Læknablaðið - 01.10.1972, Page 18
101
LÆKNABLAÐIÐ
við læknamiðstöð í Borgarnesi er lokið og byggingaframkvæmdir að
heíjast eða hafnar.
Hafinn er undirbúningur að byggingu læknamiðstöðvar í tengsl-
um við sjúkrahúsið á Patreksfirði.
■ Læknamiðstöðvarbygging er í undirbúningi á Dalvík.
Læknamiðstöð á Egilsstöðum er að komast á lokastig. Verður
væntanlega lokið á þessu ári eða í byrjun næsta árs.
Læknamiðstöðvarbygging, sem fyrirhuguð er í tengslum við hjúkr-
unarheimili á Höfn í Hornafirði er á undirbúningsstigi.
Viðbygging við sjúkrahúsið í Keflavík er á undirbúningsstigi.
Við þetta undirbúningsstarf vegna læknamiðstöðva hefur ráðu-
neytið reynt að fá fram ákveðna gerð læknamiðstöðva, sem hægt væri
að nota víðar á landinu en á einum stað, þannig er gert ráð fyrir að
sama teikning verði notuð á Dalvík og Höfn í Hornafirði og e. t. v.
víðar.
Enda þótt engin tæknideild eða byggingadeild sé í ráðuneytinu,
þá hefur ráðuneytið og starfsmenn þess haft forgöngu um mjög mikið
af því starfi, sem hér hefur verið minnzt á og í samráði við heima-
menn unnið að framgangi þeirra verkefna, sem hafin hafa verið. Senni-
legt er, að í framtíðinni verði óhj ákvæmilegt að í ráðuneytinu sjálfu
verði fagþekking á sviði byggingamála, bæði vegna þeirra bygginga-
framkvæmda, sem í gangi eru hverju sinni og vegna þess ráðgjafar-
starfs, sem óhjákvæmilega þarf að koma frá ráðuneytinu til þeirra
aðila, sem hafa forgöngu um framkvæmdir heima í héraði.
5. HJÚKRUNAR- OG ELLIHEIMILI
Eins og þeir vita, sem hafa kynnt sér frumvarp til laga um heil-
brigðisþjónustu, þá er bar gert ráð fyrir annarri skilgreiningu á orð-
inu sjúkrahús heldur en nú tíðkast, og gert ráð fyrir, að sjúkrahús
taki einnig til allrar hjúkrunarvistar sjúkra.
í samræmi við þetta, þá hefur á vegum ráðuneytisins verið samið
frumvarp til laga um dvalarheimili aldraðra og var það frumvarp
lagt fram á síðasta þingi, en ekki tókst að afgreiða það á þinginu.
Samkvæmt þessu írumvarpi er gert ráð fyrir því, að dvalarheimili
fyrir aldraða verði bundin með lögum og að heilbrigðisyfirvöld hafi
eftirlit með rekstri og fyrirkomulagi þeirra eins og sjúkrahúsa. Þá er
gert ráð fyrir ákveðnum ríkisstyrk til bygginga slíkra heimila, ef að
þau eru byggð á vegum sveitarfélaga, og heimildar til styrks þó
þau séu byggð af öðrum. Það er gert ráð fyrir því, að þetta frumvarp
verði að nýju lagt fram í byrjun næsta þings.
6. LYF OG LYFSALA
Um síðustu áramót tók til starfa í ráðuneytinu deildarstjóri, sem
er íullmenntaður lyfjafræðingur, og verður starf hans í ráðuneytinu
að vera sérfræðingur þess um lyfjamál, en auk þess að annast tilskilið
eftirlit með lyfjabúðum og lyfsölu. Þetta starf er enn á byrjunarstigi,
en bað er gert ráð fyrir, að lyfjafræðingurinn verði í framtíðinni tengi-
liður milli ráðuneytisins og lyfjaskrárnefndar og lyfjaverðlagsnefndar.