Læknablaðið - 15.09.1985, Side 41
LÆKNABLAÐIÐ
240
heilbrigðisþjónustunnar. Framboð og eftir-
spurn heilbrigðisþjónustu stjórnast til dæmis
af allt öðrum lögmálum heldur en menn eiga
að venjast á öðrum sviðum. Þannig er ekki
unnt að treysta á eftirspurnina til að ákvarða
framboðið. Sé eftirspurnin látin ráða þá
kemur fram óhagkvæmt og misvaxið heil-
brigðiskerfi.
Þeir, sem sjá skipan heilbrigðisþjónust-
unnar í ljósi kerfisfræðinnar, sækjast eftir að
skipuleggja hana þannig, að þjónustan sé veitt
á ódýrasta þrepi, sem unnt er, miðað við eðli
kvillans.
í flestum heilbrigðiskerfum virðist vera rík
tilhneiging í gagnstæða átt. Eftirspurnin leitar
upp eftir stiganum og gæti það verið bundið
þeim miklu vonum sem almenningur bindur
við árangur tæknivæddrar og sérfræðilegrar
þjónustu.
í því skyni að kanna tvö atriði, sem skipta
miklu um stefnumörkun við uppbyggingu
heilsugæslumála hér á landi hefur grein-
arhöfundur kannað rannsóknir, sem leitast
við að svara eftirfarandi spurningum:
1. Hvaða þættir ráða mestu um þörf fyrir
sjúkrahúsþjónustu?
2. Hefur heilsugæsla áhrif á þörf fyrir
sjúkrahúsþjónustu?
HVAÐA ÞÆTTIR RÁÐA MESTU UM
ÞÖRF FYRIR SJÚKRAHÚSÞJÓNUSTU?
Rokkones og Forsén skoðuðu, árið 1982,
innlagnir á handlæknis- og kvennadeildir á
tveimur aðgreindum upptökusvæðum í Nor-
egi (1). Þar var mismunur á innlagnartíðni
meiri en svo, að tilviljun gæti ráðið. Til að
skýra mismuninn voru athuguð alls 50 sam-
eiginleg einkenni en aðeins fimm þeirra
reyndust með vissu hafa áhrif:
1. Fjöldi sjúkrarúma, því fleiri rúm þeim
mun fleiri innlagnir.
Þetta má túlka með tvennum hætti. í fyrsta
lagi að þetta sýni að sjúkrarúmaþörf sé ekki
fullnægt, þar sem rúmin eru færri og í öðru
lagi, að aukið framboð eitt sér (fleiri rúm)
skapi aukna eftirspurn.
2. Fjöldi 67 ára og eldri jók bráðainnlagnir.
Innlagnir af biðlista voru óháðar fjölda
aldraðra og kom sú niðurstaða á óvart.
3. Jákvætt samband var milli Iyfjanotk-
unar og fjölda innlagna af biðlistum.
Höfundar telja að lyfjanotkun endurspegli
sjúkdómatiðni.
4. Fjöldi læknisvitjana í heimahúsi: því
fleiri vitjanir, þeim mun færri innlagnir.
5. Þéttbýlishlutfall: því stærri hluti íbúanna
í þéttbýli þeim mun fleiri bráðainnlagnir.
í rannsókninni fannst ekkert samband milli
fjölda innlagna og fjölda íbúa á heimislækni,
og kostnaður við læknishjálp utan sjúkrahúsa
á íbúa hafði ekki áhrif á innlagnartíðni.
Peter Hjort og Harald Rohde (2) athuguðu,
1982, hvers vegna íbúarnir í Akershus-fylki í
Noregi komust af með færri sjúkrarúm en
Oslóbúar, og hvers vegna hinir fyrrnefndu
greiddu næstum helmingi minna fyrir heil-
brigðisþjónustu á íbúa en Oslóbúar. Þeir
komust að þeirri niðurstöðu, að helsta
ástæðan væri, að heilbrigðisþjónusta í Akers-
hus væri í mun betra samræmi við raunveru-
lega þörf, heldur en í Osló, þar sem er meira
af yfirsérhæfðum sjúkrahúsum og hjúkrun-
arheimilum, en of lítið af deildarsjúkrahús-
um og dvalarheimilum. Heimilislækningar,
heimahjúkrun og heimilishjálp væru einnig
minni i Osló en í Akershus. Höfundar telja
að í Akershus fái menn ekki aðeins ódýr-
ari þjónustu, heldur einnig betri.
Höfuðástæðuna segja þeir vera betra hlutfall
milli stofnanaþjónustu, heilsugæslu- og
félagsþjónustu. Þá fundu þeir, að þrátt fyrir
fleiri sjúkrarúm í Osló er eftirspurn eftir
plássum þar meiri en í Akershus, sem kemur
heirn og saman við (9). Nýtingatala sjúkra-
húsa var einnig hærri í Osló en Akershus, um
100% á móti 81,4%.
Það er niðurstaða höfundanna, að í Noregi,
líkt og talið hefur verið í Bretlandi, endur-
spegli eftirspurn eftir þjónustu ekki þörfina.
Því sé ekki unnt að byggja á lengd biðlista við
áætlanagerð í sjúkrahúsmálum. Það er með
öðrum orðum ekki unnt að »byggja sig út úr
sjúkrarúmaskorti«, biðlistar myndu ekki
styttast. Höfundar telja óhætt að fækka
sjúkrarúmum í Osló, ef heilsugæsla og
félagsþjónusta væri byggð upp samtímis.
Otterstad (3) gerði athugun á framboði og
eftirspurn eftir bráðasjúkrarúmum á hand-
læknis- og lyflæknisdeildum í Östfoldfylki í
Noregi en þar eru fimm héraðssjúkrahús sem
hafa aðgreind upptökusvæði. Hann fann að
legudagar voru því fleiri sem rúmin voru fleiri.
Einnig fann hann, að nýtingartala var hærri