Læknablaðið - 15.11.1984, Side 54
312
LÆKNABLADIÐ
síðan 2 % 1. júní, 3 % 1. sept. og 3 % 1. janúar
1985.
Enda þótt aðrar breytingar fengjust ekki og
fjármálaráðherra skrifaði undir með þeirri
yfirlýsingu, að engar almennar flokkatilfærslur
né kjarabreytingar fylgdu í komandi sérkjara-
samningum, virtust forráðamenn B.H.M.
sæmilega ánægðir og þá fyrst og fremst
vegna þess, að fjármálaráðherra lofaði að
beita sér fyrir lagabreytingu á þann veg, að
samningstími yrði samkomulagsatriði hverju
sinni og aldrei lengri en eitt ár nema með
samþykki launamálaráðs. Petta loforð var efnt
með lögum nr. 41/1984, þannig að samnings-
tími er samkomulagsatriði hverju sinni, en fari
aðalkjarasamningur fyrir Kjaradóm, er gild-
istími hans 1 ár. Pá var gildistími þessa
aðalkjarasamnings styttur til 28. febrúar 1985.
Einnig var gerð bókun samhliða samningn-
um um skipun nefndar til að bera saman kjör
háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og kjör
þeirra, sem vinna hliðstæð störf annars staðar.
Ríkið leggi nefndinni fullt liðsinni til að inna
verkefnið af hendi. Launamálaráð B.H.M. taldi,
að með þessum 2 atriðum væri stigið fyrsta
raunhæfa skrefið um langt árabil í þá átt að ná
fram því megin markmiði kjarabaráttu há-
skólamenntaðra ríkisstarfsmanna, að þeirra
störf séu metin hliðstætt til launa og störf há-
skólamanna hjá öðrum launagreiðendum.
B.H.M. fékk síðar á árinu 5 % hækkun frá 1.
marz í stað áður umsaminna 4.5 % með
hliðsjón af samningum við B.S.R.B.
Sérkjarasamningur fastráðinna iækna.
Samningur var undirritaður 23. maí sl. Gildis-
tími er sá sami og aðalkjarasamnings B.H.M.
Þessar breytingar einar urðu frá fyrri samn-
ingi:
— Læknar á heilsugæzlustöð H-1 taki alltaf
laun einum launaflokki ofar en starfsaldur
og önnur ákvæði segja til um.
— Læknar, sem grunnraðað er í launaflokk
118 eða ofar, hækki um 1 flokk eftir 3 ár í
því starfi.
— Þá var sett inn í samninginn til áréttingar á
aðalkjarasamningsatriði, að tímakaup skuli
greitt á ferðum í fastar móttökur utan
eigin heilsugæzlustöðva, en við hafði bor-
ið, að læknum hafði yfirsést réttur til
slíkra greiðslna.
Eftirfarandi bókun var gerð með samningnum:
»Samningsaðilar munu í samvinnu við heil-
brigðismálaráðuneytið gera úttekt á starfsað-
stöðu og starfskjörum heilsugæslulækna þó
sérstaklega á H-1 stöðvum svo og heilsu-
gæslulækna, sem jafnframt eru héraðslækn-
ar. Stefnt er að því að niðurstöður athugunar
þessarar liggi fyrir eigi síðar en í janúar 1985.«
Gjaldskrá heimiiisiækna. Gjaldskrársamn-
ingurinn rann út 29. febrúar sl. Miklar umræð-
ur hafa farið fram um hann meðal heimilislækna
í tengslum við nýjan samning heimilislækna
utan heilsugæzlustöðva, en sá samningur tók
gildi 1. maí sl. og þar með varð loks samfylking
allra heimilislækna um hagsmuni, sem verður
að vinna að á næstunni. Heimilislæknar töldu
rétt að bíða með samningaviðræður um gjald-
skrána eftir þeirri samfylkingu og verður fyrsti
fundur haldinn 19. júlí n.k.
Hækkun sjúklingagjalds frá 1. júní sl. hefur
raunar gjörbreytt forsendum síðasta gjald-
skrársamnings og hinum nýja samningi heim-
ilislækna utan heilsugæzlustöðva.
Gjaldskrármálið er orðið eitt af stærstu
kjaralegu hagsmunamálum allra heimilis-
lækna. Unnt er að sýna fram á, að gjaldskrá-
in þyrfti að hækka um 150-160% miðað við
þróun almennra launa á vinnumarkaðnum frá
árinu 1962, þegar hún var ný af nálinni.
Samningaviðræður vegna gjaldskrárinnar
koma ekki til með að leysa þau stórmál, sem
heimilislæknar standa frammi fyrir í þessum
efnum.
í september n.k. verður haldin kjararáð-
stefna heimilislækna. Vonir standa til, að þá
muni loks gefast tækifæri til að sameina
allan hópinn til atlögu í málinu.
Samningur sjúkrahúslækna. Nýr samningur
var undirritaður 6. marz sl. Um gildistíma hans
fer eftir lögum um kjarasamning B.H.M.,
þannig að hann rennur út 28. febrúar n.k.
Launabreytingar urðu þær sömu og getið er
hér að framan hjá B.H.M., en fyrsta hækkun
5 % kom þó strax frá 1. marz.
Samningur heimilislækna utan heilsugæzlu-
stöðva. Gildistími samnings númeralækna var
frá 1. sept. 1982 til 31. des. 1983. Enda þótt
samningstímabil væri stutt, var hægt að segja
þeim samningi upp með 3ja mánaða fyrirvara
af hálfu hvors samningsaðila og var það með
hliðsjón af áformum um breytingu úr númera-
kerfi yfir í kerfi heilsugæzlustöðva.
A fundi númeralækna 29. des. sl. var