Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 2
mánudagur 2. apríl 20072 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Mikið um
ölvunarakstur
Fimmtán ökumenn voru tekn-
ir fyrir ölvunarakstur á höfuð-
borgarsvæðinu um helgina. Flest-
ir voru stöðvaðir í Reykjavík og
eru ökumennirnir á ýmsum aldri.
Sá yngsti er átján ára en tveir elstu
ökumennirnir eru á sjötugsaldri.
Einn ölvuðu ökumannanna hafði
aldrei fengið bílpróf. Á þriðja tug
umferðaróhappa voru tilkynnt til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu yfir helgina. Sautján ára piltur,
sem er nýkominn með bílpróf,
missti stjórn á bíl sínum í Heið-
mörk í nótt. Bíllinn hafnaði utan
vegar en með piltinum í för voru
fjögur önnur ungmenni, sem öll
eru 16 ára, og þykir mildi að eng-
an sakaði.
Ungir
partýgestir
Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu þurfti að rýma
samkomusal á Laufásvegi þar
sem ríflega hundrað ung-
menni voru að skemmta sér.
Partýhaldarinn var fimmtán
ára gamall og auglýsti opið
partý þar sem aðgangseyrir
voru 1.500 krónur og áfengi
innifalið. Þegar lögregla kom á
staðinn kom í ljós að gestirnir
voru á aldrinum fjórtán ára til
átján ára og mikil ölvun meðal
þeirra. Ólæti brutust út þegar
lögreglan stöðvaði skemmt-
anahaldið. Skömmu síðar var
lögregla kölluð út aftur þar
sem partýhaldarinn ungi hafði
komið aftur með hóp ung-
menna og haldið fjörinu áfram.
Réðust á
lögreglumenn
Tveir lögreglumenn höf-
uðborgarlögreglunnar voru
fluttir á slysadeild aðfarar-
nótt sunnudags eftir að tveir
menn réðust á þá og veittu
þeim áverka. Kallað var á
lögregluna eftir að mennirn-
ir tveir voru með ólæti fyrir
utan skemmtistaðinn Sólon
í miðborg Reykjavíkur. Þegar
lögreglumenn komu á staðinn
réðust mennirnir samstund-
is á þá og þurfti mikið til að
koma árásamönnunum í
handjárn. Árásarmennirnir
gistu fangaklefa um nóttina.
Auglýsing Frjálslynda flokksins
„umræðan snýst ekki um staðreyndir,
heldur ímyndir og hræðslu,“ segir Helga
Ólafs, upplýsingafulltrúi alþjóðahúss.
„Mér svelgdist á morgunkaffinu
þegar ég las þessa auglýsingu. Það
er greinilegt að Frjálslyndir ætla að
ala á andúð á útlendingum í að-
draganda kosninga. Þessi auglýsing
er skýrt dæmi um það og fátt gott
sem auglýsingin segir um erlent
vinnuafl. Mér finnst flokkurinn ekki
stækka af þessari auglýsingu,“ seg-
ir Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins.
Frjálslyndi flokkurinn er að hefja
sína kosningabaráttu fyrir alþingis-
kosningarnar tólfta maí. Í gær birtist
heilsíðuauglýsing frá flokknum þar
sem varað er við ýmsum vandmál-
um sem geta skapast með óheftum
innflutningi erlends vinnuafls. Þar
er meðal annars varað við því að of
mikið álag skapist á velferðarkerf-
ið og þær atvinnugreinar sem út-
lendingar eru hlutfallslega flestir í
dragist aftur úr í launaþróun.
Helga Ólafs, upplýsingafulltrúi
Alþjóðahúss, hefur áhyggjur af því
að þjóðernisflokkur sé í smíðum á
Íslandi í formi Frjálslynda flokks-
ins sem vilji vernda hefðbundið
samfélag og koma upp hatri gegn
útlendingum. „Algengar klisjur í
tengslum við innflytjendur eru að
þeir taki vinnu frá Íslendingum, að
þeir eyðileggi íslenska menningu,
sögu og tungu, ýti undir glæpi og
að þeir nenni ekki að vinna. Um-
ræðan sem fór af stað vegna Frjáls-
lynda flokksins er stórhættuleg og
bara til þess fallin að fá aukið fylgi
meðal flokksins. Umræðan snýst
ekki um staðreyndir, heldur ímynd-
ir og hræðslu,“ segir Helga. Sigurjón
Þórðarson, þingmaður Frjálslyndra,
er þeirrar skoðunar að umræðan sé
nauðsynleg. Hann skilur ekki þess-
ar upphrópanir í stað þess taka þátt
í málefnalegri umræðu. „Upplýstir
fulltrúar útlendinga hér á landi ættu
í raun að fagna því að við séum að
taka þennan slag. Við viljum ræða
þessi mál en ráðandi öfl vilja halda
þessu niðri. Að mínu mati eru þessa
upphrópanir vafasamar, enn og aft-
ur er verið að reyna að komast hjá
því að fara yfir þetta,“ segir Sigurjón.
trausti@dv.is
Kosningabarátta Frjálslynda flokksins er hafin:
Stórhættuleg umræða um innflytjendur
Grímur Gíslason
látinn
Grímur Gíslason fréttarit-
ari og veðurathugunarmaður á
Blönduósi lést á sunnudag, 95
ára að aldri. Grímur var gerður
að heiðursborgara Blönduóss
þegar hann varð níræður og var
styttan af veðurspámanninum á
Blönduósi tileinkuð honum.
Grímur var fréttaritari Ríkisút-
varpsins á þriðja tug ára og muna
margir eftir pistlum hans um
aflabrögð í húnvetnskum ám og
fleira. Grímur fæddist í Þórólfs-
tungu í Vatnsdal þann 10. janúar
árið 1912.
„Í stað þess að vera þakklátir okkur
fyrir að hafa dregið þá upp úr drullu-
forinni og komið þeim hjá því að
lenda í fangelsi þá senda þeir okkur
þessar kveðjur,“ segir Pálmi Haralds-
son, stjórnarformaður flugfélagsins
Iceland Express. Fyrri eigendur flug-
félagsins saka Pálma um að hafa unn-
ið að því með refsiverðum viðskipta-
háttum að knésetja flugfélagið til þess
eins að hirða það af þeim á fimmtán
milljónir, eins og hrægammur.
Pálmi segir að sér svíði und-
an þessum ásökunum. „Þeir Ólafur
Hauksson og félagar standa í þeirri
meiningu að ég hafi keyrt þá niður
þegar ég sat í stjórn Icelandair. Það er
ekki rétt. Þeir ráku þetta lóðbeint nið-
ur án utanaðkomandi aðstoðar,“ seg-
ir hann.
Skulduðu rimlagjöldin
Í nóvember árið 2004 keypti Pálmi,
kenndur við eignarhaldsfélagið Fons,
flugfélagið Iceland Express. Það hafði
þá verið rekið með talsverðu tapi frá
stofnun, árið 2003. Eins og Pálmi lýs-
ir því, þá var félagið þegar gjaldþrota
og aðeins fáeinir dagar þangað til
rekstur myndi stöðvast. „Það er rétt
að við greiddum fimmtán milljón-
ir fyrir helminginn af hlutafénu. En
þar til viðbótar lögðum við félaginu til
250 milljónir í aukið hlutafé. Það var
nauðsynlegt til þess að hægt væri að
halda áfram,“ segir hann.
Pálmi segir að af þessum 250 millj-
ónum hafi tugir milljóna farið í það
að greiða svokallað vörslufé, en fyrir
vanskil á því liggja fangelsisrefsingar.
„Þarna voru rimlagjöldin í vanskilum,
þannig að ef félagið hefði farið í gjald-
þrot þá hefðu þessir ágætu stofnend-
ur, allir í forstjóraleik, farið rakleitt á
bak við lás og slá. Yfirlýsingar þeirra
núna eru drifnar áfram af hreinni og
klárri öfund,“ segir Pálmi.
Snilldar hugmynd
Fyrri eigendur Iceland Express
vilja meina að ástæðan fyrir erfiðum
rekstri hafi verið ólögmætir viðskipta-
hættir Icelandair. Ólafur Hauksson,
sem talað hefur fyrir hönd fyrri eig-
enda, segir að þeim hafi verið stillt
upp við vegg. „Það er mjög erfitt að
verðmeta fyrirtæki þar sem enginn
þorir að kaupa og enginn þorir að
koma inn með peninga. Það var að-
eins einn aðili sem kom og sagðist
skyldi hirða þetta,“ segir Ólafur.
Hann segir að leitað hafi verið að
nýjum fjárfestum til þess að styrkja
rekstur félagsins, nánast því frá stofn-
un þess. Iceland Express fór af stað
með átta til níu milljóna hlutafé, en á
móti kom að flugvélar og áhafnir voru
leigðar. „Þetta var snilldar viðskipta-
hugmynd, sem sannast á því að þeg-
ar Pálmi og þeir taka við þá gekk þetta
ákaflega vel,“ segir hann.
Getulaus samkeppnisyfirvöld
Ólafur segir að fyrir utan þær
fimmtán milljónir sem fengust fyrir
89 prósent hlutafjárins í Iceland Ex-
press, hafi Pálmi vissulega lagt til 250
milljónir í reksturinn. Þessu til við-
bótar hafi Pálmi svo keypt síðustu
átta prósent upphaflegra eigenda í
september 2005. Þá var félagið metið
á 1,1 milljarð króna, og fengu Ólafur
og félagar því 88 miiljónir til þess að
skipta á milli sín.
„Ég átti í raun ekki von á öðru en
að Pálma þætti þetta vera vanþakk-
læti af okkar hálfu. Hann vill vænt-
anlega draga það fram að á endanum
hafi menn fengið meiri fjármuni. Þá
er hann bara ekki að segja alla sög-
una. Það er vegna þess að hann var
í stjórn Icelandair þegar Icelandair
gekk hvað lengst í sínum nettilboð-
um,“ segir Ólafur. Hann ítrekar að
hann og fyrri eigendur Iceland Ex-
press telji ógæfu félagsins hafa stafað
af undirboðum frá Icelandair. „Þarna
erum við fyrst og fremst að gagnrýna
getuleysi samkeppnisyfirvalda.“ Hann
segist ekki muna til þess að skuldir fé-
lagsins á svokölluðum rimlagjöldum
hafi verið miklar. „Þetta var eitthvað
óverulegt held ég.“
Pálmi Haraldsson í Fons segist hafa bjargað fyrri eigendum Iceland Express frá gjald-
þroti og fangelsisvist með því að kaupa félagið og greiða rimlagjöldin. Ólafur Hauksson
og fyrri eigendur segja Pálma hafa byrjað á því að knésetja flugfélagið og hirt það svo af
þeim eins og hrægammur.
SLUPPU VIÐ GJALD-
ÞROT OG SVARTHOL
SiGtryGGur Ari jÓHAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Pálmi Haraldsson pálmi segir að enginn hafi viljað kaupa Iceland
Express, svo illa hafi fyrirtækið verið statt. Fyrrum eigendur telja að
reksturinn hafi gengið illa, fyrst og fremst vegna ólögmætra
tilboða frá Icelandair, og telja pálma standa þar á bak við.