Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 22
Níu leikja sigurganga Dallas lauk í
gær í beinni útsendingu á Sýn þegar
þeir mættu Steve Nash og félögum í
Phoenix í uppgjöri toppliðanna í
deildinni. Nash skoraði 23 stig og gaf
11 stoðsendingar í öðrum sigurleik
Phoenix á Dallas í röð.
Munurinn var aðeins 5 stig þegar
fjórði og síðasti leikhlutinn hófst en
hann fór uppí 20 stig, 120-100, þeg-
ar skammt var eftir að leiknum. Pho-
enix hittu úr 13 af 15 skotum sínum í
leikhlutanum og öllum þriggja stiga
skotum sínum.
„Frábært, einfaldlega frábært,“
sagði þjálfari Phoenix Mike D´Ant-
oni eftir leik. „Boltinn var að fljóta
vel og skotnýtingin var frábær.
Dallas verður númer eitt í úrslita-
keppninni en þeir munu ekki fá tit-
ilinn á silfurfati, það er ljóst,“ bætti
D´Antoni við.
Leandro Barbosa skoraði 29 stig
fyrir Phoenix og var stigahæstur en
hjá Dallas var Josh Howard stiga-
hæstur með 28 stig.
Allen Iverson hristi af sér slenið
í síðari hálfleik í viðureign Denver
Nuggets og Seattle Supersonics í nótt
og skoraði 21 stig. Hann hafði aðeins
skorað 5 stig í þeim fyrri og sagði í
viðtali eftir leikinn að fyrri hálfleikur
hafi verið sá lélegasti á sínum ferli.
Carmelo Anthony skoraði 32
stig fyrir Denver í 114-103 sigurleik
þeirra.
„Þetta var erfiður leikur, þeir
þurftu á sigri að halda til að halda lífi
í baráttu sinni til að komast í úrslita-
keppnina. Við einfaldlega mættum
þeim ekki í baráttunni,“ sagði stiga-
hæsti leikmaður Seattle Earl Watson
sem skoraði 28 stig.
Enginn Lebron James og
Cleveland tapaði
Boston Celtic nýttu sér fjarveru
Lebron James í nótt og unnu Cleve-
land í æsispennandi leik 98-96.
Gerald Green skoraði 18 af 25 stig-
um sínum í síðari háfleik, en þetta
var aðeins þriðji sigurleikur Boston
af 26 leikjum án Paul Pierce sem er
meiddur á olnboga.
Þegar nokkrar sekúndur voru
eftir og staðan jöfn keyrði Delonte
West leikmaður Boston að körfunni
og Anderson Varejao braut á hon-
um. West setti bæði vítaskotin niður
og Cleveland fékk eitt tækifæri til að
jafna leikinn. Damon Jones hitti ekki
úr galopnu þriggja stigaskoti og Bos-
ton fagnaði mikilvægum sigri.
Lebron James var ekki með vegna
meiðsla á hné og vað Larry Hughes
stigahæstur með 24 stig.
Tinsley hetja Indiana
Skot Jamaal Tinsley yfir Tim
Duncan rétt fyrir leikslok gæti hafa
bjargað tímabili Indiana Pacers.
Þeir voru búnir að tapa fjórum
leikjum í röð áður en þeir mættu
Duncan og félögum í San Antonio
Spurs og án stjörnuleikmanns síns
Jermaine O´Neal var ekki búist við
miklu af Indiana. Spurs var búið að
vinna sex leiki í röð áður en þeir fóru
til Indiana og eru til alls líklegir nú
þegar styttist í úrslitakeppnina.
Þjálfari San Antonio Gregg Pop-
ovich var ekki par hrifinn af spila-
mennsku sinna manna.
„Mér fannst við spila ömurleg-
an körfubolta. Í fjórða leikhluta vor-
um við skelfilegir og urðum sjálfum
okkur til skammar. Þetta var vont tap
sem skilur eftir sig mikið.“
Ricky Davis var svo sannarlega
betri en enginn þegar Minnesota
vann Orlando í framlengingu 105-
104. Hann skoraði 36 stig í nótt, þar
af síðustu 13 stig Minnesota.
„Frábært kvöld. Þjálfarinn setti
upp leikkerfi fyrir mig og mér fannst
karfan vera fjandi stór í kvöld,“ sagði
Davis eftir leikinn.
Kevin Garnett skoraði 22 stig fyrir
Minnesota og varði skot Jameer Nel-
son þegar innan við fimm sekúndur
voru eftir að framlengingunni.
Grant Hill var stigahæstur leik-
manna Orlando með 23 stig en liðið
hefur ekki enn unnið leik lendi það í
framlengingu.
Kobe gaf boltann
Kobe Bryant gaf 13 stoðsending-
ar þegar lið hans Los Angeles Lakers
lagði Sacramento Kings 126-103.
Hann skoraði 19 stig en það voru
sendingar hans sem hafa stolið öll-
um fyrirsögnum í Bandarískum fjöl-
miðlum í morgun.
„Mér líkar það vel þegar liðið er í
góðum gír. Mér líkar það þegar þeir
brosa. Þeir hafa verið að setja haus-
inn ofaní bringu þannig þetta var
góður leikur hjá okkur því Sacram-
ento eru gott lið,“ sagði Bryant en því
er stundum haldið fram að það leið-
inlegasta í NBA körfuboltanum sé að
vera með Kobe Bryant í liði því leik-
menn fái aldrei boltann.
„Það er erfitt að spila við okkur
þegar boltinn flæðir jafn vel og hann
gerði í kvöld, leikurinn var mun auð-
veldari því skotinn okkar voru að
detta niður,“ bætti Kobe við en þetta
var í níunda sinn sem hann nær tvö-
faldri tvennu í vetur.
Richard Hamilton skoraði 19 stig
fyrir Detroit Pistons sem vann Mi-
ami Heat 94-88 í nótt. Hamilton hef-
ur verið frá í fjóra leiki var frábær í
leiknum bæði í vörn og sókn.
„Hamilton vann leikinn fyrir þá,
það er bara þannig “ sagði Pat Riley
þjálfari Miami eftir leikinn.
Jason Williams leikmaður Miami
skoraði aðeins 8 stig í nótt og komst
lítt áleiðis gegn Hamilton.
„Ég hef verið að horfa á Lindsey
Hunter spila vörn meðan ég hef ver-
ið frá og lært mikið. Williams var öfl-
ugur í fyrri hálfleik og ég vissi að ég
þyrfti að standa mig betur í seinni
hálfleik. Eftir sjö daga rúmliggjandi
vegna flensu er ég feginn að vera
farinn að hreyfa mig að nýju,“ sagði
Hamilton eftir leikinn. Shaquille
O´Neal var stigahæstur leikmanna
Miami með 23 stig en þeir skoruðu
ekki tveggja stiga körfu síðustu 14
mínútur leiksins.
„Við þurftum á sigri að halda hér
í kvöld,“ sagði Pat Riley.
„Við gáfum þeim auðveldar
körfur, hittum ekki úr vítunum og
þeir virtust alltaf fá annan séns í
sókninni. Það einfaldlega er ekki
sigurformúla,“ bætti Riley við.
Í öðrum leikjum næturinnar
vann Chicago Atlanta 105-97 en
þetta var sjötta tap Atlanta í röð.
Luol Deng skoraði 30 stig fyrir Chi-
cago en Joe Smith skoraði 24 stig
fyrir Atlanta.
Golden State lagði Memphis í
miklum stigaleik 122-117 þar sem
Jason Richardson skoraði 13 af 26
stigum sínum í fjórða leikhluta fyrir
Golden State.
Utah Jazz vann Houston Rockets
með þriggja stiga mun 86-83 á úti-
velli. Tyrkinn Mehmet Okur skor-
aði 20 stig fyrir Utah en risinn Yao
Mingh skoraði 35 stig fyrir Houston.
Toronto vann Charlotte 107-94
og Washington Wizards vann Mil-
waukee 121-107 þar sem Gilbert
Arenas skoraði aðeins 9 stig fyrir
Washington.
benni@dv.is
Mánudagur 2. apríl 200718 Sport DV
Britney Spears Sjálf poppdívan
Britney Spears lét sjá sig á leik lakers og
Sacramento.
NBA
NBA-úrslit
næturinnar
detroit - Miami 94-88
atlanta - Chicago 97-105
golden State - Memphis 122-117
Milwaukee - Washington 107-121
phoenex - dallas 126-104
Boston - Cleveland 98-96
Houston - utah 83-86
Orlando - Minnesota 104-105
Toronto - Charlotte 107-94
Indiana - San antonio 100-99
Seattle - denver 103-114
l.a. lakers - Sacramento 126-103
sTAÐAN
U T
Austurdeildin
detroit 47 26
Cleveland 44 30
Toronto 41 32
Washington 39 33
Chicago 44 31
Miami 39 34
new Jersey 34 39
Orlando 34 40
Indiana 32 41
new York 31 42
philadelphia 29 44
Charlotte 28 46
atlanta 27 47
Milwaukee 25 47
Boston 23 50
U T
Vesturdeildin
dallas 61 12
phoeni 55 18
San antonio 52 21
utah 48 25
Houston 47 27
l.a. lakers 39 34
denver 36 36
l.a. Clippers 36 37
golden State 35 39
new Orleans 33 40
Minnesota 31 42
Sacramento 30 42
Seattle 30 43
portland 29 44
Memphis 19 56
NBA
Sigurkarfan Jamaal Tinsley er hér við það
að skora sigurkörfu Indiana pacers gegn
San antonio Spurs.
Hættuleikur. lukkudýr atlanta Hawks
Skyhawk treður hér með tilþrifum
Ekki í aðalhlutverki Kobe Bryant lét aðra
sjá um stigaskorun í nótt.
PhoeNix
vANN DAllAs
Tólf leikir voru spilaðir í NBA
deildinni í nótt.Kobe Bryant
leikmaður Los Angeles Lakers
gaf 13 stoðsendingar og Pho-
enix lagði Dallas í stórleik næt-
urinnar