Læknablaðið - 01.06.1968, Qupperneq 60
138
LÆKNABLAÐIÐ
Auk þess 6 tilfelli, þar sem aðrir áverkar voru taldir aðal-
eða meðorsök dauða:
1. Laceratio cordis + Fract. costarum + Laceratio cerebri 1
2. Laceratio pulm. bilat. + Laceratio medullae spinalis .... 1
3. Laceratio pulm. cum collapsus + Fracturae locis divers. 1
4. Laceratio pulm. + Fractura cranii m.gr........... 1
5. Laceratio pulm. + Laceratio hepatis ...................... 1
6. Rupt. traumatic. diaphragm. + Fract. cost. + Lacer. hepatis 1
6
1. sjúklingur: Ó. S. no. 108/66.
54 ára karlmaður lagður inn í skyndi vegna loftbrjósts. Hann
hafði hlotið áverka á hægri síðu fjórum dögum áður en hann kom
inn á deildina. Læknar, sem rannsökuðu sjúkling fljótt eftir slysið,
fundu eymsli yfir hægri síðu ásamt lofti undir húð. Röntgenmyndii
voru ekki teknar þá, en brjóstkassi sjúklings vafinn með teygju-
bindum.
Daginn eftir áverkann er sjúklingur vistaður á Landakotsspítala
vegna vaxandi lofts undir húð á brjóstkassa. Röntgenmynd af lungum
sýnir ekki loftbrjóst.
Þrem dögum síðar þyngir sjúklingi og þarfnast þá súrefnisgjafar.
Röntgenmynd af lungum sýnir þá loftbrjóst hægra megin með tilfærslu
á miðmæti yfir til vinstri, þ. e. a. s. loftbrjóst með yfirþrýstingi.
Þegar sjúklingurinn kemur á brjóstholsaðgerðadeildina, kvartar
hann um takverk í hægri síðu. Hann er móður í hvíld, og nokkuð
ber á húðbláma. Plástrar eru á hægri brjósthelmingi neðanverðum
og brjóstkassi vafinn með teygjubindum. Það er mikið loft undir húð
á brjóstkassa, herðum, hálsi og handleggjum niður fyrir olnboga. Að
aftanverðu nær loftið niður á spjaldhrygg. í hóstinni finnst, að barki
liggur vinstra megin miðlínu. Við hlustun heyrist engin öndun yfir
hægra lunga, og ásláttartónn er hár. Röntgenmynd sýnir loftbrjóst
hægra megin og brot á IX. rifi hægra megin (1. röntgenmynd).
Þegar eftir komuna var í staðdeyfingu lagður keri inn í hægra
brjósthol og hann tengdur sogdælu. Mikið loft tæmdist út og nokkur
vökvi, og ástand sjúklings varð strax miklu betra.
Röntgenmynd eftir þessa aðgerð sýndi góða þenslu á hægra
lunga og miðmæti í miðlínu (2. röntgenmynd).
Engir fylgikvillar komu eftir þessa aðgerð. Líðan sjúklings fór
dagbatnandi. Loftið undir húðinni eyddist smám saman. Kerinn var
tekinn eftir fimm daga, og nokkrum dögum síðar var sjúklingurinn
útskrifaður við ágæta heilsu.
Sjúkdómsgreining: Fract. costae IX dxt. c. pneumothorax
(tensions).