Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 21
DV Sport mánudagur 2. apríl 2007 21 West Ham vann góðan sigur á Middlesbrough á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Lokatölur urðu 2-0 en þetta var annar sigur West Ham í röð. Bobby Zamora kom West Ham yfir strax á 2. mínútu og það var svo Argentínumaðurinn Carlos Tevez sem tryggði sigurinn með marki rétt fyrir leikhlé. Alan Curbishley, stjóri West Ham, hrósaði Carlos Tevez eftir leikinn og líkti honum við Wayne Rooney, en í upphafi leiktíðarinnar átti Wayne Rooney erfitt með finna netmöskva andstæðingana. „Tevez minnir mig á Rooney í upp- hafi leiktíðar. Hann sagði við sjálfan sig fyrir fjórum til fimm vikum síðan að það sem hann þyrfti að gera væri að hafa gaman af þessu. Hann leggur sig alltaf allan fram,“ sagði Curbishley eftir leikinn gegn Middlesbrough. West Ham lék af miklum krafti í fyrri hálfleik, líkt og liðið gerði gegn Tottenham á dögunum. West Ham hélt þó út núna og þeir töpuðu gegn Tottenham á síðustu sekúndunum. „Þetta minnti á leikinn gegn Tot- tenham í fyrri hálfleik og við komust í svipaða stöðu. Ég sagði þeim að þetta væri í þriðja skiptið sem við komum okkur í þessa stöðu. Botninn datt kannski úr leiknum í síðari hálfleik en við náðum stigunum þremur. Við megum ekki hugsa um hvað hefði gerst ef við hefðum unnið Tot- tenham. Við verðum bara að halda áfram,“ sagði Curbishley en West Ham er í 19. sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir Sheffield United sem er í 17. sæti. „Við erum komnir á rétta braut en það eina sem við getum gert er að vinna okkar leiki. Við horfum á önn- ur úrslit en við þurfum fyrst og fremst að vinna okkar leiki,“ bætti Curbis- hley við. Manchester United skrefi nær titilinum Manchester United færðist skrefi nær meistaratitilinum á laugardag- inn þegar liðið sigraði Blackburn, 4- 1, á heimavelli. Manchester United hefur enn sex stiga forskot á Chelsea þegar sjö leikir eru eftir. Þögn sló þó á áhorfendur á Old Trafford á 29. mínútu þegar Matt Derbyshire kom gestunum í Black- burn yfir. Enginn meistarabragur var á leik Manchester United í fyrri hálf- leik og forskot Blackburn í hálfleik var fyllilega verðskuldað. Annað var upp á teningnum í síð- ari hálfleik sem einkenndist af stans- lausri sókn heimamanna. Paul Schol- es náði loks að brjóta vörn Blackburn á bak aftur með fallegu marki á 61. mínútu. Hann lék Ryan Nelsen og Stephen Warnock upp úr skónum og skoraði með skoti í bláhornið. Það með opnuðust allar flóðgátt- ir og áður en flautað var til leiksloka höfðu Michael Carrick, Ji-Sung Park og Ole Gunnar Solskjær skorað sitt markið hver fyrir United. Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var í skýjunum með leik liðsins í síðari hálfleik. „Síð- ari hálfleikurinn var sá besti sem við höfum spilað á þessari leiktíð. Þetta var frammistaða sem til er ætlast af meistarakandídötum. Ég held að stuðningsmenn séu farnir að finna lyktina af titilinum núna og leikmenn finna bragðið,“ sagði Ferguson Mark Hughes, stjóri Blackburn, vann á sínum tíma tvo meistaratitla með Manchester United og hann taldi bikarinn fara á Old Trafford í lok leiktíðar. „United tapar þessu ekki úr þessu. Í raun held ég að þeir vinni þetta nokkuð þægilega. Við vorum vel inní leiknum fyrstu 60 mínúturnar. Áhorf- endur voru orðnir æstir og ég hélt að við myndum taka þetta. En þeir náðu yfirhöndinni og sýndu af hverju þeir eru meistarakandídatar. Þeir hafa spilað besta fótboltann á þessari leiktíð og mesta sóknar- boltann. Þetta var mikilvægur leikur fyrir þá og þeir unnu,“ sagði Hughes sem hrósaði einnig Paul Scholes fyrir markið sem hann skoraði í leiknum. „Ég hef séð hann gera þetta oft. Hann er yfirvegaður í þessari stöðu og býr yfir mikilli tækni, það var ekki efi í mínum huga hvar boltinn myndi enda,“ bætti Hughes við. Paul Scholes hefur nú skorað jafn mörg mörk og Ruud van Nistelrooy í ensku úrvalsdeildinni, en þeir eru markahæstu leikmenn liðsins frá því deildin var stofnuð árið 1992 með 95 mörk. Kalou heldur lífi í Chelsea Chelsea lenti í basli með Watford á útivelli. Allt virtist stefna í jafntefli þegar Salomon Kalou skoraði sigur- mark leiksins á 90. mínútu. Markið var gríðarlega mikilvægt fyrir Chelsea í titilbaráttunni en um leið fór þetta tap langleiðina með að fella Watford úr úrvalsdeildinni. Jose Mourinho, stjóri Chelsea, er enn bjartsýnn á að ná Manchester United. „Við unnum alla leiki í öllum keppnum í mars. Það er mjög mikil- vægt að við töpum ekki stigum. Nú verðum við að gera það sama í apr- íl. Við megum ekki tapa leik í neinni keppni. Það er staðan sem við búum við núna. Ég hef mikla trú á að United tapi sex stigum. Við getum náð þrem- ur stigum af þeim þegar við mætum þeim og svo geta þeir tapað öðrum sex stigum á annan hátt, með slakri frammistöðu, nokkrum jafnteflum eða hvað sem er,“ sagði Mourinho. dagur@dv.is Barcelona lenti í basli gegn Deportivo á heimavelli sínum í spænsku deildinni: Úrslit helgarinnar SpænSka úrvalSdeildin A. Madrid - Mallorca 1-1 1-0 (16.) Torres, 1-1 (53.) Arango. Barcelona - Deportivo 2-1 1-0 (45.) Messi, 2-0 (51.) Eto’o, 2-1 (69.) Adrian. Celta - Real Madrid 1-2 0-1 (27.) Nistelrooy víti, 1-1 (44.) Angel, 1-2 (83.) Robinho. Getafe - R. Zaragoza 2-2 0-1 (21.) Sergio Garcia, 0-2 (36.) D’Alessandro, 1-2 (43.) Manu, 2-2 (61.) Casquero. Gimnastic - Recreativo 1-1 0-1 (11.) Pongolle, 1-1 (15.) Portillo. Osasuna - Sevilla 0-0 Racing S. - A. Bilbao 5-4 0-1 (7.) Prieto, 1-1 (59.) Fernandez, 1-2 (63.) Etxeberria, 2-2 (66.) Garay víti, 3-2 (70.) Zigic, 4-2 (78.) Zigic, 4-3 (80.) Etx- eberria, 4-4 (83.) Iraola, 5-4 (89.) Zigic. R. Betis - Villarreal 3-3 0-1 (2.) Forlan, 1-1 (10.) Fernando, 1-2 (47.) Forlan, 2-2 (72.) Edu, 2-3 (78.) Pires, 3-3 (90.) Juanito. R. Sociedad - Levante 1-0 1-0 (38.) Ansotiqui. Valencia - Espanyol 3-2 1-0 (12.) Villa, 1-1 (15.) Riera, 2-1 (26.) Vi- cente, 3-1 (59.) Angulo, 3-2 (63.) Garcia. Staðan Lið L U J T M S 1 Barcelona 28 16 8 4 59:26 56 2 Sevilla 28 16 6 6 48:24 54 3 R. Madrid 28 15 6 7 39:25 51 4 Valencia 28 15 5 8 40:28 50 5 Zaragoza 28 13 8 7 42:29 47 6 A. Madrid 28 12 8 8 33:24 44 7 Racing 28 11 10 7 35:34 43 8 Recreat. 28 12 6 10 36:36 42 9 Getafe 28 10 9 9 25:21 39 10 Espanyol 28 9 11 8 31:31 38 11 Villarreal 28 10 8 10 29:35 38 12 Deport. 28 9 9 10 21:30 36 13 Osasuna 28 10 5 13 34:33 35 14 Mallorca 28 9 6 13 29:40 33 15 Betis 28 7 11 10 28:34 32 16 Levante 28 6 10 12 23:38 28 17 Celta 28 6 9 13 28:40 27 18 A. Bilbao 28 6 8 14 31:45 26 19 Socied. 28 4 9 15 20:36 21 20 Gimnast. 28 5 6 17 29:51 21 ÍtalSka úrvalSdeildin Atalanta - Fiorentina 2-2 0-1 (27.) Reginaldo, 0-2 (32.) Pazzini, 1-2 (39.) Loria, 2-2 (65.) Doni víti. Cagliari - Messina 2-0 1-0 (12.) Biondini, 2-0 (24.) Budel. Chievo - Sampdoria 1-1 0-1 (27.) Quagliarella, 1-1 (33.) Brighi. Empoli - Ascoli 4-1 1-0 (44.) Pozzi, 1-1 (50.) Soncin, 2-1 (53.) Saudati víti, 3-1 (71.) Saudati, 4-1 (75.) Pozzi. Inter Milan - Parma 2-0 1-0 (56.) Maxwell, 2-0 (70.) Crespo. Livorno - Catania 4-1 0-1 (14.) Sottil, 1-1 (20.) Lucarelli, 2-1 (45.) Fiore, 3-1 (82.) Lucarelli víti, 4-1 (90.) Lucarelli. Reggina - Siena 0-1 0-1 (45.) Bertotto. Roma - AC Milan 1-1 1-0 (4.) Mexes, 1-1 (61.) Gilardino. Torino - Palermo 0-0 Udinese - Lazio 2-4 0-1 (18.) Stendardo, 0-2 (50.) Mauri, 0-3 (51.) Behrami, 1-3 (58.) Di Natale víti, 1-4 (59.) Rocchi, 2-4 (90.) Iaquinta. Staðan Lið L U J T M S 1 Inter 29 25 4 0 63:23 79 2 Roma 29 17 8 4 56:23 59 3 Lazio 29 16 7 6 51:24 52 4 Palermo 30 13 9 8 43:34 48 5 Empoli 29 12 9 8 32:28 45 6 Milan 29 14 10 5 39:25 44 7 Fiorentina 29 15 8 6 47:26 38 8 Sampd. 29 9 9 11 36:36 36 9 Udinese 29 9 8 12 36:41 35 10 Atalanta 29 7 12 10 42:42 33 11 Livorno 29 7 11 11 31:44 32 12 Torino 29 8 8 13 24:39 32 13 Catania 30 8 8 14 37:58 32 14 Siena 29 6 13 10 25:32 30 15 Cagliari 29 6 12 11 23:32 30 16 Chievo 29 6 10 13 32:40 28 17 Reggina 29 9 9 11 38:41 25 18 Messina 29 5 9 15 28:48 24 19 Parma 29 4 10 15 24:48 22 20 Ascoli 29 3 10 16 22:45 19 Barcelona slapp fyrir horn gegn Deportivo Barcelona hélt toppsæti sínu í spænsku deildinni eftir leiki helgar- innar. Liðið fékk Deportivo í heim- sókn um helgina og vann, 2-1, með mörkum frá Lionel Messi og Samuel Eto‘o. Adrian náði að minnka mun- inn um miðjan síðari hálfleik en lengra komust gestirnir ekki. Eiður Smári Guðjohnsen sat á varamanna- bekk Barcelona allan leikinn og kom ekkert við sögu. Frank Rijkaard, þjálfari Barcelona, sagði eftir leikinn að Barcelona hefði átt að vinna þennan leik á mun meira sannfærandi hátt en raunin varð. „Við áttum skilið að vinna. Mark- ið sem Messi skoraði gaf okkur mik- ið sjálfstraust. Við lékum nokkuð vel og fengum færi. Allir voru að bíða eft- ir þriðja marki okkar en þeir náðu að minnka muninn með marki. Það var viðvörun til okkar,“ sagði Rijkaard. Rijkaard sagði að Barcelona þyrfti að bæta sig á ýmsum sviðum. „Við meg- um ekki gefa eftir þó lið pressi okkur. Við verðum að halda okkar stöðum,“ sagði Rijkaard og hrósaði að lokum Samuel Eto‘o sem skoraði sigurmark- ið í leiknum. Lionel Messi sagði að sigurinn hafi verið mjög þýðingarmikill fyr- ir Barcelona. „Það var erfitt að finna leið í gegnum vörn þeirra og markið mitt gerði okkur auðveldara fyrir. Eftir það vorum við mikið með boltann og lékum honum nánast of mikið saman og vorum afslappaðir, sem þýddi að við sóttum ekki að sama krafti,“ sagði Messi. dagur@dv.is Komst ekki á blað ronaldinho er markahæsti leikmaður Barcelona á leiktíðinni en hann komst þó ekki á blað í gær þegar liðið lagði deportivo að velli. kom fram hefndum Jafnaði Nistelrooy paul Scholes hefur nú skorað jafn mörg mörk og ruud van nistelrooy í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu, eða 95. enn von hjá West ham West Ham vann sinn annan leik í röð um helgina þegar liðið lagði Middlesbrough og Manchester United færðist skrefi nær meistaratitilinum með sigri á Blackburn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.