Læknablaðið - 15.09.1985, Síða 48
244
LÆKNABLAÐIÐ
ástæðum hæpnar. Þær fá því aðeins staðist að
aðrir þættir heilbrigðisþjónustunnar séu
staðnaðir. Rannsóknir á samhengi utan- og
innanspítalaþjónustu eru áreiðanlegastar, ef
færi er á að rannsaka hver áhrif bætt
utanspítalaþjónusta hefur á innlagnartíðni.
Slíkar inngripsrannsóknir staðfesta þá
tilgátu, að innlagnartíðni lækkar með bættri
heilsugæslu (4, 7, 8, 9, 14, 15, 16, 17).
Athugun Kekkis (4) er afar athyglisverð í
þessu sambandi. Hann sýnir fram á að fjölgun
lækna við heilsugæslu í Finnlandi hefur
margvísleg áhrif á öðrum þjónustusviðum.
Honum tókst einnig að reikna út beinan
sparnað af uppbyggingu heilsugæslunnar í
Finnlandi. Fjölmargar rannsóknir á vaxandi
aðsókn á göngudeildir (slysadeildir)
sjúkrahúsa sýna að hana má rekja til skorts á
heimilislæknisþjónustu (19, 20, 21, 22, 23,
25). Þessi þróun hefur einnig átt sér stað hér á
landi (25).
Rannsóknir sýna einnig, að bætt heimilis-
læknisþjónusta dregur úr aðsókn á göngu-
deildir (26, 27, 28). Rannsóknir á tilvísana-
tíðni til sérfræðinga hér á landi benda til þess,
að tilvísunum fækki með bættri starfsaðstöðu
í heimilislækningum. Könnun á tíðni tilvis-
ana frá heimilislæknum utan heilsugæslu-
stöðva í Reykjavík sýndi að hlut fall þeirra af
komum á stofu var 18,5% (36) en á heilsu-
gæslustöðvum i Reykjavík 4,5-9,8%.
SKIL
Það sem er ekki síst athyglisvert við þær
rannsóknir, sem hér hafa verið dregnar
saman, er hreyfanleikinn milli hinna ýmsu
þátta heilbrigðisþjónustunnar. Þessi hreyfan-
leiki styður þá skoðun að líta megi á heil-
brigðisþjónustuna sem keðju, þar sem hver
hlekkur er öðrum háður. Helstu ályktanir,
sem draga má af því efni, sem hér hefur verið
kynnt eru eftirfarandi:
1. Til að saman fari gæði og hagkvæmni í
heilbrigðisþjónustunni þurfa hinir ýmsu
þjónustuþættir að hafa rétt vægi.
2. Sjálfkrafa tilhneiging er til eftirspurnar
eftir sérhæfðri og tæknivæddri þjónustu.
Góð utanspítalaþjónusta dregur úr þessari
tilhneigingu.
3. Sjúkrarúmaþörf er ekki föst útreiknanleg
stærð heldur er hún að nokkrum hluta
afleidd af þjónustu á öðrum sviðum og háð
skipulagi heilbrigðisþjónustunnar.
4. Ýmsir þættir aðrir en sjúkdómar og skipu-
lag heilbrigðisþjónustu hafa áhrif á eftir-
spurn eftir sjúkrarúmum. Þar má nefna
rúmaframboð, aldursdreifingu, félags-
aðstæður og byggðahætti (þéttbýli/
dreifbýli).
Þakkir: Höfundur þakkar starfsfólki á skrifstofu land-
læknis, sérstaklega Kirsten bókaverði, fyrir góða aðstoð
við öflun heimilda.
HEIMILDIR
1) Rokkones T, Forséri L. Innleggelser i sykehus -
ársaker till forskjeller mellom kommunene i Möre og
Romsdal. HAVF: Gruppe for helsetjenesteforsk-
ning, Oslo. Rapport nr. 4, 1982.
2) RhodeT, Hjort PF. Tilbud og forbruk av helsetjene-
ste - hva kan vi lære av forskjellene mellom Oslo og
Akershus? Tidsskr Nor Lægeforen 1982; 102: 698-
702.
3) Otterstad HK. Hva bestemmer forbruket av akutt-
senger - behov eller tilbud? Tidsskr Nor Lægeforen
1982; 102: 264-70.
4) Kekki P. Analysis of relationship between availabili-
ty of resources and the use of health services in
Finland. A Cross-Sectional study. MedCare 1980; 8:
1228-40.
5) Nobrega FT, Krishan I, Smoldt RK, Davis CS, Abott
JA, Mohler EG et al. Hospital use in a fee - for -
service system. JAMA 1982; 247: 806-10.
6) Cullis JG, Foster DP, Frost OEB. Met and unmet
need for hospital beds. Some recent evidence. Rev
Epidemiol Sant Publique 1981; 28: 155-66.
7) Mayward EJ. Introducing a health center: Effects on
general hospital admissions. Community Health
Stud 1982; 6: 239-45.
8) Najman JM, Jones J, Gibson D, LuptonG, PayneS,
Sheehan M et al. The impact of health centers in
Brisbane on some community Health indicators.
Community Health Stud 1981; 5: 11-21.
9) White KL. Health services: Concepts and informati-
on for national planning and management. Public
Health pap WHO 1977 (67).
10) Mason WB, Bedwell CL, Zwaag RV, Runyan JW.
Why people are hospitalized. A description of
preventable factors leading to admission for medical
illness. Med Care 1980; 18: 147-63.
11) Donaldson SN, Wheeler MR, Barr A. Demand for
patient care. Br Med J 1977; 2: 799-802.
12) Bordal D, Sorensen BH, Holten G, Christensen H,
Christensen K, Jensen HF et al. Unnecessary
hospitalizationofchildren. Ugeskr Læger 1978; 140:
619-29.
13) Skýrsla um sjúklingatal á sjúkrastofnunum í
Reykjavíkurlææknishéraði 31. marz 1981. Heil-
brigðismálaráð Reykjavíkurlæknishéraðs, Apríl
1982.
14) Bellin SS, Geiger HJ, Gibson CD. Impact of
ambulatory - health care services on the demand
and for hospital bed. N Engl J Med 1969; 280: 808-
12.
15) Okada LM, Wan TT. Impact of community health
centers and medicaid on the use of health services.
Public Health Rep 1980; 95: 520-34.