Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Síða 2
fIMMTudagur 29. MarS 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
notuðu meira en
þúsund tonn af olíu
Fyrsti súrálsfarmurinn kom til Reyðarfjarðar í gær en siglingin frá Ástralíu tók 45 daga,
að sögn Davids Moseley skipstjóra. Reynt var að halda eldsneytiseyðslu í lágmarki á
leiðinni en samt þurfti 1.062 tonn af olíu. Skipstjórinn verður í fimm mánuði að heiman
í þetta skiptið, á meðan bíða hans heima kona og tvö börn.
Fólk á Reyðarfirði fylgdist með
áhöfninni þegar flutningaskipið Pine
Arrow sigldi inn fjörðinn í gær með
fyrsta súrálsfarminn. „Það voru ör-
ugglega hundruð manna sem fylgd-
ust með okkur sigla inn fjörðinn og
fögnuðu okkur við komuna. Ég er
mjög stoltur af því að koma með
fyrsta farminn,“ segir David Moseley,
skipstjóri Pine Arrow.
Pine Arrow er 190 metra langt og
48 þúsund tonn af þyngd og er það
stærsta sem lagt hefur að bryggju í
Reyðarfirði. Súrálsfarmurinn sem
byrjað verður að landa í dag er 39
þúsund tonn sem á eftir að skila af
sér ríflega 20 þúsund tonnum af áli.
Gert er ráð fyrir tuttugu förmum sem
þessum á ári þegar álverið í Reyðar-
firði hefur tekið til starfa að fullu.
Siglt frá Ástralíu
Súrálið kemur frá vesturhluta
Ástralíu og segir Moseley skipstjóri
siglinguna hafa tekið 45 daga til að
halda eldsneytiseyðslu skipsins í lág-
marki. Ef ekki hefði verið tekið til-
lit til eyðslunnar segir hann ferðina
hingað til lands hafa getað verið um
fjórum dögum styttri. „Siglingin gekk
vel og veðrið var að mestu leyti gott,
nema við lentum í slæmu veðri fyrir
sunnan Kanaríeyjar,“ segir David.
Þann 3. mars stoppaði skipið í
Höfðaborg til þess að taka olíu en að
öðru leyti var siglt í einum rykk. Skip-
ið eyðir 23,6 tonnum af olíu á hverj-
um sólarhring að meðaltali að sögn
skipstjórans og þurfti því 1.062 tonn
af olíu til að komast með súrálið til Ís-
lands. David segir það taka um fimm
daga að afferma skipið og vonast hann
til þess að geta skoðað sig aðeins um
á Íslandi á meðan dvölinni stendur
en hann var djúpt snortinn af útsýn-
inu þegar hann sigldi inn Reyðarfjörð.
„Ég er yfirleitt um borð í skipinu þegar
er verið að ferma það en get leyft mér
að vera aðeins meira frá á meðan á af-
fermun stendur,“ segir David.
Óvenju langur túr
David hefur unnið á flutninga-
skipum frá sautján ára aldri og er því
nokkuð vanur fjarverunni frá fjöl-
skyldu og vinum sem því fylgir. Að
öllu jöfnu vinnur hann í fjóra mánuði
og á frí í fjóra. Túrinn í þetta skipt-
ið mun þó standa í fimm mánuði og
það sé erfitt. „Ég bý á Englandi og á
konu og tvö börn þar. Auðvitað er oft
erfitt að vera fjarverandi svona lengi
en ég fæ góð frí inni á milli,“ segir
David. Internet og tölvupóstur hafa
breytt miklu í gegnum árin og segir
David lífið um borð vera allt annað
nú orðið. Hann og konan hans skipt-
ast á tölvupósti daglega og þannig
getur hann fylgst með fjölskyldunni
og hún með honum. Áður en skipið
varð internettengt þurfi að stíla bréf
til hans á fyrirtækið sem síðan var
komið til næstu hentugu hafnar sem
stoppað yrði í.
Næstu viðkomustaðir Pine Arrow
verða Antwerpen í Belgíu og Bremen
í Þýskalandi en þangað verður sóttur
farmur sem siglt verður með til Írans,
Barein og Abu Dhabi.
Minni mengun
Óðum styttist í að álverið á Reyð-
arfirði taki til starfa en framleiðslu-
geta þess verður 346 þúsund tonn
á ári. Í álverinu munu um fjögur
hundruð manns starfa. Til þess að
framleiða eitt tonn af áli þarf tvö tonn
af súráli en það finnst helst í Karíba-
hafinu, Ástralíu og Afríku.
Framleiðsla á þessum 20 þús-
und tonnum af áli hér á landi kostar
35.377 tonn af útblæstri koltvísýrings
þegar flutningurinn til landsins er
tekinn inn í myndina en útblásturinn
við flutninginn einan og sér er 3.377
tonn. Í kolaorkuveri myndi fram-
leiðslan menga tíu sinnum meira og
útblásturinn við framleiðslu á sama
magni vera 320 þúsund tonn af kol-
tvísýringi ef enginn flutningur er
tekinn inn í myndina. Framleiðsla í
gasorkuveri myndi menga sex sinn-
um meira eða um 200 þúsund tonn
af koltvísýringi samkvæmt tölum frá
Orkusetrinu.
HjörDíS rut SigurjÓnSDÓttir
blaðamaður skrifar: hrs@dv.is
Pine Arrow kemur að landi Skipstjórinn
var yfir sig heillaður af útsýninu sem tók á
móti honum þegar hann sigldi skipinu inn
fjörðinn. Hann vonast til að geta skoðað sig
örlítið um áður en lagt verður af stað að nýju.
reyðarfjörður fyrsti súrálsfarmurinn
kominn til álversins og senn styttist í
eiginlega framleiðslu.
Wilson
brytjaður niður
Samkomulag hefur náðst á
milli íslenska ríkisins og Ness-
kipa, sem eiga Wilson Muuga,
um að draga skipið af strand-
stað. Hugmyndin mun vera sú að
draga skipið til erlendrar bryggju
og þar verði það rifið og selt í
brotajárn.
Kostnaðinum munu ríki og
Nesskip deila að frádregnum
kostnaði við flutning skipsins og
sölu í réttu hlutfalli við framlag
þeirra. Umhverfisráðherrann
Jónína Bjartmarz fagnar þessari
niðurstöðu enda búið að vera
nokkurt bitbein undanfarið.
stal 512 krónum
Maður var, í Héraðsdómi
Reykjavíkur, dæmdur í níu mán-
aða fangelsi fyrir vörslu fíkniefna
og þjófnað en hann rauf skilorð
reynslulausnar með brotum
sínum. Maðurinn var í eitt sinn
tekinn á bíl með lítilræði af mar-
íjúana í fórum sínum en síðar
fundust rúmlega sjötíu grömm
af amfetamíni og rúmt gramm
af kókaíni á dvalarstað hans. Þá
stal hann bensíni að verðmæti
512 króna er hann ók á brott af
bensínstöð án þess að greiða fyr-
ir eldsneytið. Maðurinn á langan
sakaferil að baki.
Hraðakstur á
Kjalarnesinu
Tíu ökumenn voru stöðvað-
ir á Kjalarnesinu fyrir of hraðan
akstur í gær. Allir voru bílarnir
á yfir 105 kílómetra hraða og sá
er ók hraðast var tekinn á 120.
Með vorblíðunni hefur lögreglan
fylgst sérstaklega með hraðakstri
og hafa 10 til 13 bílar verið stöðv-
aðir á dag síðustu daga.
Lögreglan stöðvaði einn-
ig tvær stúlkur og handtók þær.
Ökumaðurinn var undir áhrifum
lyfja. Auk þess fannst lítilræði
af kannabis og örvandi efnum í
fórum þeirra. Tekin var skýrsla af
stúlkunum og má ökumaðurinn
búast við sviptingu ökuleyfis.