Læknablaðið - 15.11.1984, Qupperneq 47
LÆKNABLAÐID
307
vel í að láta gera slíka könnun. Ráðherra mun
hafa rætt við landlækni um, að embætti hans
gerði áætlunina, en ekki hafa borizt neinar
skriflegar upplýsingar til L.Í. um málið.
í sömu tillögu var skorað á stjórn L.í. að
ljúka við könnun á atvinnuhorfum íslenzkra
lækna, sem var í gangi á vegum stjórnarinnar.
Nefnd, sem starfaði að málinu, vann vel í
upphafi, en þrátt fyrir óskir stjórnar L.í. hefur
lítið orðið um framhald, og nú hefur nefndin
munnlega sagt af sér störfum.
Ályktun um, að miðbókasafn í læknisfræði
fái aðstöðu í Pjóðarbókhlöðunni var send til
formanns bygginganefndar Þjóðarbókhlöð-
unnar, tii landsbókavarðar, háskólabókavarðar,
menntamálaráðuneytis, læknaráða sjúkra-
húsanna í Reykjavík og bókavarða Landspít-
alans, Borgarspítalans, Landakotsspítala og
Kleppsspítala. Af viðræðum formanns við
suma þá, sem tillagan var send til, er ljóst, að
hún nýtur ekki einróma stuðnings þeirra. Gert
er ráð fyrir, að haldinn verði fundur allra
þeirra aðila, sem tillagan var send til, á
komandi hausti.
Alyktun varðandi kjarnorkuvá var send
Samtökum lækna gegn kjarnorkuvá, Sam-
tökum heilbrigðisstétta, heilbrigðisráðherra,
utanríkisráðherra, formanni utanríkismála-
nefndar Alþingis, formönnum þingflokka
Alþingis og Almannavörnum. Auk þess sem
hún var send fjölmiðlum sérstaklega.
Ályktun um bankamál. Stjórn L.í. skipaðið
nefnd til að vinna að þessu máli, en í henni
sitja Örn Smári Arnaldsson, Grímur Sæmund-
sen og Haukur Þórðarson. Nefndin hefur starf-
að talsvert og hefur ásamt framkvæmdastjóra
læknafélaganna rætt við bankastjóra Bún-
aðarbankans og Iðnaðarbankans. Haukur
Þórdarson er formaður nefndarinnar (sjá síð-
ar).
Ályktun um, að stjórn L.í. sjái til pess, að
ávallt séu fyrir hendi upplýsingar um sundur-
liðaðan kostnað við heilbrigðispjónustuna.
Stjórnin skipaði 4 manna nefnd, sem í eiga
sæti Atli Dagbjartsson, Ólafur Mixa, Þórarinn
Ólafsson og Jóhann Tómasson. Nefndin átti að
hefja undirbúning að þessu starfi og skila áliti
um, hvernig framkvæma mætti tillöguna.
Nefndin hefur starfað undir forystu Jóhanns,
en ekki hafa borizt neinar niðurstöður til
stjórnar.
Alyktun um, að stjórn L.í. beiti sér fyrir
könnun og umræðu um kosti og galla mismun-
andi kerfa í rekstri sjúkrahúsa. Stjórnin skip-
aði nefnd til að vinna að málinu, og í henni eiga
sæti Gunnar Sigurðsson, Ólafur Örn Arnason
og Kristján Baldvinsson, sem var formaður
nefndarinnar. Ekki hafa borizt neinar upp-
lýsingar um störf nefndarinnar.
Ályktun um, að stjórn L.í. beiti sér fyrir
stofnun starfshóps til undirbúnings samræm-
ingar á sérfræðinámi íslenzkra lækna m.t.t.
sameiginlegs vinnumarkaðs á Norðurlöndum.
í starfshópinn voru skipaðir Finnbogi Jakobs-
son, Sveinn Magnússon og Viðar Hjartarson,
sem er formaður hópsins. Hópurinn hefur
starfað að þessu máli og var Sveinn Magnús-
son framsögumaður f.h. L.í. um samræmingu
framhaldsnáms á fundi norrænu læknafélag-
anna, sem haldinn var í Reykjavík 17.-20. júní
sl. Sérfræðinám verður til umræðu á komandi
aðalfundi, og mun einn nefndarmanna hafa
framsögu í málinu.
Ályktun um, að stjórn, L.í. beiti sér fyrir
ráðstefnu um skipulag og samræmingu sér-
fræðináms íslenzkra lækna heima og erlendis
var vísað til sama starfshóps og síðast
nefnda ályktun. Starfshópurinn komst að þeirri
niðurstöðu, að bezt væri að halda slíka ráð-
stefnu, þegar starf hópsins væri lengra á veg
komið en nú er.
Ályktun um, að stjórn L.í. kanni, hvort koma
eigi á sjúklingatryggingum hér á landi, var
send landlækni, heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneyti og tryggingayfirlækni. Óskað var
eftir upplýsingum um slíkar tryggingar erlend-
is, ef fyrir lægju hjá þessum aðilum, og bárust
gögn frá landlækni þar um.
Alyktun um, að stjórn L.Í. sendi fyrirspurn
til sænskra yfirvalda um lífeyrisréttindi ís-
lenzkra lækna par í landi. Upplýsingar um líf-
eyrisréttindi íslenzkra lækna í Svíþjóð hafa
borizt frá F.Í.L.Í.S. og einnig gengu fulltrúar
L.í. og F.Í.L.Í.S á fund fulltrúa sjúkratrygging-
anna í Svíþjóð og ræddu um rétt íslenzkra
iækna og fleira varðandi þessi mál. Gerð hefur-
verið grein fyrir niðurstöðum í Fréttabréfi
lækna.
Alyktun um, að næsta fjárfestingarverkefni
Orlofsnefndar verði kaup á orlofsíbúð í
Reykjavík, var send Orlofsnefnd (sjá síðar).
Alyktun um, að stjórn L.Í. beini pví til heil-
brigðisráðherra, að stofnun heilsugæzlustöðva
í Reykjavík verði hraðað, var send heilbrigð-
isráðherra, formanni fjárveitinganefndar
Alþingis, borgarstjóra, borgarlækni og fjár-
málaráðherra.
TiIIögu um, að stjórn L.Í. vinni gegn pví, að