Læknablaðið - 01.10.1972, Page 82
144
LÆKNABLAÐIÐ
þaðan er erfitt og ótryggt að sækja til Þórshafnar miðað við núverandi
samgöngur. Á Vopnafirði (806 íbúar) er aðstaða allgóð, og hefur þar
yfirleitt setið læknir undanfarin ár, en stutt í senn. í algjörri neyð
mætti hugsa sér að sameina a. m. k. Kópaskershérað Húsavíkurhéraði
(103 km milli læknissetra) og Þórshafnarhérað Vopnafjarðarhéraði
(80 km milli læknissetra) með stofnun læknamiðstöðvar þar. Slíkt
yrði aðeins unnt með stórbættum samgöngum, ekki aðeins á landi,
heldur og í lofti, enda tiltölulega góðir flugvellir á öllum stöðunum,
auk þess sem ráða þyrfti héraðshjúkrunarkonu.
Á hinn bóginn mætti einnig hugsa sér sameiningu allra þessara
héraða með öflugri læknamiðstöð og sjúkrahúsi fyrir heimilislækn-
ingar á Þórshöfn, þar sem yrðu 3 læknar; þar væri flugvél til taks,
helzt þyrla. Ekki er þó unnt að mæla með þeirri lausn að sinni, þar eð
mjög er óvíst um þróun byggðarlaga á þessu svæði. Myndi þyrlan þó
að öllum líkindum tryggja íbúum þess bezt örugga læknisþjónustu,
ásamt notkun snjóbíla, sem þegar eru fyrir hendi. Kæmi þessi lausn
tvímælalaust til greina ásamt öðrum ráðstöfunum til þess að hafa
áhrif á fyrrnefnda byggðarþróun, svo sem stofnun menntasetra og
auknum stuðningi við atvinnulíf, ef á annað borð væri fyrir hendi
vilji stjórnvalda til að halda svæðinu í byggð og snúa vörn í sókn í
þessum harðbýla landshluta.
EGILSSTAÐAHÉRAÐ
Engin líkindi eru til, að læknir fáist í Bakkagerðishérað (ónýtur
læknisbústaður, íbúar aðeins 293, afskekkt), og því eðlilegt, að Egils-
staðalæknar þjóni því, eins og þeir hafa gert í mörg ár. Þeir hafa
lengi haft talsverða samvinnu (helgarvaktir, sumarfrí), og bæði hér-
uðin (Austur- og Norður-Egilsstaðahérað) reka í sameiningu 8 rúma
sjúkraskýli á Egilsstöðum og hafa læknar jafnan aðgang að röntgen-
og rannsóknastofuaðstöðu. Landfræðilega yrði læknamiðstöð með sam-
einingu þessara 3 læknishéraða einstaklega vel í sveit sett á Egils-
stöðum, miðsvæðis í stóru héraði með vegum til allra átta og góðum
flugsamgöngum við Reykjavík og Akureyri.
íbúar héraðanna eru 2454. Byggð fer vaxandi á Egilsstöðum og
er því með tilliti til vegalengda innan héraðs full þörf fyrir 3 lækna,
einkum þegar sjúkraskýlið hefur verið stækkað. Verið er að teikna
þá viðbót, þar sem gert er ráð fyrir læknamiðstöð fyrir 3 lækna með
aðstöðu til rannsókna, heilsuverndar og lækninga, auk aðstöðu fyrir
sérfræðinga, sem hafa vildu viðstöðu. Við þetta mun skýlið sjálft
stækka um nokkur rúm og gegna hlutverki sjúkrahúss fyrir heimilis-
lækningar. Lokið er við nýjan héraðslæknisbústað á staðnum, og
ráðagerðir eru um að reisa sérstakt elliheimili. Er því sýnt, hvert
stefnir, enda hefur nýlega verið veitt heimild til stofnunar lækna-
miðstöðvar á Egilsstöðum, hin fyrsta skv. lögum þar að lútandi.
I Seyðisfjarðarhéraði er einnig nýreistur héraðslæknisbústaður
með góðri íbúð og lækningastofum, og gamalt sjúkrahús er á staðnum.
íbúar eru 988. Eríitt er að spá eða gera ákveðnar tillögur um læknis-
þjónustu á þessum stað. Samgöngur við Egilsstaði eru enn erfiðar mik-