið einkenni frá öndunarfærum. Við
gegnumlýsingu á hrjóstholi myndi í slíkum tilvikum sjást fyrir-
ferðaraukning með æðaslætti í.
Meðferðin er fólgin í því að skera gúlpinn hurtu, og er
Teflonbútur settur í staðinn.
B. Stungu- og skotáverkar
Við stungu- og skotsár á brjóstvegg getur eins og gefur að
skilja öllum líffærum í brjóstholi verið hætt, cn þessi sár verða
af völdum beittra áhalda, svo sem hnífa, og eins byssukúlna o. fl.
Alvarlegir áverkar geta þannig orðið á lungum, hjarta, stóru
æðunum, vælinda, barkakvísl, þind o. s. frv.
Algengasti fylgikvilli er blæðing í hrjósthol (hæmothorax).
Blóð í hrjóstholi þarf að tæma burt við fyrsta tækifæri, til þess
að lungað þenjist eðlilega út, og er bezt að tæma sem mest, ekki
sízt til að geta betur fylgzt með áframhaldandi blæðingu, sem
ber að hafa grun um, ef: 1) ófullnægjandi svörun verður við