Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Side 9
DV Fréttir fimmtudagur 29. mars 2007 9
Ný lög veita lögreglu heimild til að sekta ef lagt er ólöglega í
stæði merkt fötluðum. Talsmenn fatlaðra fagna lagasetning-
unni en vilja hærri sektir og viðhorfsbreytingu almennings.
Framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs segir lögin litlu breyta.
Breytir litlu
fyrir fatlaða
„Fólk hefur alltaf haldið að það
mætti sekta þá sem leggja í stæði
fatlaðra en það er almennur mis-
skilningur,“ segir Valdimar Leó
Friðriksson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins og fyrsti flutnings-
maður nýrra umferðarlaga um bif-
reiðastæði fatlaðra.
Hingað til hefur framkvæmda-
valdið haft loðna heimild til að
sekta fólk sem leggur í stæði merkt
fötluðum. Í framkvæmd þýðir þessi
lagabreyting að ef hreyfihamlaður
einstaklingur ætlar sér að leggja í
sitt stæði en getur það ekki vegna
þess að einhver sem ekki hefur rétt
til þess hefur tekið stæðið, þá get-
ur sá fatlaði hringt á lögreglu og
látið hana framfylgja lögunum á
staðnum. Ef aftur á móti lögbrjót-
urinn kemst undan þá getur orð-
ið erfitt að sanna brotið. „Almenn-
ingur þarf að vita af þessum lögum
og þá munu þau vonandi hafa fæl-
ingarmátt,“ segir Valdimar.
Viðhorfsbreytingu í stað
sektarhörku
„Nú virðist vera komin óyggj-
andi lagaheimild þess að sekta alla
þá sem ekki hafa P-skírteini hreyfi-
hamlaðra og leggja í slík stæði,“
segir Arnór Pétursson, fulltrúi hjá
Tryggingastofnun ríkisins og fyrr-
verandi formaður Sjálfsbjargar, um
nýja lagasetningu Alþingis. Arnór
segir að þetta hafi lengi verið bar-
áttumál hreyfihamlaðra því hing-
að til hafi einungis verið lagaheim-
ild til að sekta þá sem leggja í stæði
með stöðumælum en ekki þau
stæði sem eru fyrir utan opinberar
byggingar og verslunarkjarna svo
eitthvað sé nefnt. Arnór bendir á
að þótt nú megi sekta þá sem leggja
ólöglega í stæði hreyfihamlaðra þá
kjósi hann fremur viðhorfsbreyt-
ingu en hörku í beitingu sekta.
Rúnta þar til stæði losnar
„Ein leið væri að hækka sekt-
ir verulega enda eru 5.000 krón-
ur ekki nógu mikið,“ segir Arnór
og bendir á að í mörgum ríkjum
Bandaríkjanna séu sektir frá 100 til
150 dollara eða því sem nemur sjö
til tíu þúsund krónum og er verð-
lag þar mun lægra en hér. Arnór
starfar í Tryggingastofnun ríkisins
á horni Laugavegs og Snorrabraut-
ar. Þar fyrir utan eru tvö stæði frá-
tekin fyrir hreyfihamlaða. Arnór
segist ítrekað hafa tekið eftir því að
ólöglega sé lagt þar og bendir á að
margir hreyfihamlaðir viðskipta-
menn hafi átt erfitt með að fá stæði
á þessu svæði vegna þess að aðrir
hafi lagt í stæðin í heimildarleysi.
„Það er ekki hægt að bíða eftir
stæði fyrir utan Tryggingastofn-
un þar sem öll umferð um Lauga-
veg myndi stöðvast,“ segir Arnór
og tekur dæmi af fólki sem hefur
reynt að rúnta um svæðið þar til
stæði losnar. Í mörgum tilfellum
hefur þetta fólk gefist upp á bið-
inni og lagt ólöglega til að geta rek-
ið erindi sín.
Lögin breyta engu
Stefán Haraldsson fram-
kvæmdastjóri Bílastæðasjóðs hefur
kynnt sér nýju lögin. „Lögin munu
ekki breyta neinu í framkvæmd.
Eftir sem áður er heimild til að
bæta álagningu á stöðumælabrot
eða sekt,“ segir Stefán og leggur
áherslu á að erfitt verði fyrir lög-
reglu að framfylgja sektarákvæðinu
sem verður til þess að lögin muni
breyta afskaplega litlu fyrir hreyfi-
hamlaða. Stefán tekur þó fram að
hann fagni því að verið sé að víkka
út heimildir til að refsa þeim sem
leggja ólöglega í stæði.
Í samtali við varðstjóra lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu kom
fram að lögreglan muni áfram beita
bæði sekt og álagningu eftir því sem
við á hverju sinni.
Fagnar lagasetningu
„Þetta er mikið réttlætismál og
ég fagna því að það sé komið í lög,“
segir Kolbrún Stefánsdóttir fram-
kvæmdastjóri Sjálfsbjargar um hin
nýju lög. Sjálfsbjörg hefur lengi
barist fyrir þessari lagasetningu og
kemur það á óvart að hún hafi ekki
verið til staðar. Kolbrún benti enn-
fremur á að stæði fyrir fatlaða séu
yfirleitt of fá við opinberar bygg-
ingar og stærri þjónustukjarna.
SólarhringS fyrirvari
er smærra í sniðum og það yrði síð-
ur en svo til bóta fyrir farþegana að
hafa það of stórt,“ bætir hann við. Ef
öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu myndu sameinast um þjónust-
una yrði slíkt fyrirtæki að skipuleggja
akstur á þriðja þúsund farþega dag
hvern. Kristinn bendir á að stund-
um hringi þjónustur sveitarfélaganna
sig saman og reyni að komast að því
hvort mögulegt sé að senda einn bíl á
tvo kúnna þótt þeir séu ekki úr sama
sveitarfélagi.
„Það þarf sérstaka persónuleika
til að aka hjá ferðaþjónustunni. Menn
þurfa að vera þolinmóðir og fórnfúsir
til að aka þessum bílum,“ segir Krist-
inn og bendir á að fyrirtækið hafi ver-
ið heppið með mannskap hingað til
þótt þess séu dæmi að bílstjóri hafi
gefist upp eftir þriggja vikna starf sök-
um álags.
Arnór Pétursson fyrrverandi formaður sjálfsbjargar vill viðhorfsbreytingu.
Ferðaþjónusta fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu farnar eru
á þriðja þúsund ferðir daglega með fatlaða og aldraða farþega
sem ekki geta nýtt sér þjónustu strætisvagna.
dV myndiR gúndi