Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Side 18
mánudagur 2. apríl 200718 Sport DV
Snæfell lagði KR að velli í þriðja leik
liðanna í undanúrslitum Iceland Ex-
press deildar karla, 61-63. Leikurinn
fór fram í DHL-höll þeirra KR-inga.
Snæfellingar tóku þar með forystu í
einvíginu og geta tryggt sér sæti í úr-
slitum með sigri á KR í kvöld.
Leikurinn einkenndist af mikilli
spennu og mistökum. Engu líkara
var að leikmenn væru stressaðir og
leikmenn gerðu sig oft á tíðum seka
um ótrúleg klaufa mistök, sérstak-
lega í fyrsta leikhluta.
Snæfell náði yfirhöndinni í fyrsta
leikhluta. Bæði lið voru að spila
ágætan varnarleik en sóknarleikur
beggja liða var að sama skapi slakur
og hann átti eftir að vera það allt til
leiksloka. Snæfellingar leiddu þegar
flautað var til loka fyrsta leikhluta,
9-16, og voru í raun klaufar að hafa
ekki meira forskot. KR-ingar virkuðu
stressaðir og gerðu mörg mistök sem
Snæfellingar náðu ekki að nýta sér.
KR-ingar mættu betur stemmdir
til leik í öðrum leikhluta og leikur-
inn jafnaðist. Samt sem áður var lít-
ið skorað og bæði lið héldu áfram að
spila góða vörn. Þegar flautað var til
leikhlés var staðan jöfn, 27-27. Aug-
ljóst var að bæði lið áttu mikið inni.
Snæfellingar hirtu 26 fráköst á móti
13 fráköstum KR-inga í fyrri hálfleik
en náðu ekki að nýta sér það. KR-
ingar náðu til að mynda ekki einu
sóknarfrákasti í fyrri hálfleik. Við
þetta má bæta að Sigurður Þorvalds-
son hirti 10 fráköst í fyrri hálfleik,
þremur fráköstum minna en allt KR
liðið.
Snæfellingar mættu gríðarlega
ákveðnir til leiks í þriðja leikhluta.
Þegar um tvær og hálf mínúta var
liðin af þriðja leikhluta hafði Snæ-
fell náð tíu stiga forystu, 29-39. Mest
náði Snæfell fimmtán stiga forskoti
í síðari hálfleik, 33-48, þegar tæpar
þrjár mínútur voru eftir af leikhlut-
anum. Hlynur Bæringsson fékk sína
fjórðu villu þegar rúm mínúta var
eftir af þriðja leikhluta og það virtist
slá Snæfellinga eilítið út af laginu.
KR-ingar minnkuðu muninn jafnt
og þétt, tóku sig saman í vörninni og
illa gekk hjá Snæfellingum að koma
boltanum ofan í körfuna. Brynjar Þór
Björnsson fór fyrir KR liðinu í sókn-
inni og fyrir tilstilli hans var KR enn-
þá inní leiknum þegar í fjórða leik-
hlutan var komið.
Síðustu sekúndur leiksins voru
æsispennandi. Brynjar Þór jafn-
aði metin, 61-61, þegar sex sekúnd-
ur voru eftir með þriggja stiga körfu
og allt virtist stefna í framlengingu.
Snæfellingar voru þó á öðru máli.
Bandaríkjamaðurinn Justin Shouse
fékk boltann, dripplaði framhjá
hverjum varnarmanni KR á fætur
öðrum og skoraði sigurkörfu leiksins
þegar um tvær sekúndur voru eftir
með góðu sniðskoti.
Snæfell náði þar með forystu í
einvígi liðanna og geta tryggt sér sæti
í úrslitum með sigri í Stykkishólmi í
kvöld. Sigurður Þorvaldsson átti fín-
an leik í liði Snæfells. Hann skoraði
fimmtán stig og hirti þrettán fráköst.
Justin Shouse skoraði einnig fimmt-
án stig og Hlynur Bæringsson skor-
aði fjórtán, auk þess sem hann hirti
tíu fráköst.
Hjá KR var Brynjar Þór Björnsson
eini leikmaðurinn sem var með ein-
hverju lífsmarki. Hann var lang stiga-
hæstur með 31 stig en næsti maður
var Jeremiah Sola með ellefu stig.
Tyson Patterson skoraði aðeins fjög-
ur stig fyrir KR í leiknum þrátt fyrir
að hafa leikið næst mest allra leik-
manna liðsins í leiknum. Ljóst er að
KR-ingar þurfa að fá meira frá Patt-
erson ef ekki á illa að fara í fjórða leik
liðanna í kvöld.
Körfuboltinn sem liðin buðu upp
á laugardaginn var ekki fallegur.
Hlynur Bæringsson, leikmaður Snæ-
fells, ákvað þó að líta svo á málið að
um fallega vörn hafi verið að ræða.
„Þetta var bara falleg vörn. En
þetta hafðist. Ég hélt að litli frændi
ætlaði að vinna okkur einn og sér.
Það var bara rugl að sjá til drengs-
ins. Hann var sá eini sem vildi snerta
knöttinn hjá þeim og við réðum ekk-
ert við hann,“ sagði Hlynur og átti þar
við Brynjar Þór, sem var lang besti
leikmaður KR í leiknum.
„Við erum komnir í bílstjóra sætið
en við fögnum engu. Okkar takmark
eru þrír sigrar. Ég fagna ekkert sér-
staklega fyrr en því hefur verið náð,“
sagði Hlynur sem lék með fjórar vill-
ur á bakinu allan fjórða leikhluta.
Geof Kotila, þjálfari Snæfells,
sagð að ekkert væri öruggt í þessu
einvígi og tók undir með undirrituð-
um að körfuboltinn sem leikinn var
hafi ekki verið sá fallegasti sem sést
hefur.
„Leikurinn á mánudaginn verður
alveg jafn erfiður og hinir fimm leik-
irnir sem við höfum leikið gegn KR í
vetur. Þeir hafa allir ráðist á síðustu
þrjátíu sekúndunum og það verður
sama upp á teningnum á mánudag-
inn. Körfuboltinn sem leikinn er í
þessum leikjum er sjaldan fallegur.
Mér fannst við eiga möguleika á
að vinna með meiri mun en svona er
þetta. Nú er ekkert annað að gera en
að hlakka til leiksins á mánudaginn.
Mér fannst við kasta frá okkur for-
skotinu á síðustu mínútunum. Mað-
ur veit aldrei hvað gerist í úrslita-
keppni, það er allt önnur keppni.
Þetta snýst um hörku og við vitum
að þeir eru sterkir,“ sagði Kotila.
Hann sagði að Snæfellingar
hefðu engan áhuga á að koma aftur
til Reykjavíkur til að spila oddaleik.
„Við vitum að leikurinn á mánudag-
inn verður erfiður og hann gæti al-
veg endað á annan hátt en í dag og
þá þurfum við að koma aftur hingað.
Við höfum engan áhuga á því en það
gæti alveg farið svo,“ sagði Kotila og
bætti við að það ætti ekki að vera erf-
itt að undirbúa sína leikmenn fyrir
leikinn gegn í kvöld.
„Ef leikmennirnir verða ekki til-
búnir á mánudaginn þá ættu þeir að
láta lækni skoða höfuðið á sér. Við
fáum tækifæri til að komast í úrslitin
og það á heimavelli. En við vitum að
það er fjörutíu mínútur eftir og það
verður mjótt á munum,“ bætti Kot-
ila við.
Benedikt Guðmundsson, þjálf-
ari KR, var svekktur eftir leikinn. „Ég
hélt að það væri komið að okkur að
stela þessu í restina en það var ekki
raunin. Þetta var langt frá því að vera
góður leikur hjá hvorugu liðinu. Ég
er að reyna að átta mig á því af hverju
við vorum svona flatir. Mér fannst
við ekki vera með fulla einbeitingu
og þá stemningu sem við þurfum
á að halda til að vera að spila vel,“
sagði Benedikt.
KR-ingar verða að vinna leikinn
í kvöld til að eiga möguleika á að
komast í úrslit. Þeir eru ekki óvan-
ir þeirri stöðu og Benedikt er hvergi
af baki dottinn. „Við þekkjum þessa
stöðu. Við lentum 1-0 undir í átta
liða úrslitum, tókum góðan útisig-
ur og kláruðum svo einvígið heima.
Það er bara það sem verðum að gera
núna. Við óttumst engan en okkar
verstu andstæðingar eru við sjálf-
ir. Við þurfum að hafa okkar hluti á
hreinu, fá upp góða stemningu og þá
held ég að við töpum ekki leik,“ sagði
Benedikt.
Leiðinlegt atvik átti sér stað eftir
leikinn þegar stuðningsmaður KR
veittist að Kristni Óskarssyni dóm-
ara þegar hann var á leið til bún-
ingsherbergja. KR-ingurinn taldi sig
eiga eitthvað vantalað við Kristinn,
komst í námunda við hann og lét
vaða. Dómarar eiga alls ekki að þurfa
að lenda í æstum stuðningmönnum
eftir leiki, í þessu tilfelli áttu KR-ingar
að veita dómurum leiksins gæslu og
fylgd inn í búningsherbergi til að
sleppa við svona svarta sauði.
Blaðamaður var vitni að þessu
atviki og eðlilega fauk í Kristinn við
þetta uppátæki stuðningsmannsins
sem ætti klárlega að skammast sín.
Tapið var langt frá því að vera dóm-
urum leiksins að kenna, því eins og
Benedikt benti á þá voru KR-ingar
sjálfum sér verstir í leiknum.
dagur@dv.is
Snæfellingar gerðu góða ferð í vesturbæ Reykjavíkur á laugardaginn og unnu heimamenn í KR 61-63 þar sem
sigurkarfan var skoruð á síðustu sekúndunum.
ShouSe með Sigurkörfuna
Spennuþrunginn leikur
Snæfell vann Kr á laugardaginn í leik sem
einkenndist af taugatitringi og mistökum.