Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1986, Blaðsíða 24

Læknablaðið - 15.01.1986, Blaðsíða 24
Ogilvy & Mather, Kbh. Ibumetin' (ibuprofenum) Ábendingar: Gigtsjúkdómar er valda verkjum, sérstaklega bólgusjúkdómar. Tíöaverkir. Frábendingar: Gætið varúðar við sár- sjúkdóm, alicylsýruofnæmi, lifrar- og nýrnabilun. Einnig við blæðingatilhneig- ingar, þar sem ibuprofen hindrar blóð- flögusamloðun og lengir blæðingartim- ann. Skammtastærðir: Skammtar einstak- lingsbundnir. Verkjastillandi áhrif nást með 800-1200 mg daglega i 3-4 skömmtum. Til þess að ná bólgueyðandi áhrifum þarf allt að 1800 mg á sólarhring í 3-4 skömmtum. Skammtinn er hægt að auka í 3200 mg á sólarhring, en þá aðeins um stuttan tima (4-6 vikur). Skammta- stærð við tíðaverkjum er 400 mg á 6-8 klst. fresti eftir þörfum. Hámarksskammtur: Sjá (framangreint). Barnaskammtar: Ibuprofen á ekki aó nota fyrir börn, þar sem ekki hefur fengist nægileg reynsla. Aukaverkanir: Meltingarfæri: Verkir, ó- gleði, uppköst, niðurgangur. Greint hefur verið frá svæsnum blæðingum frá melt- ingarfærum. Miðtaugakerfi: Höfuðverk- ur, svimi, suða fyrir eyrum eru algeng, en væg einkenni. Blóð: Greint hefur verið frá einstaka sjúklingi með fækkun á blóðflögum, kyr- ningum, kyrningahrapi og blóðkorna- hrapi. Ofnæmisviðbrögð eru sjaldgæf. Lýst er tímabundnum sjóntruflunum. Einnig kemur fyrir truflun á þvaglátum. Milliverkanir: Milliverkanir ibuprofen og annarra lyfja hafa sjaldan verið greindar. Hætta er á aukinni virkni storkuminnk- andi lyfja, sykursýkislyfja og fenýtións. Eitranir og meöferö þeirra: Einkenni ennþá litt kunn. Banvænn skammtur óþekktur. 12-16 g ibuprofen hafa valdið meðvitundarleysi. Meðferð: Innlögn á sjúkrahús við alvarleg einkenni.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.