Læknablaðið - 15.08.1982, Qupperneq 22
176
LÆKNABLAÐID
sé umtalsverður einstaklingsmunur. Rannsókn-
ir með geislamerktu amiodaron benda til, að
helmingunartími sé 28 dagar. Lyfið skilst að
mestu út í galli og tekur pátt í parma-
lifrarhringflæði, en lítið skilst út um nýru. Nú
er líklegt, að áhrif á skjöldungshormón geti
orðið að liði við mat á virkni og hjáverkunum
lyfsins, par sem náin fylgni hefur fundist milli
pessara pátta og péttni á rT3 í sermi, háð
skömmtun og tímalengd lyfjagjafar (6). Hins
vegar hafa mælingar í sermi ekki notagildi
vegna mikillar vefjabindingar. Vegna langs
helmingunartíma helst virkni lengi eftir að
gjöf hefur verið hætt. Hinn langa helmingun-
artíma má einnig skoða sem kost, par sem
nægilegt er að gefa lyfið einu sinni á dag, t. d.
fimm daga vikunnar, eftir að hleðsluskammtur
hefur verið gefinn, og eru pað miklir yfirburðir
yfir pau lyf, sem nú eru notuð í hjartsláttartrufl-
unum.
Hjáverkanir amiodarons hafa sjaldnast
reynst alvarlegar, og verður að skoða pær í
ljósi pess að lyfið hefur óyggjandi lækninga-
legt gildi í lífshættulegum, illvígum hjartslátt-
artruflunum.
Vonandi verður hin vandasama meðferð
hjartsláttartruflana öruggari og markvissari á
pessum áratug en áður. Ýmsar nýjungar eru í
sjónmáli, sem nauðsynlegt er að fylgjast með.
Pálmi V. Jónsson
Þórður Harðarson
HEIMILDIR
1. Winkle RA. Current status of ambulatory electro-
cardiography. Am H Journal 1981; 102; 757-70.
2. Zipes DP, Heger JJ, Prystowsky EN. Sudden
cardiac death. Amer J Med 1981; 70: 1151-4.
3. Antman EM, Stone PH, Muller JE, Braunwald E.
Calcium channel blocking agents in the treat-
ment of cardiovascular disorders. Ann Int Med
1980;93:875-904.
4. Marcus FI, Fontaine GH, Fraute R, Grosgogeat
Y. Clinical pharmacology and therapeutic appli-
cation of antiarrhythmic agent, amiodarone. Am
Heart J 1981; 101:480-93.
5. Nademanee K, Hendrickson JA, Cannon DS,
Goldreyer BW, Singh BN. Control of refractory
life-threatening ventricular tachyarrhythmias by
amiodarone. Am Heart J 1981; 101: 759-68.
6. Nademanee K, Melmed S, Hendrickson JA, Reed
AW, Hershman JM, Singh BN. Role of serum T4
and reverse T3 in monitoring antiarrhythmic
efficacy and toxicity of amiodarone in resistant
arrhythmias. Amer J Cardiol 1981; 47: 482.
FÉLAG ÍSLENSKRA LÆKNA í VESTUR-ÞÝSKLANDI
Hinn 24. apríl 1982 var stofnað í Achen
Félag íslenskra laekna í Vestur-Þýska-
landi, (FÍLÍÞÝ). Nú eru sjö íslenskir lækn-
ar við framhaldsnám þar og einn starfandi
læknir.
Stjórn félagsins skipa: Þorsteinn Jóhann-
esson formaður, Achen, Atli Ólafsson
ritari, Siegen, gjaldkeri er Gísli Vigfússon,
Bachnang og meðstjórnandi Árni B. Ste-
fánsson í Freiburg.
Félagið hefur pegar ritað stjórn L. í. og
óskað eftir aðild sem svæðafélag.