Læknablaðið - 15.08.1982, Síða 35
LÆKNABLADIÐ
189
SKÝRSLA STJÓRNAR FÍLÍS STARFSÁRIÐ 1980-1981
Adalfundur FÍLÍS 1980 var haldinn á Sabbatsberg-
sjúkrahúsinu í Stokkhólmi 4. desember 1980. Um 30
félagsmenn sátu fundinn. Gestur fundarins var Viðar
Hjartarson ritari L.í. í stjórn voru kosnir Sveinn
Magnússon formaður, Gísli Sigurðsson ritari, Torfi
Magnússon gjaldkeri og meðstjórnendur Birgir
Jakobsson og Friðrik Yngvason. Fundargerð aðal-
fundar var send félagsmönnum.
Stjórnarfundir. Fjórir stjórnarfundir voru haldnir
á starfsárinu, það er í Stokkhólmi, Eskilstuna, Lundi
og í Gautaborg. Fundirnir voru opnir og mæting
allgóð. Ýmis stjórnarerindi voru einnig rædd símleið-
is. Ljósrit af öllum bréfum til og frá FÍLÍS eru send
stjórnarmönnum.
Félagsmenn, fjármál. Um 170 íslenskir læknar eru
nú í Svípjóð og eru flestir þeirra félagar í FÍLÍS og
greiða par árgjald. Helsti kostnaðarliður félagsins er
ferðakostnaður og vegur par pyngst ferð formanns
á aðalfund L.í. Þar sem reikningsár miðast ekki við
stjórnarskip-ti, kemur kostnaður við ferð fulltrúa
FÍLÍS á NRYL-fund í Helsinki 1980 á reikninga
ársins. Dreifingarkostnaður er einnig talsverður,
einkum dreifing fréttabréfa. Óhjákvæmilegt er að
árgjald verði hækkað í takt við verðlag.
Fréttabréf. Öllum félagsmönnum voru send þrjú
fréttabréf, par sem helstu mál stjórnar voru kynnt,
einnig félagatal og viðbætur við pað, líka var send út
skýrsla stjórnar og fundargerð aðalfundar, en tvö
síðast töldu piöggin voru einnig send L.í. og
svæðafélögum pess erlendis, Læknablaðinu, land-
lækni, heilbrigðisráðuneyti, FÚL og sendiráði íslands
í Svíþjóð.
Könnun FÍLÍS. Formaður félagsins framkvæmdi
könnun á námi, starfi og áformum 163 lækna á skrá
FÍLÍS vorið 1981. 96% svöruðu og hafi peir pökk
fyrir. Flestir eða 76 % hafa fengið lækningaleyfi á
íslandi 1975-79, og 54 % þeirra sem fengu lækninga-
leyfi 1977 voru við nám í Svípjóð. Kom í Ijós, að 117
íslenskir læknar stunduðu nám í 27 greinum og 46
stunda sérfræðistörf í 18 greinum. Fjölmennustu
greinarnar voru heimilislækningar 28, kírúrgía 11,
bæklunarlækningar 9, kvensjúkdómar 9, geislagrein-
ing 6, svæfingar 6, HNE 5 og barnalækningar 4.
Miðað við svipaða könnun Guðjóns Magnússonar
1978 eru færri nú á fyrstu árum náms, 30% höfðu
dvalið tvö ár eða skemur en 48 % 1978.
Sænskt lækningaleyfi hafa 76 %, íslenskt 93 %.
144 hafa dvalið skemur en 10 ár í Svípjóð og par af
er 121 ákveðinn að flytja til baka.
FlLÍS hefur áður vakið máls á nauðsyn áætlunar
um lagknapörf á íslandi og hefur því L.Í. óskað eftir
Barst ritstjórn 10/02/1982
slíkri áætlun frá heilbrigðisráðuneytinu en þaðan
hafa ekki borist fullnægjandi svör. FÍLÍS hefur pví
nýlega ritað L.í. að nýju og mælst til pess að það
krefji ráðuneytið betri svara.
Adalfundur L.Í. Formaður FÍLÍS sat aðalfund L.í.
sem haldinn var I Reykjavík 21.-22. september.
Helstu mál fundarins voru drög að nýjum læknalög-
um, aðild að BHM, ýmsar ályktanir ofl. Að loknum
aðalfundi var haldið læknaþing, par sem rætt var um
stöðu lækna í þjóðfélaginu og síðan um reglugerð
fyrir heilsugæslustöðvar, sem L.f. hafði fengið til
umsagnar. Hefur nánar verið greint frá fundinum í
fréttabréfi.
Formannarádstefna L.í. Ráðstefnan var haldin í
mars sl. Af fjárhagsástæðum hefur FÍLÍS ekki sent
fulltrúa heim, en að pessu sinni sat Jón Sigurðsson
fyrrverandi formaður FÍ LIS fundinn og sendi síðan
stjórn stutta samantekt um helstu mál fundarins, en
rætt var um kjaramál, skattamál, atvinnumál, trygg-
ingamál, framhaldsmenntun lækna ofl.
FÍLUMHEIL. Innan FÍLÍS er FÍLUMHEIL eina
aukafélagið. Félagið hefur starfað blómlega en
starfsemin er svæðabundin og því nokkuð mismun-
andi eftir fólksfjölda á hverjum stað. Félagið hefur
mikil samskipti við félög heimilislækna á íslandi og
hefur beitt sér I mörgum hagsmunamálum heimilis-
lækna. Formaður félagsins er Þórarinn Gíslason,
Uppsölum og í félaginu eru 26 manns.
FÚL. Samskipti við FÚL hafa verið I lágmarki.
Stafar pað án efa af miklu annríki FÚL-manna I
sambandi við launadeilu lækna sl. sumar. Fulltrúi
FÍLÍS sat I nóvember 1980 fund NRYL I Helsinki,
sem fulltrúi FÚL, en nú var NRYL fundurinn
haldinn á íslandi í júní og pví purfti aðstoðar FÍLfS
ekki með að pessu sinni.
Önnur svædafélög. Skýrsla fyrri stjórna, aðalfund-
argerð og félagatal voru send félögum íslenskra
lækna í Bretlandi og N-Ameríku og bárust sambæri-
leg plögg frá hinu fyrrnefnda. Að öðru leyti hefur
ekki verið um samband við pessi félög að ræða.
Læknabladið. Læknablaðið berst nú reglulega
áskrifendum. Árgangar blaðsins 1978 og 79 leiddu til
margra bréfaskrifa fyrri stjórna við blaðið, par sem
pessir árgangar bárust ekki meðlimum FÍLÍS. Leyst-
ist málið á pann veg, að formanni FfLÍS bárust fimm
pungir kassar, innihald 50 eintök af hverju tölublaði
ársins 1979. Hefur pessum blöðum verið dreift eftir
megni.
Adalfundur sænska læknafélagsins. 14.-15. nó-
vember sl. hélt sænska læknafélagið aðalfund sinn í
Stokkhólmi. L.Í. var boðið að senda fulltrúa og að
beiðni L.í. sat formaður FÍLÍS fundinn. Helstu mál
fundarins voru aðild að SACO/SR, menntunarmál