Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Side 6
fimmtudagur 29. mars 20076 Fréttir DV
Láta undan hávaðanum
Raddheilsa leikskólakennara er bágborin.
Hávaði yfir hættumörkum og of langur
ómtími hljóðs veldur því að mjög reynir á
raddstyrk þeirra til að koma áleiðis
fræðslu og fyrirmælum. Áberandi er hér á
landi hversu lágur líf- og starfsaldur leik-
skólakennara er.
„Hámark raddar er hundrað desíbil,
þetta er það mikill hávaði að rödd-
in ræður ekki við þetta. Rödd sem
er hás, rám eða gefur sig berst illa
og skilar ekki alltaf öllum talhjóð-
um til áheyrenda. Auk þess verður
rödd sem er misbeitt óáheyrileg og
getur farið í taugarnar á þeim sem á
hlusta,“ segir Valdís Jónsdóttir, dokt-
or í talmeinafræði.
Mikill meirihluti leikskólakenn-
ara kvartar undan raddveiluein-
kennum. Mælingar sýna hávaða á
leikskólum sem getur valdið óbæt-
anlegu tjóni á heyrn þannig að sam-
kvæmt lögum ættu leikskólabörn og
starfsmenn að bera heyrnarhlífar.
Mjög reynir á raddir leikskólakenn-
ara til að koma áleiðis munnleg-
um skilaboðum og fræðslu á þessu
fyrsta skólastigi landsins. Þegar litið
er á samanburð við nágrannaþjóðir
okkar kemur í ljós öfugþróun hér á
landi þegar kemur að líf- og starfs-
aldri leikskólakennara.
Gefast upp
Friðrik Rúnar Guðmundsson,
formaður Félags talkennara og tal-
meinafræðinga, segir vandann mik-
ið til umræðu hjá félagsmönnum.
Hann telur mjög brýnt að þessi mál
séu skoðuð gaumgæfilega þar sem
hingað til hafi meira verið fókuserað
á raddsjúkdóma. „Í slíkum hávaða
sem hefur mælst er ekki fræðileg-
ur möguleiki fyrir röddina að drífa
yfir. Það hefur aðeins tvenns kon-
ar áhrif á leikskólakennara að vinna
við þessar aðstæður allan liðlangan
daginn, annað hvort gefur röddin sig
eða viðkomandi gefst upp á starfinu,“
segir Friðrik Rúnar. „Það er hreinlega
orðin spurning hvort lögvernda þurfi
röddina sem atvinnutæki. Radd-
veilur eru algengari meðal kvenna,
kennarastarfið er kvennastétt og
reynir mjög á röddina. Til mín koma
reglulega leikskólakennarar sem eru
í vanda með röddina og eru dauð-
uppgefnir eftir vinnudaginn í þess-
um hávaða. Þeir segjast ekki megna
einu sinni að kveikja á útvarpi þegar
heim er komið eftir hinn dæmalausa
hávaða á leikskólunum.“
Gífurleg áreynsla
Aðspurð er Valdís sannfærð um
að leikskóla- og grunnskólakenn-
arar séu í hópi þeirra sem eru með
verstu raddheilsuna. Hún segir vel
þekkt að kennarar starfi í umhverfi
þar sem hávaði er mikill. „Alltof lítill
gaumur er gefinn að því hvort húsa-
kynni séu nægilega góð til að tal geti
borist að eyrum hlustenda. Rödd er
atvinnutæki og leikskólakennarar
eru í mestri hættu að lenda í radd-
örðugleikum vegna starfs síns,“ seg-
ir Valdís. „Rödd samanstendur af
hljóðum sem eiga sín takmörk. Það
er þekkt að samhljóðar drukkna í
miklum hávaða og því þurfa starfs-
mennirnir að hækka róminn til að
yfirgnæfa hávaðann. Niðurstöður
mælinga sína alltof mikinn hávaða
yfir allan vinnudaginn og það er
ljóst að áreynsla við að tala í slík-
um hávaða í marga klukkutíma er
gífurleg.“
Lítið hugað að hljóðmengun
Á vegum Félags leikskólakenn-
ara gerði starfshópur úttekt á starf-
semi leikskólanna. Björg Bjarna-
dóttir, formaður félagsins, segir
niðurstöður hópsins hafa sýnt fram
á að hávaðamengun í leikskólun-
um valdi miklu álagi og telur eðli-
legt að hafa áhyggjur af raddheilsu
leikskólakennaranna. „Það er ekki
nógu vel hugað að hljóðmengun,
byggingarnar er mjög misjafnar og
of mörg börn eru í of litlum rýmum.
Börn og starfsmenn dvelja í langan
tíma í sífelldum nið. Ég held að það
sé hægt að gera miklu betur í því að
huga að hljóðmengun í skólunum,
til dæmis með því að fækka börn-
um og stækka rýmin,“ segir Björg.
„Álagið eykst því lengur sem börnin
eru yfir daginn. Leikskólakennarar
hafa ekki næg tækifæri til að draga
sig í hlé inni á leikskólum til að njóta
næðis og anda aðeins. Starfinu hef-
ur alltaf fylgt mikið álag, vinnu með
lifandi og fjörugum börnum sem
þurfa athygli fylgir álag. Það er eig-
inlega ekki á það bætandi þegar
mikill hávaði bætist ofan á álagið.“
Stuttur starfsaldur
Meðallífaldur þeirra sem starfa
á leikskólum eru rúm þrjátíu ár og
meðalstarfsaldur sjö ár. Valdís tel-
ur skýringuna líklega hægt að rekja
til óvistvæns umhverfis í leikskól-
um og hávaða. „Það vekur athygli
hve leikskólakennarar eru almennt
ungir og hve starfsaldur þeirra er
lágur. Hér eru þeir miklu yngri og
með miklu styttri starfsaldur en
kollegar þeirra erlendis, til dæmis
í Finnlandi,“ segir Valdís. „Auðvitað
kemur fleira til en hávaði og endur-
ómun hljóðsins þegar kemur að því
að skýra þessar staðreyndir. Lang-
ur vinnutími, mikil ábyrgð og mikil
vinna fyrir lág laun eru allt áhrifa-
þættir.“
TrauSTi hafSTeinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
mánudagur 26. mars 2007 dagblaðið vísir 30. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
fréttir
Hættir
þorskeldi
DV-sport fylgir
skaða
eigin heilsu
með hávaða
leikskólabörn hafa alltof hátt:
Ærandi hávaði á
leikskólum veldur
margþættum vanda
og skaðar heilsu
barnanna og
starsfólks.
afleiðingar
hávaða eru
margir.
fréttir
Fá ekki
frjóvgun
>> Lög meina einhleypum
konum að fá tæknifrjóvgun.
Vill bara
verja sig
Prentað í morgun
Sárvantar
tónleikahús
>> Gestir Músíktilrauna
þurftu að víkja fyrir áhang-
endum Gettu betur þegar í
ljós kom að Loftkastalinn var
ekki með leyfi fyrir öllum
þessum fjölda.
fréttir
>> Grundfirðingar hafa gefist
upp á þorskeldi eftir að hafa
tapað tugum milljóna.
Kristinn Jakobsson
Kristinn Jakobsson og föruneyti voru í Frankfurt þegar DV náði tali af honum. „Það gekk alveg glimmrandi vel, gekk allt upp,“ sagði Kristinn.
Gunnar Gylfason og Sigurður Óli Þor-leifsson voru aðstoðardómarar og Jóhann-es Valgeirsson var fjórði dómari í leiknum. Kristinn lyfti gula spjaldinu þrisvar sinn-um í leiknum, öll á Azera. Tvö fyrstu mörk Pólverja komu úr föstum leikatriðum.Leikurinn fór fram á Wojska Polskiego sem er heimavöllur Legia Varsjá. Fyrir
löngu var uppselt á leikinn og sagði Krist-inn að það hefði verið mikil stemming á meðal þeirra 15 þúsund áhorfenda sem mættu.
„Þetta var skemmtilegur leikur. Póll-verjarnir slátruðu þeim strax í upphafi með tveimur mörkum á fyrstu fimm mín-útum. Það var mikil stemming á vellinum sungið og trallað allan leikinn. UEFA voru sáttir við störf mín og nú er það bara að halda áfram á sömu braut,“ sagði Kristinn í lokin.
benni@dv.is
DV Sport
mánudagur 26. mars 2007 11
Sport
Mánudagur 26. mars 2007
sport@dv.is
KR og Snæfell hófu einvígi Sitt í gæR. leiKuRinn vaR fRábæR SKemmtun þaR Sem litlu munaði að Snæfell næði að Stela SigRinum í loKin. blS. 14-15.
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum yngri en 17 ára náði merkum áfanga um helgina. Bls. 20.
Sáttir við störf Kristins Eftirlitsmaður uEFa var sáttur við störf Kristins í Póllandi
GEKK GLIMRANDI VEL
KR
byRjaR betuR
Allt um leiki
næturinnar í NBA
NBA
Mánudaginn 26. mars.
er dagblað
Fimmtudagurinn 22. febrúar er merkur dagur -
þá verður dV aftur að dagblaði
DV kemur framvegis út mánudaga, þriðjudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
brautarholti 26 105 reykjavík
Sími: 512 7000
Fréttaskot: 512 7070
dv.is
„Það er ekki nógu vel hugað að
hljóðmengun, byggingarnar
er mjög misjafnar og of mörg
börn eru í of litlum rýmum.“
ÓbæriLeGur hávaði
meirihluti leikskólakennara kvartar
undan bágborinni raddheilsu í starfi
sínu. Hér á landi eru
leikskólakennarar yngri og
starfsaldur þeirra lægri en víða
erlendis.
friðrik Guð-
mundsson „Ekki
fræðilegur mögu-
leiki fyrir röddina að
drífa yfir hávaðann.“
björg bjarna-
dóttir „Ekki á það
bætandi þegar
mikill hávaði bætist
ofan á álagið.“
dv Mynd STefán