Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Síða 13
DV Sport mánudagur 2. apríl 2007 13 „Við erum á réttri leið en hvort það dugi til skal ósagt látið. Síðustu fimm leikir hafa verið mjög góðir hjá okkur og núna eru komnir tveir sig- urleiki í röð. Þetta er algjörlega nýtt lið og ég vildi óska þess að tímabilið yrði lengt um tvo mánuði“, sagði Ól- afur Sigurjónsson sem átti stórleik og skoraði 10 mörk í gær þegar ÍR vann mikilvægan útisigur á Stjörn- unni. Það eru orð að sönnu hjá Ólafi að ÍR-ingar séu á réttri leið en stóra spurningin er sú hvort endasprett- urinn komi einfaldlega of seint? Gestirnir byrjuðu afar illa í leikn- um í gær og lentu snemma fjórum mörkum undir. Framliggjandi vörn gestanna virkaði illa og Erlendur Ísfeld, þjálf- ari ÍR, brá snemma á það ráð að fara í 6-0. Á þessum kafla hélt Ólafur Sig- urjónsson gestunum inn í leiknum en hann skoraði fyrstu fimm mörk þeirra í leiknum. Um miðjan fyrri hálfleik tókst ÍR- ingum að ná forystu í fyrsta skipti í leiknum. Þeir voru staðráðnir í að láta hana ekki af hendi og leiddu með þremur mörkum í leikhléi, 13- 16. Gestirnir héldu áfram að leiða í seinni hálfleik en heimamenn voru aldrei langt undan. Innkoma Árna Þorvarðarsonar í marki Stjörnunnar hleypti lífi í heimamenn og fyrir til- stuðlan hans tókst Stjörnumönnum að jafna leikinn. Spennan var gífurleg á þessum kafla og þegar rétt rúmar fimm mín- útur voru eftir var staðan 23-23. Tvö mörk í röð hjá gestunum komu þeim í vænlega stöðu og staðan skyndi- lega 24-26, gestunum í vil. Eins og oft áður í vetur gerðu gestirnir sér erfitt fyrir á lokakaflanum þegar Ól- afur Sigurjónsson fékk tækifæri til að gera út um leikinn en hann lét Roland Eradze verja frá sér. Lárus Ólafsson vildi ekki vera minni maður hinum megin og varði vítakast á ögurstundu. Stjörnunni tókst hins vegar að minnka muninn í eitt mark þegar rúm hálf mínúta var eftir. Það fór að fara um marga stuðningsmenn ÍR en gestunum tókst að halda út og innbyrða gífur- lega mikilvægan sigur. Reynslan vóg þungt Reynslan hjálpaði gestunum mikið í leiknum í gær en þeir Ólafur Sigurjónsson og Erlendur Stefáns- son skoruðu 15 af 26 mörkum gest- anna. „Það skiptir miklu máli að vera með reynslubolta í kringum þessa ungu stráka og við sjáum það síð- asta stundarfjórðunginn að ég og Erlendur erum alveg búnir. Fyrir vikið var sóknarleikurinn mjög stað- ur hjá okkur og við lentum í miklum vandræðum á þessum kafla. Það sem gerði útslagið var hins vegar varnarleikurinn og ég vil meina að þetta hafi unnist á vörninni í lok- in. Ég get hins vegar alveg viðurkennt að það fór um mig þarna í lokin en reynslan er samt þannig að maður gerir aldrei sömu mistökin tvisvar“, sagði Ólafur Sigurjónsson. Kristján Halldórsson, þjálfari Stjörnunnar, var allt annað en sátt- ur við leik sinna manna. „Við höf- um enga afsökun fyrir þessu. Stað- reyndin er sú að ég er með lið sem heldur að það sé komið í frí og ég næ ekki að koma þeim í skilning um að þetta sé ekki búið hjá okkur. Við eigum fjóra leiki eftir og erum að berjast við KA um sæti í Deilda- bikarnum þannig að við erum langt frá því að vera komnir í frí. Vissulega hvíldum við einhverja lykilmenn hér í dag en við erum samt að spila við lið sem ég tel okkur geta klárað. Þetta var skömminni skárra í seinni hálfleik en það var samt sem áður einhver doði yfir þessu hjá okk- ur. Við fengum tækifæri til að klára þetta en vorum hreinlega ekki til- búnir þegar á reyndi.“ „Við eigum fínan séns ef við höld- um áfram að spila svona, en það er ljóst að það er bara að duga eða drepast fyrir okkur í þessari stöðu sem við erum komnir í. Það verður að koma í ljós hvort okkur tekst að bjarga okkur frá falli en þetta gengur vel eins og er og vonandi höldum við áfram svona“, sagði Erlendur Stefánsson, en hann átti frábæran leik fyrir ÍR-inga í gær og skoraði fimm mörk ásamt því að vera frábær í varnarleiknum. Stjarnan olli miklum vonbrigð- um í gær, en örfáir leikmenn geta borið höfuðið hátt eftir leikinn í gær. Björn Óli Guðmundsson dró vagn- inn fyrir sína menn í gær og einn- ig áttu Árni Þorvarðarson og Ívar Markússon góða innkomu. Þeir komu ferskir inn og virtust hafa áhuga á verkefninu. Gestirn- ir geta verið sáttir við sinn leik en öllu fleiri leikmenn gestanna lögðu sitt af mörkum. Ólafur Sigurjónsson og Erlendur Stefánsson drógu vagn- inn sóknarlega, en liðsheildin skóp þennan frábæra útisigur hjá ÍR-ing- um. Varnarleikurinn var öflugur og ljóst er að lokaumferðirnar verða spennuþrungnar. ÍR-ingar eru með lífsmarki og það gæti farið svo að þeim takist hið ómögulega, að bjarga sér frá falli úr DHL- deild karla. Gunnar Jarl Jónsson „Reynslan er þannig að menn gera aldrei sömu mistökin tvisvar“ ÍR-ingar eygja enn von um að halda sæti sínu í DHL deild- inni eftir góðan útisigur á Stjörnunni í Garðabæ. Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildinni, og ljóst er að ÍR þarf að vinna minnst tvo leiki til að halda sæti sínu í deildinni. Á vítalínunni Ólafur Sigurjónsson býr sig undir að taka vítakast. Líflegur Erlendur ísfeld, þjálfari ír, tekur þátt í leiknum af lífi og sál. Komnir í frí Kristján Halldórsson segist vera með leikmenn sem halda að þeir séu komnir í frí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.