Læknablaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 51
LÆK.NABLADID
309
Frá fundi stjórna norrænu læknaféiaganna í Reykjavík.
ekki fram að ganga. Svíar og þó sérstaklega
Danir voru því mótfallnir.
Síðasta mál fundarins var hvernig komast
megi hjá atvinnuleysi lækna á Norðurlöndum,
en nú er ljóst, að á þeim öllum stefnir í
atvinnuleysi. Noregur hafði aðalframsögu, en
framsögu af hálfu íslands hafði Porvaldur
Veigar. í öllum löndunum er stefnan sú að
draga úr fjölda þeirra, sem útskrifast úr
læknadeildum. Pá var rætt um aðra möguleika
til að koma í veg fyrir atvinnuleysi, svo sem að
stytta vinnutíma, banna læknum að hafa meira
en einn vinnustað, banna sjúkrahúslæknum að
vinna á eigin stofum, lækka eftirlaunaaldur,
hvetja lækna til að fara meira inn í störf skyld
læknisfræði, og einnig var nefnt, að læknar
snúi þeirri þróun við, að ýmis læknisfræðistörf
færist yfir á aðrar heilbrigðisstéttir.
Á fundinum undirrituðu fulltrúar félaganna
samning um gagnkvæma fjárhagsaðstoð í
vinnudeilum. Samningurinn er á þá lund, að
stjórnir félaganna ábyrgjast aðstoð við það
félag, sem á í vinnudeilum, en gert er ráð fyrir,
að framlag verði síðan endurgreitt innan
tveggja ára, frá því að vinnudeilu lýkur. ísland
undirritaði samkomulagið með fyrirvara um
samþykki aðalfundar.
Pess má geta, að einn daginn tók forseti
íslands, Vigdís Finnbogadóttir, á móti fulltrú-
um og mökum þeirra.
Annar dagur var notaður í ferð um Norður-
land. Var farið til Húsavíkur, Mývatns og
Akureyrar.
Við undirbúning fundarins naut L.í. að-
stoðar ráðstefnudeildar Flugleiða. Hvert land
greiðir kostnað við sendinefnd sína, en þrátt
fyrir það fellur ávallt einhver aukakostnaður á
gestgjafana. Búnaðarbanki íslands veitti L.í.
góðan fjárstuðning til að standa straum af
þeim kostnaði. Stjórn L.í. er þakklát öllum
þeim aðilum, sem stuðluðu að því, að fund-
urinn þótti takast mjög vel.
Ýmis mál
1. Á aðalfundi 1983 voru þeir Jón Steffensen
og Þóroddur Jónasson kjörnir heiðursfélagar
Læknafélags íslands. Að lokinni formannaráð-
stefnu L.í. þann 18. febrúar sl. hafði stjórnin
móttöku fyrir nýkjörna heiðursfélaga og
nokkra gesti. Par afhenti formaður heiðursfé-
lögunum skrautrituð skjöl til staðfestingar
kjörinu. Gunnlaugur Snædal ávarþaði Jón
Steffesen og Tómas Árni Jónasson ávarþaði
Pórodd Jónasson. Jafnframt fóru þeir nokkrum
orðum um störf hinna nýju heiðursfélaga.
Ávörþin birtust í Fréttabréfi lækna, 3. tbl.
1984.
2. Árleg móttaka stjórna Læknafélags íslands
og Læknafélags Reykjavíkur fyrir nýútskrif-
aða læknakandídata fór fram sunnudaginn
27. maí sl.
3. Bandalag háskólamanna hefur stofnað Öld-
ungaráð, sem á að vinna að hagsmunum eldri
félaga innan B.H.M. Stjórn L.í. hefur skiþað