Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1982, Blaðsíða 21

Læknablaðið - 15.08.1982, Blaðsíða 21
LÆKNABLADID 175 Lenging á QT-tíma ásamt formbreytingu á T- takka er hins vegar einkennandi eftir töflugjöf, en sést oftast fyrst nokkrum dögum eftir að gjöf er hafin. Eftir lyfjagjöf í æð náðist sínustaktur í um það bil 40 % hjartsláttartruflana frá forhólfum og í 50 % truflana frá sleglum (hraðatakti). Verapamil hefur greinilega yfirburði í TSV, en hins vegar virðast áhrif amiodarons meiri í FIA og FLA. Hjartabilun versnaði ekki og meðferðin truflaði ekki raflostsmeðferð. Helstu hjáverkanir eftir bláæðagjöf eru tor- leiðnihindrun, lágprýstingur og lost. í töfluformi hefur lyfið oftast verið gefið í lágskömmtum, p.e. 600 mg á dag í eina til fjórar vikur sem hleðsluskammtur, en síðan viðhaldsskammtur 2-400 mg á dag. Nýlega hefur verið lýst notkun í háskömmtum (5), 1200-1800 mg á dag í eina til tvær vikur og síðan 600-1000 mg á dag eða að skammtur hefur verið smáaukinn í 1000 mg á dag. Rosenbaum og félagar greindu 1976 frá reynslu sinni af amiodaron töflum í hraðatakti frá forhólfum, par sem lyfið bældi hjartsláttar- truflanir fullkomlega í 98 af 106 sjúklingum og í 119 af 145 sjúklingum með hjartsláttartrufl- anir frá sleglum. Reynsla annarra hefur ekki verið eins glæsileg, en pó mjög góð. Almennt hefur verið lýst algjörri bælingu hjartsláttar- truflana frá forhólfum í 70 % tilvika, 20 % sjúklinga fá bót, p.e.a.s. verulega hægari takt og 10 % hafa ekki fengið neina bót. Þörf er á samanburði við verapamil í töfluformi í pví að hindra endurtekin TSV köst.^n einnig parf að bera saman amiodaron og digoxin í meðferð FIA og FLA, bæði hvað lækningalega verkun og hjáverkanir varðar. Loks vantar saman- burð við kinidin í pví að hindra hjartsláttar- köst eftir raflostsmeðferð. Nadermanee og félagar (5) greindu frá frábærum árangri amiodaronmeðferðar sjúk- linga með endurteknar illvígar hjartsláttartrufl- anir frá sleglum par sem önnur lyf í háum skömmtum og margvíslegum blöndum höfðu brugðist. Peir notuðu háskammta. Meðferðin var metin með Holter skráningu og æ betri árangur náðist með stærri skömmtum. Nær alger (95-98 %) bæling náðist á sleglaslögum í 18 sjúklingum, en meira en helmingur peirra hafði fengið eitt eða fleiri hjartastopp. Jafn- framt pví að sleglaslög voru bæld, hurfu algjörlega fjölpætt sleglaslög, pegar lækninga- legri péttni var náð, en pað tók stundum fjórar til sex vikur. Þessum sjúklingum hefur verið fylgt eftir 18 mánuði og sleglaflökt eða hraða- taktur hefur ekki sést á ný og bæling slegla- slaga hefur haldist. Amiodaron er pví virkasta lyf, sem pekkt er við lifshættulegum hjartslátt- artruflunum frá sleglum og gildi pess mikið. Vafalítið hafa óvenjulegar og algengar hjá- verkanir amiodarons tafið fyrir útbreiðslu lyfsins, en pær hverfa eða dvína, ef lyfjagjöf er hætt eða skammtar minnkaðir. Pekktastar eru lipofucsin útfellingar í hornhimnu augans. Flestir fá pessar útfellingar, sem verða meiri eftir pví sem skammturinn er stærri, en pær draga ekki úr sjónskerpu, pótt pær geti í háskömmtum leitt til litrófsskynjunar (halo) í kringum ljósgjafa. Með langtímanotkun hefur verið lýst auknu næmi húðar fyrir sólarljósi í um pað bil 3-10% tilvika, sem stöku sinnum hefur valdið blágráum húðlit. í 2-4 % tilvika er lýst ýmist van- eða ofstarfsemi skjöldungs og er peim hættara, sem hafa fyrri sögu um skjöldungssjúkdóma. Áhrif á efnaskipti skjöld- ungshvata sjást pó hjá öllum og eru fólgin í hömlun á umbreytingu á T4 í T3 í útvefjum. Þetta leiðir til aukinnar péttni á T4, en minni péttni T3 í sermi, en auk pess hækkunar á rT3 (reverse T3). í lágskömmtum parf sjaldan að hætta meðferð vegna hjáverkana. í háskömmt- um eru hjáverkanir tíðari, t.d. magaerting, svefntruflanir og vöðvaslappleiki. Einnig er pá lýst tímabundinni hækkun á lifrarhvötum, án frekari fylgikvilla vegna pess, og bandvefs- aukningu í lungum hefur verið lýst. Öll pessi einkenni hverfa ef dregið er úr lyfjaskömmt- um eða lyfjagjöf hætt af og til. Hjáverkanir frá hjarta- og æðakerfi eru hverfandi, Rosen- baum skýrir pó frá verri leiðni hjá sex af 68 sjúklingum, sem höfðu fyrir torleiðnihindrun eða truflun á sleglaleiðni eða hvort tveggja. Önnur rannsókn á 20 sjúklingum með leiðslu- truflanir fyrir meðferð greindi frá pví, að engum hefði versnað af meðferðinni. Milliverkunum við önnur lyf er lýst. Þannig má búast við hægatakti, ef amiodaron er gefið með betablokkum eða verapamili. Nú er vitað að amiodaron eykur verulega digoxinpéttni í sermi og getur pví valdið eitrunareinkennum, en verkunarháttur er ópekktur. Þá er vitað að amiodaron eykur á blóðpynningu, pegar dicu- marol er gefið. Lyfið polist vel í svæfingu. Annar páttur, sem hefur gert menn óörugga í amiodaronnotkun er óvissa um helmingunar- tíma, dreifingu og útskilnað. Amiodaron safn- ast í byrjun í vefi og binst sérstaklega sterkt í hjartavef, en skilst lítið út í byrjun, pótt á pví

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.