Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2007, Qupperneq 30
mánudagur 2. apríl 200730 Síðast en ekki síst DV veðrið ritstjorn@dv.is Sandkorn Leikritið Best í heimi verður sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar um pásk- ana. Verkið gerði allt vitlaust þeg- ar það var sýnt í Reykjavík fyrir skemmstu enda um snilldarlega háðsádeilu á íslenskt samfélag að ræða. Í sýningunni er gert góðlát- legt grín að þjóðarstolti Íslendinga og fjallað um spaugilegar aðstæð- ur sem útlendingar sem setjast hér að lenda í. Sýningin hefur hlotið einróma lof gagnrýnanda en það er samið af leikhópnum sjálfum, Hávari Sigurjónssyni og Maríu Reyndal. Við mælum með... ...BókaBílnum ...Best í heimi ...tannréttingum lélegasta hljóðblöndun tónleikaferðarinnar Aðdáendur söngvarans Cliffs Ri- chards, sem fylgdu honum eftir á hálfs árs tónleikaferðalagi hans, voru ánægðir og sáttir með aðstöðuna í Laugardalshöll miðað við það sem þeir höfðu búist við og lesa má um á bresk- um bloggsíð- um. Hins vegar höfðu þeir á orði að hvergi hefði „mixið“, eða hljóðblöndunin ver- ið jafn slæm og á Íslandi. Nokkrir sem vit hafa á taka í sama streng en hinn almenni tónleikagest- ur tók ekki eftir neinu sem finna mátti að. ...hundahaldi Á morgun eru 23 ár síðan hunda- hald var leyft í Reykjavík en áður hafði það verið bannað síðan 1971.Hundaeign borgarbúa hefur aukist mjög síðustu árin og má segja að nú sé varla nokkur mað- ur með mönnum nema hann eigi hund. Hundar eru í tísku og þeir sem vilja tolla í tískunni verða hreinlega að eiga einn slíkan. Leikkonan America Ferrera sem leikur Betty Suarez, í þáttaröðinni Ugly Betty er við það að takast að koma tannréttingum í tísku. Betty brosir sínu breiðasta í þáttunum og er ófeimin við að sýna tennurnar sem bundnar eru járnvírum. Mikil þróun hefur orðið á tannrétting- arbúnaði undanfarin ár og þannig er nú hægt að fá spangir í hinum ýmsu gerðum og litum. Til dæm- is er hægt að velja á milli spanga sem settar eru innan eða utan á tennurnar, hægt að fá teygjurnar í hinum ýmsu litum og tannklossa sem eru glærir. Betty var ekkert að fela það að hún stæði í tannrétt- ingum og valdi sér því bláa teina á tennurnar. afmælishátíð á Jamæka Einkaþota Björgólfs Thors Björgólfs- sonar hóf sig á loft frá Reykjavíkur- flugvelli á fimmtu- dagskvöldið. Innan- borðs voru bestu vinir viðskiptajöfursins, en mikil leynd hafði hvílt yfir hvar haldið skyldi upp á fertugsafmæli kappans. Boðsgestir höfðu fengið að vita það eitt að þeir ættu að pakka niður fyrir dvöl á heitum stað. Afmælisveislan stóð í fjóra daga, frá því á fimmtudaginn þang- að til í dag og væntanlega hefur mikil gleði ríkt þegar farþegum var tilkynnt að ferðinni væri heit- ið til Jamæka. leitin að rétta reykelsinu Það er urgur í mörgum kráareig- endum vegna fyrirhugaðs reyk- ingabanns sem tekur tildi í sum- ar. Kormákur og Skjöldur sem reka sam- nefnda Ölstofu íhuga mál- sókn á hendur ríkinu þar sem þeir telja vegið að atvinnurétt- indum sínum. Þeir, líkt og aðrir kráareigendur, hafa líklega fengið slæmar fréttir frá þeim löndum þar sem reyk- ingabann hefur tekið gildi. Þar mun nefnilega ekki vera líft inni á krám vegna svita- og táfýlu sem reykingalykt náði að bæla niður áður fyrr. Leitin að rétta reykels- inu mun því vera hafin... Í kvöld stígur hörður torfason á svið í Borgarleikhúsinu og held- ur sína árlegu kertaljóstónleika. Tónleikarnir eru fastur liður í lífi margra sem hafa unun að því að hlusta á Hörð segja sögur og syngja lögin sem allir þekkja. Hörður Torfason, sem hefur ver- ið iðinn við að halda tónleika í 32 ár, segir tónleikana í kvöld verða með sama sniði og fyrr. Dagskráin sé sam- ansett úr nýju og gömlu efni. ,,Upphaflega hugmyndin að þess- um tónleikum byggist á íslenska baðstofulífinu,” segir Hörður. ,,Það- an kemur þetta form; einn maður með gítar sem syngur og segir sög- ur um lífið og tilveruna. Nafnið tón- leikanna er tilvísun í ljósið og róleg- heitin og eins og allir vita erum við öll bara einn blaktandi logi. Hér áður fyrr skrifaði ég þetta allt saman nið- ur, eins og um leikrit væri að ræða, en nú eru breyttir tímar og áherslurnar aðrar en áður því tölvan og bloggið hafa tekið öll völd. Með því hefur öll almenn umræða færst yfir á annað svið. En það er staðreynd að leiksvið- ið býður upp á allt aðra og mannlegri nánd en tölvuskjárinn og sem bet- ur fer átta margir sig á því að það er mun skemmtilegra að fara úr húsi heldur en að sitja við tölvuna eða sjónvarpið heima.” Hörður segist spila og syngja gömul og ný lög jöfnum höndum á tónleikunum. ,,Það er útilokað að halda tón- leika með nýjum lögum eingöngu. Fólk kemur til þess að hlusta á eitt- hvað sem það kannast við og fyrir tónleikana rignir yfir mig beiðnum um óskalög. Fólk vill fá að vita hvort ég ætli örugglega ekki að syngja þetta lagið eða hitt. Auðvitað verð ég við slíkum beiðnum með glöðu geði. Á öllum mínum tónleikum spila ég það sem fólkið vill hlusta á, fólk leggur það á sig að mæta á tónleikana mína og mér ber skylda til þess að reyna að verða við óskum þess. Mér þykir vænt um að það er alltaf að bætast við hlustendahópinn og mér þykir gam- an að heyra að margir í honum eru ungt fólk. Ég fylgist ekki svo grannt með því sjálfur en fólkið, sem hefur séð um plötusölu fyrir mig í meira en 12 ár, verður vart við þessa fjölgun og aldursbreytingu í hópnum.“ Hörður spilar nær undantekning- arlaust fyrir fullu húsi og undanfarin ár hefur hann þurft að halda tvenna hausttónleika í stað einna og í ár stefnir í að þeir verði þrír. ,,Eina vandamálið við tónleika- haldið er það að ekki er hlaupið að því að fá húsnæði fyrir tónleika, þótt ég leggi inn pantanir með ársfyrir- vara. Það er alls staðar svo mikið að gerast á Ísland og dagsetning tón- leikanna ræðst af því. Mánudags- kvöld fyrir páska er svo sannarlega ekki uppáhaldskvöldið mitt en ég við halda mínu striki og halda mína kertaljósatónleika hvað sem öllu líð- ur.“ Áhorfendur taka virkan þátt í tón- leikum Harðar og taka gjarnan lag- ið með honum. Á Netinu er hægt að finna texta við lagið Vasaljós sem Hörður ætlar að spila á tónleikunum í kvöld og hvetur fólkið í salnum að taka undir í viðlaginu. ,,Ég sem oft texta í sama anda og Vasaljós, texta sem flytja gleðiboð- skap, jákvæðan boðskap í mann- legum samskiptum. Ég höfða mikið til ljóssins, hvort sem það er í formi kertaljóss eða vasaljóss!” Aðspurður segir Hörður tónleika sína aldrei vera klára fyrr en hann labbar inn á viðið. ,,Ég stend einn í þessu öllu, ég hleyp í að æfa, mæta í viðtöl og redda hinu og þessu. Ég hef aldrei fengið að fylla annan flokk en þann að standa einn. Það er kannski meðvitað því ég er fyrst og fremst leikhúsmaður en ekki tónlistarmaður. Ég er leikari sem fer um og syng og segi sögur með mannleg baráttumál í huga. Það er bæði skemmtilegt og gefandi, “ segir Hörður að lokum. LAGATEXTAR OG SÖGUR MEÐ LJÓSIÐ Í HUGA hörður torfason ,,Ég er leikari sem fer um og syng og segi sögur með mannleg baráttumál í huga.” Það er um að gera að heimsækja bókabíl Borgarbókasafnsins áður en páskafríið skellur á og birgja sig upp af góðu lesefni. Bókabíllinn keyrir um hverfi borgarinnar og þar er hægt að leigja sér bækur í fríið. Allar nánari upplýsingar um ferðir bókabílsins er að finna á heimasíðu Borgarbókasafnsins www.borg- arbokasafn.is. Einnig er auðvitað kjörið að heimsækja borgarbóka- safnið og dveljast þar um stund, því það verður lokað alla páskana. eldheit samfylking Hljómsveitin Sprengjuhöllin er sögð ætla að leggja Samfylking- unni lið í kosningabaráttunni í vor og mun ætla að stíga á stokk hér og þar af því til- efni. En helsta framlag sveit- arinnar mun verða sérlegt baráttulag, út- gáfa Sprengju- hallarinnar af sálræna Motown-slagaranum Heatwave með Martha and the Vandellas. Hvort sá eldmóður sem fyrir kemur í úgáfu Mörthu og félaga skilar sér í kjörkassana á eftir að koma í ljós. þriðJudagurmánudagur 5 1 7 9 9 6 5 8 18 17 8 5 8 5 107 7 5 5 57 8 8 10 6 7 12 511 5 6 5 6 5 106 7 5 dv mynd gúndi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.