Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Síða 8
Fatlaðir einstaklingar sem reiða sig
á Ferðaþjónustu fatlaðra til að kom-
ast á milli staða þurfa að panta ferðir
með dags fyrirvara. Reyndar stendur
til að stytta þennan frest niður í þrjá
klukkutíma en þá verða farþegarnir
að greiða aukagjald.
Ferðaþjónusta fatlaðra ekur fólki
sem ekki getur komist sjálft á milli
staða. Sveitarfélögin á höfuðborgar-
svæðinu reka þjónustuna hvert fyr-
ir sig eða í smærri einingum. Fram-
kvæmdastjóri Sjálfsbjargar vill að
þjónustan verði aukin. Forsvarsmenn
ferðaþjónustunnar segjast geta boðið
betri þjónustu ef greitt er fyrir hana.
Þarf að panta með fyrirvara
„Ég er stundum að borga 30 þús-
und krónur fyrir tveggja mánaða
akstur hjá ferðaþjónustunni,“
segir Andri Valgeirsson, einn
meðlima Ný-ung, ungliða-
hreyfingar Sjálfsbjargar.
Andri getur gengið
með herkjum en er bund-
inn rafmagnshjólastól fyr-
ir allar lengri ferðir. Hann
hefur nýtt sé ferðaþjónust-
una síðan hann var sex ára
og er nokkuð ánægður með
þá þjónustu. „Maður þarf að
panta bíl fyrir klukkan
fjögur daginn áður
en ferðin skal hefj-
ast gegn 140 króna gjaldi,“ segir Andri
sem segir að það geti oft verið erf-
itt að komast í bíó ef vinirnir hringja
ekki með nógu góðum fyrirvara. Raf-
magnshjólastólar vega um eitt hundr-
að kíló og því er ekki mögulegt fyr-
ir einn mann að lyfta þeim auk þess
sem ógerningur er að koma þeim fyr-
ir í venjulegum fólksbíl þótt vilji væri
fyrir því.
Aukin þjónusta kallar á aukin
framlög
„Þegar Strætó bs. var stofnað var
talað um að samræma þjónustuna
á höfuðborgarsvæðinu en það varð
ekkert úr því,“ segir Halldór Þórhalls-
son, deildarstjóri ferðaþjónustu fatl-
aðra í Reykjavík. Hann þjónustar ein-
göngu fólk með lögheimili í Reykjavík
sem hefur auk þess verið samþykkt
af Reykjavíkurborg til að njóta þjón-
ustunnar. Flestir þeirra sem nýta
sér aksturinn eru hreyfihamlaðir en
einnig keyra þeir aldraða
sem ekki geta notað
strætó, til að sam-
nýta bílana.
Frá og með 1. maí
verður mögulegt fyr-
ir þá sem eru bundn-
ir hjólastól að panta
ferð með þriggja tíma
fyrirvara gegn auka-
gjaldi. „Þetta snýst allt
um kostnað. Á Norður-
löndunum geta einstakl-
ingar fengið þá þjón-
ustu sem þeir þurfa
en verða þá sjálfir
að greiða auka-
gjald.“
Ferða-
þjónust-
an er með
um 30 bíla
á sínum
snærum
og ekur daglega um 700 hreyfihöml-
uðum einstaklingum auk 300 eldri
borgara. „Ef við ættum að auka þjón-
ustuna án þess að taka aukagjald fyrir
væri það einfaldlega ekki framkvæm-
anlegt, en ef fjármagnið er fyrir hendi
er allt hægt,“ segir Halldór.
Mætti vera sveigjanlegri
Halldór Sölvi Viktorsson meðlim-
ur Ný-ung notar bæði rafmagns- og
venjulegan hjólastól. Hann segir það
mikilvægt fyrir sig að geta nýtt sér
þjónustuna því hún leyfi honum að
ferðast sjálfstætt og geri hann minna
háðan foreldrum og vinum.
Halldór segir að það sé alltaf
möguleiki á að panta sendiferða-
leigubíl sem getur ekið stólunum inn í
skottið en honum þykir það þó slæmt
að flestir leigubílstjórar setja mælinn
í gang áður en þeir taka saman hjóla-
stólana, sem þeir kunna illa að fram-
kvæma, og verður oft til þess að mæl-
irinn er kominn í þúsund krónur áður
en lagt er af stað og síðan getur svipuð
upphæð lagst ofan á það þegar stóll-
inn er tekinn út. Halldór segist oft-
ast greiða um 15 þúsund krónur fyrir
tveggja mánaða keyrslu ferðaþjónust-
unnar og hann segist sáttur við þjón-
ustuna þótt hún mætti stundum vera
sveigjanlegri.
Ekki nógu gott
„Ferðaþjónusta fatlaðra er ekki
nógu góð,“ sagði Kolbrún Stefáns-
dóttir, framkvæmdastjóri Sjálfsbjarg-
ar, í samtali við DV á dögunum. Að
sögn Kolbrúnar er þar að auki ekki
næg samvinna milli sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu. Ef viðkom-
andi er staddur í Reykjavík en er með
lögheimili í Garðabæ býðst honum
einungis að panta bíl frá Garðabæ
.„Draumastaðan væri að mínu mati
sú að hægt væri að panta bíl með jafn-
lítilli fyrirhöfn og pantaður er leigu-
bíll,“ segir Kolbrún ennfremur.
Virkar betur í smærri einingum
„Við erum í ágætu samstarfi við
ferðaþjónustuna í Reykjavík og á
Álftanesi,“ segir Kristinn Rósantsson,
sem hefur ekið fyrir ferðaþjónustu
Kópavogs, Mosfellsbæjar og Garða-
bæjar í sex ár og starfað þar sem verk-
stjóri síðastliðin þrjú og hálft ár. „Það
er mín persónulega skoðun að það sé
minni hætta á að kerfi ruglist ef það
fimmtudagur 29. mars 20078 Fréttir DV
SólarhringS fyrirvari
Fatlaðir þurfa að panta akstur
með eins dags fyrirvara. Þetta
gerir þeim erfitt fyrir ef þeir ætla
að fara á milli staða með skömm-
um fyrirvara. Ferðaþjónusta fatl-
aðra hyggst breyta þessu þannig
að hægt verði að panta bíl með
þriggja klukkutíma fyrirvara en
þá þarf að greiða aukagjald.
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
Skorri GíSlASon
Andri og Halldór Sölvi félagarnir í Ný-ung vildu að ferðaþjónustan væri sveigjanlegri en hún er en eru samt sáttir.
kolbrún
Stefánsdóttir
framkvæmdastjóri
sjálfsbjargar vill
auka samvinnu
sveitarfélaga á
höfuðborgar-
svæðinu.
„Þetta snýst allt um kostnað.
Á Norðurlöndunum geta ein-
staklingar fengið þá þjónustu
sem þeir þurfa en verða þá
sjálfir að greiða aukagjald.“