Læknablaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 48
308
LÆK.NABLADID
Hjúkrunarskóli íslands verði lagður niður, var
vísað til stjórnar. Stjórnin taldi ekki ástæðu til
að mótmæla, þar sem ákvörðun hafði þegar
verið tekin og mótmæli því tilgangslítil.
Tillaga um greiðslu ferðarkostnaðar á fundi
L.Í., sem aðalfundur vísaði til stjórnar, var
rædd á formannaráðstefnu 18. febrúar sl., án
þess að niðurstaða fengist. Formaður L.í. mun
flytja tillögu á aðalfundinum í ágúst um
greiðslufyrirkomulag.
Undir liðnum Önnur mál var lesin tillaga frá
Læknafélagi Austurlands, sem barst of seint til
að vera tekin sem ályktunartillaga. Par var
lagt til að taka upþ viðræður við vinnuveit-
endur um sérstakar slysa- og líftryggingar
lækna á ferðum í starfi. Tillagan var send
samninganefndum læknafélaganna, en áður
hafa samninganefndir verið með hliðstæðar
kröfugerðir.
Samskipti við önnur lönd
1. Guðmundur Pétursson var fulltrúi L.í. á
Nordisk seminar om medisinsk etik, sem
haldið var í Oslo dagana 22.-24. september
1983. Erindi og umræður fundarins birtust í
norska læknablaðinu (Tidsskrift for den Nor-
ske lægeforening, nr. 5, 1984, 104) og voru
gefnar út sérprentaðar. Guðmundur á sæti í
Siðanefnd L.í.
2. Formaður og framkvæmdastjóri sátu Nor-
disk Sekretariatsmöte í Stokkhólmi dagana 5.
og 6. október 1983. Sekretariatsfundirnir, þ.e.
fundir starfsmanna læknafélaganna eru haldn-
ir annað hvert ár, þau ár, sem »centralstyrel-
se« fundirnir eru ekki. Aðaltilgangur þeirra er
að undirbúa og semja dagskrá miðstjórnafund-
anna. Auk þess var rætt það helzta, sem gerst
hafði á árinu í hverju landi. Einnig var rædd
hugmynd um að koma fastari skipan á sam-
skipti norrænu læknafélaganna með stofnun
Nordisk lakarrád. Framkvæmdastjóri hefur
sótt einn slíkan fund áður, en nú þótti ástæða,
að tveir færu á fundinn héðan, þar sem
ákveðið var, að næsti miðstjórnafundur yrði á
tslandi.
3. Viktor Á. Sighvatsson, þáverandi gjaldkeri
F.Í.L.Í.S., var fulltrúi L.í. á aðalfundi sænsku
læknasamtakanna, sem haldinn var í Stokk-
hólmi 11. og 12. nóvember 1983. Hann sendi
L.f. skýrslu um fundinn.
4. Nordiska centralstyrelsemötet. Stjórnir
læknafélaganna á Norðurlöndum koma saman
á fund annað hvert ár til skiptis á Norður-
löndum. Fundirnir nefnast centralstyrelsemöte
á sænsku og nefndir miðstjórnafundir hér.
Síðasti fundur var haldinn í Reykjavík dagana
17.-20. júní sl., en það er í fyrsta skipti, sem
slíkur fundur er haldinn á íslandi. Sjötíu og
fjórir erlendir og sextán ís'lenzkir fulltrúar
sátu fundinn.
Fastur liður á fundunum er, að gerð er grein
fyrir helztu tíðindum í starfi félaganna frá
síðasta fundi. Mesta athygli vakti frásögn um 7
vikna verkfall, sem finnskir læknar hafa nýlega
staðið í. Það færði þeim 12-14 % launahækk-
un. Kristján Baldvinsson hafði framsögu fyrir
hönd íslands. Annar fastur liður í þessum
fundum er málefni Nordisk Medicin, sem er
gefið út af læknafélögunum á Norðurlöndum.
Hagur blaðsins hefur ekki verið góður undan-
farin ár, en fyrir ári var skipuð ný ritstjórn,
sem hefur gert verulegar breytingar á blaðinu,
og gengur það nú betur fjárhagslega. Rit-
stjórnin telur, að gera þurfi frekari breyting-
ar á blaðinu til að gera það áhugaverðara og
fer fram á aukinn fjárstyrk (10 kr. sænskar
á félaga á ári) næstu 2-3 árin. Telur ritstjórn-
in líklegt, að á þeim tíma geti áhugi auglýs-
enda aukizt svo, að blaðið beri sig.
Fulltrúi Svíþjóðar hafði aðalframsöguerindi
um samræmingu framhaldsmenntunar og sér-
fræðiviðurkenningar á Norðurlöndum, en
framsögu af hálfu íslands hafði Sveinn Magn-
ússon. Á undanförnum árum hefur mikill
áhugi verið á þessu máli og það rætt á ýmsum
samnorrænum fundum læknafélaga, Nordisk
Federation för Medicinsk Undervisning og
landlækna Norðurlanda. Að frumkvæði þeirra
síðast töldu var stofnuð nefnd skipuð einum
frá hverju landi til að vinna að málinu. Það
hefur vakið verulega óánægju, að læknafé-
lögin eiga ekki beina aðild að nefndinni og
fulltrúar Finna, Normanna og Svía í henni eru
embættismenn, sem læknar þekkja ekkert til.
Fulltrúi Dana er læknir með þekkingu á
málinu og landlæknir er fulltrúi íslands. Þor-
valdur Veigar Guðmundsson er varamaður
hans. Fundurinn beindi því til læknafélaganna
að vinna að því hvert í sínu landi að fá beina
aðild að nefndinni, og var Noregi falið að
vinna að sameiginlegri greinargerð, sem öll
félögin gætu staðið að.
Tillaga frá Finnlandi, sem ísland studdi, um
að koma fastari skipan á samskipti læknafé-
laganna með stofnun Nordisk Lákarrád, náði