Læknablaðið - 15.10.1983, Side 17
LÆKNABLADIÐ 69,243-245,1983
243
HEILRÆÐIHANDA VERÐANDIFYRIRLESARA
Bróðir
Þakka pér fyrir pað traust, sem pú sýnir mér,
með því að leita til mín um leiðbeiningar varð-
andi væntanlegt erindi f>itt á læknaþingi.
Beiðni þín varð til þess að mér flaug í hug sú
spurning, hvers vegna skipuleggjendur funda
og ráðstefna hafa ekki ennpá gefið út leiðbein-
ingar handa fyrirlesurum. Pær gætu hugsan-
lega orðið til pess að forða áheyrendum frá
þeim hrellingum, sem fylgja pví að hlusta á illa
samið eða illa flutt erindi, nema hvort tveggja
sé. Til eru skilmerkilegar leiðbeiningar fyrir
greinahöfunda. Hver einasta ritnefnd, sem vill
rísa undir nafni, gefur út fyrirmæli um pað,
hvernig efni skuli skipað og hvernig skuli
gengið frá handritum. Óskir pú eftir birtingu á
fræðilegu efni parft pú að fara eftir pessum
fyrirmælum í einu og öllu, leggja fram fullbúið
handrit og hlíta síðan dómi ritstjórnar. Þegar
hann liggur fyrir, verður þú enn að fara eftir
fyrirmælum hennar um breytingar, ella verður
ekki af birtingu.
Um fyrirlestrahald gegnir allt öðru máli.
Fyrir læknaþing sendir pú inn nafn erindis og
útdrátt úr pví. Engin tilraun er gerð til
gæðamats. Áheyrendur eru á pínu valdi.
Áður en ég sný mér að pví að hella yfir pig
ráðleggingum, vil ég aðeins segja petta:
Hefðir pú þegar öðlast verulega reynslu við
setu á fundum og ráðstefnum og teldir pú, að
pú hefðir tileinkað pér góða fundatækni, hefði
ég ráðlagt pér að fletta yfir á síðu 246. Þá
losnaðir pú við óparfan lestur á pví, sem hér
fylgir á eftir. Þar sem pú ert hins vegar peirrar
skoðunar, að pú eigir ýmislegt ólært, má vera,
að pú getir haft eitthvert gagn af eftirfarandi
ráðleggingum.
Skilgreindu markmid þín
Settu fram í einni eða tveim setningum, pað
sem pú helst vilt, að áheyrendur leggi á
minnið. Þegar pú undirbýrð fyrirlesturinn
reyndu pá að tryggja, að meginefnið komist til
Endursagt og staðfært úr Mayo Clin Proc, Nov 1973, Vol.
48: A Letter to the Next Speakerjby Jurgen Ludwig öb.
skila. Til pess að ná pví marki, er oft áhrifa-
meira að segja frá niðurstöðum í stuttu máli,
heldur en að demba flóði sundurliðaðra upp-
lýsinga yfir pingheim.
Ýmislegt má læra af framleiðendum sjón-
varpsauglýsinga. Á hálfri mínútu kynna þeir
vöru, sannfæra fólk um, að hún taki öllu
hliðstæðu fram og verða þannig til pess að
framleiðslan selst. Hliðstæðan felst m.a. í pví,
að pú færð sjálfur mjög takmarkaðan tíma til
pess að selja framleiðslu og pú parft einnig að
tengja hljóð og mynd.
Hvernig á pá að fara að?
Semdu texta fyrir áheyrendur, ekki lesendur
Ef pú hyggst lesa upp úr handriti pínu, mundu
eftir að semja textann með þarfir áheyrenda í
huga. Hafðu setningar stuttar. Þú parft tíma til
pess að anda öðru hverju. Ekkert er rangt við
pað að brjóta reglur um setningaskipan.
Það getur orðið til þess að auðvelda tján-
ingu. Fullkomin setning getur hljómað formleg
og stirð. Ófullkomin setning getur á sama
hátt lífgað upp á erindið.
Þú hefur ef til vill skrifað handritið með pað
í huga, að fá efnið birt óbreytt í Læknablað-
inu. Slíkt gengur alls ekki. Gerðu ekki ráð fyrir,
að pér takist að semja texta, sem er jafn áheyri-
legur og hann er læsilegur. Aðeins Biblían og
íslendingasögurnar fullnægja þeim skilyrðum.
Skipuleggðu framsetningu þína
Hverjir svo sem áheyrendur pínir verða, hafðu
í huga, að pú ert ávallt að kenna peim eitthvað.
í samræmi við pað, parf að setja efnið fram á
rökrænan og skilmerkilegan hátt. Þegar pú
setur fram niðurstöður, reyndu samt að hafa
hæfilegar endurtekningar til pess að halda
athygli áheyrenda. Reyndu að geta pér til um
pað, hvaða spurningar kunna að vakna. Svar-
aðu þeim jafnóðum og pær eru bornar fram.
Ef allt er eins og best verður á kosið, ættu
engar spurningar að vera eftir, pegar pú hefur
lokið máli pínu. Spyrðu pví sjálfan pig, áður pú
bætir við mynd eða setningu, hvort pessi