Læknablaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 52
310
LÆKNABLADID
Arinbjörn Kolbeinsson fulltrúa félagsins í ráð-
ið.
4. Alloft berast óskir frá ýmsum aðilum um að
fá nöfn og heimilisföng lækna til að senda
þeim ýmsar upplýsingar eða auglýsingar.
Stjórnin hefur ákveðið, að nafnalistar skuli
hvorki afhentir fyrirtækjum né einkaaðilum.
5. Árlega berast L.Í. til umsagnar reglugerða-
og frumvarpstillögur. Við gerð athugasemda
leitar stjórnin að jafnaði aðstoðar ýmissa
lækna með sérstaka þekkingu á því sviði, er
tillögurnar fjalla um. Á starfsárinu voru gefnar
umsagnir um frumvörp um tóbaksvarnir, Ljós-
mæðraskóla, tannlækningar, lyfjalög og breyt-
ingar á almannatryggingalögum.
6. Formaður og framkvæmdastjóri notuðu
tækifærið, þegar peir voru í Stokkhólmi á sl.
hausti og sátu fund með íslenzkum læknum, en
hann sóttu um 20 læknar. Einkum var rætt um
atvinnumál, tryggingamál og sampykktir síð-
asta aðalfundar.
7. Að undanförnu hefur tölvuvæðing á skrif-
stofu læknasamtakanna verið í athugun og
pegar verið tekin ákvörðun um kaup á tölvu
með ritvinnslukerfi, sem notist fyrst og fremst
fyrir Fréttabréf lækna og Læknablaðið. Einnig
notast tölvan til spjaldskrárgerðar, útgáfu
ársskýrslna, taxtablaða o.fl. Ráðgefandi sér-
fræðingar vinna nú að tillögum um, hvaða
tölvubúnað og ritvinnslukerfi muni hagstæðast
að kaupa miðað við væntanleg not.
8. Orðanefnd L.í. hefur tekið til starfa eftir
nokkurra ára hvíld. Stjórnin skipaði í nefndina
Bjarna Pjóðleifsson, Magnús Jóhannsson og
örn Bjarnason, og hefur nefndin starfað ötul-
lega undir forystu pess síðast nefnda. Megin
verkefni nefndarinnar er að vinna að nýju
orðasafni í læknisfræði. Haft var samband við
Baldur Jónsson, formann íslenzku málnefnd-
arinnar, og gerði hann tillögu um framgang
málsins, og er unnið samkvæmt henni. Tekizt
hefur náin samvinna milli orðanefndarinnar
og málnefndarinnar. Læknafélag íslands og
Læknafélag Reykjavíkur sampykktu að
greiða laun starfsmanns, Magnúsar Snædal,
cand. mag., í 3 mánuði, en málnefndin legg-
ur til vinnuaðstöðu fyrir hann og ber kostn-
að af tölvunotkun. Petta er aðeins hluti
peirrar vinnu, sem parf að kaupa. Læknafélög-
in greiða laun starfsmanns til að koma málinu
af stað. Sótt var um styrk úr Vísindasjóði,
en hann fékkst ekki. Er nú verið að leita eftir
fjárstuðningi annarra aðila.
9. Á síðasta ári styrkti L.í. námskeið, sem fyrst
og fremst voru ætluð fyrir unga lækna, sem
hyggja á framhaldsnám í lyflækningum. Hug-
myndin er sú, að pessi námskeið verði vísir að
skipulögðu framhaldsnámi. Stjórnin hefur
haldið áfram að styrkja pessi námskeið og
voru haldin prjú slík á sl. vetri, en pau eru skipu-
lögð af yfirlæknum lyfjadeilda sjúkrahúsanna í
Reykjavík.
10. Garðabæjarmál. Seint á árinu 1983 hófu
tveir heimilislæknar störf í Garðabæ sam-
kvæmt númerasamningi. Áður en peir hófu
störf, gerðu þeir samninga við bæjarstjórn um
þátttöku bæjarins í rekstrarkostnaði og um
launatryggingu. Starfsaðstaða peirra var í hús-
næði bæjarins og nefnd Heilsugæzlan í Garða-
bæ. í þessum samningum er m.a. kveðið á
um, að peir muni auglýsa opnun stofu á
hefðbundinn hátt og að önnur auglýsing og
kynning á Heislugæzlunni skuli ekki brjóta á
bága við lög og reglur læknafélaganna. Lækn-
arnir auglýstu opnun stofu í dagblöðum,
jafnframt var opnun Heilsugæzlunnar kynnt í
fjölmiðlum, þ.ám. í blöðum útgefnum í Garða-
bæ. Bæjarstjórn kynnti síðan opnun Heilsu-
gæzlunnar með dreifibréfi til allra bæjarbúa.
Fyrirhugað var, að á öftustu síðu pess dreifi-
bréfs yrði skráningareyðublað, par sem bæjar-
búar gætu skráð ósk um læknaskipti og sent á
bæjarskrifstofuna. Vegna mótmæla læknanna
og læknafélaganna var pó fallið frá pessu og
texta breytt.
Annað dreifibréf var síðan sent 27. des. 1983
til íbúa Garðabæjar, en aftan á pví var
»könnun v/opnunar heilsugæslunnar í Garða-
bæ« á pví, hverjir ætli að skipta um lækni fyrir
31. des. 1983. Dreifibréfinu var síðan safnað
saman af hálfu bæjarstjórnar og mun sú
söfnun hafa staðið fram yfir áramót. í númera-
samningi peim, sem læknarnir störfuðu eftir,
var ákvæði um, að læknaskipti geti einungis
farið fram um áramót, og er þetta áréttað í
dreifibréfinu. í dreifibréfinu sagði ennfremur:
»Rétt er að vekja athygli bæjarbúa á, að hið
nýja rekstrarform Heilsugæslunnar hefur í för
með sér verulegan sparnað fyrir bæjarsjóð og
þar með gjaldendur. Sparnaður pessi næst
ekki nema bæjarbúar bregðist fljótt við og