Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Blaðsíða 14
mánudagur 2. apríl 200714 Sport DV Lið Hauka og Fylkis hafa hvor- ugt verið að spila sérstaklega vel eftir áramót og eru bæði í mikilli hættu á að falla úr efstu deild karla. Gríðar- lega mikilvægt var því fyrir bæði lið að krækja í bæði stigin úr þessum leik. Fyrri hálfleikur fór fjörlega af stað og virtust menn vera gríðarlega vel stefndir fyrir þessum leik. Haukarn- ir fóru nokkuð vel að stað í sókninni til að byrja með og náðu frumkvæð- inu snemma leiks. Þegar um 8 mín- útur voru liðnar var staðan 6--3 fyr- ir Haukum en þá settu heimamenn í gírinn og náðu að jafna metin. Gríðarlega jafnt var á með liðun- um en þegar flautað var til hálfleiks leiddu Fylkismenn með einu marki, 13-12. Fyrri hálfleikurinn var örlít- ið undarlegur vegna þess að Haukar fengu ein 8 vítaköst á meðan Fylkir fékk aðeins eitt. Gríðarleg barátta Seinni hálfleikur fór einnig vel af stað og ljóst var að það stefndi í hörku lokakafla. Haukar vörðust vel en áttu í erfiðleikum með að komast framhjá Hlyni Morthens sem varði eins og líf hans lægi við allan leikinn. Eftir því sem leið á leikinn varð leik- urinn harðari og harðari og gaman var að sjá að bæði liðin sýndu gríð- arlega baráttu og var einbeiting í al- gjöru hámarki. Þegar um fimmtán mínútur voru eftir af leiknum þá virtust samt Fylk- ismenn vera að ná einhversskon- ar undirtökum í leiknum þegar þeir náðu að komast þremur mörkum yfir. Hugmyndasnauðir Haukar Þegar Fylkismenn voru komn- ir með smá tök á leiknum þá virt- ist vera eins og aðeins slokknaði á Haukum og sóknarleikur þeirra sem hafði alls ekki verið áferðarfagur fyr- ir, náði einfaldlega engum takti. Mik- ið stress var komið í Haukana sem voru einfaldlega ekki að spila nógu vel til þess að halda í við Fylki. Leiknum lyktaði því með gríðar- lega mikilvægum sigri Fylkismanna þar sem að þeir komust með honum upp að hlið Hauka með tólf stig. Bæði liðin eiga nú eftir að spila þrjá leiki og ljóst er að baráttan á botninum á eftir að vera býsna spennandi . Arnar í stuði Fyrir sóknarleik Fylkis fór að venju Arnar Jón Agnarsson sem hefur eft- ir áramót verið einstaklega öflugur á hægri væng Fylkis. Skoraði hann 12 mörk og þau í öllum regnbogans litum, einnig var Hlynur Morthens virkilega sannfærandi á milli stang- anna. Ólafur Lárusson var eins og við mátti búast í skýjunum eftir leikinn og þakkaði liðsheildinni þennan sigur. „Allir lögðu sig gríðarlega vel fram og við höfum svo sem verið að gera það í undanförnum leikjum en hlutirnir hafa kannski ekki alveg ver- ið að detta með okkur, núna lögðum við bara upp með það að hafa gam- an af þessu og þar af leiðandi fórum við með léttleikann sem okkar aðal- vopn og uppskárum því góðan sigur. Það var virkilega gaman að sjá Hlyn stíga svona sannfærandi upp í þess- um leik og það er alveg ljóst að hann er alveg að verða búinn að jafna sig á liðþófa meiðslunum.“ Guðlaugur Arnarsson var einn- ig glaður í bragði eftir leikinn enda átti hann stóran þátt í sigrinum með því að stjórna varnarleik Fylk- is með harðri hendi. „Í þessum leik þá small einfaldlega markvarsla og vörn ofboðslega vel saman og þetta gekk bara mjög vel hjá okkur í allar 60 mínúturnar sem hefur bara ekki gerst hjá okkur eftir áramót“ „Töpuðum þessu á sóknarleiknum“ Páll Ólafsson var gráti næst eftir tapið og var afar ósáttur með sóknar- leik sinna manna. „Það sama gerist í þessum leik sem hefur gerst alltof oft á þessu leiktímabili. Trú manna virðist bara vera engin og það vant- ar einhvern neista í liðið. Við skjót- um markmennina í hinum liðun- um í stuð og síðan erum við bara að klúðra dauðafærum trekk í trekk. Nú verðum við að snúa blaðinu við og vinna þessa næstu þrjá leiki. Við erum komnir í kjallarann og verðum einfaldlega að klára næstu þrjá leiki. Allt liðið verður einfaldlega að taka sig verulega á í sókninni, ef að við náum að brína þessa sókn örlítið þá eigum við auðveldlega að geta klárað þessa leiki.“ Þorsteinn Kári Jónsson Fylkir tók á móti Haukum í botnslagum á Íslandsmóti karla í handbolta. Hvorugt liðið hefur riðið feitum hesti eftir áramót og eru þau bæði í bullandi fallbaráttu. Hvorugt liðið gaf þumlung eftir í leiknum einsog búist var við og einkenndist leikurinn af mikilli baráttu og góðum varnarleik. Haukar komnir í kreppu Þungur á brún Viggó Sigurðsson ákvað að aðstoða pál Ólafsson á lokakaflanum í deildinni. Það dugði þó ekki til í gær og Haukar eiga erfiða baráttu frammundan í botnbaráttunni. Tekist hraustlega á Heimir Örn árnason skoraði fimm mörk fyrir Fylki í gær þegar liðið vann gríðarlega þýðingamikinn sigur á Haukum. Hörku fallbáttuslagur Það er hörð barátta frammundan á milli Hauka, Fylkis og ír um það hvaða tvö lið falla úr deildinni. Í dauðafæri guðlaugur arnarsson er hér í dauðafæri en hann skoraði tvö mörk í leiknum í gær.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.