Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1986, Blaðsíða 27

Læknablaðið - 15.01.1986, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 15 börnum var sleppt við gerð vaxtarrita þyngd- ar, og hvers vegna. Gæta ber þess að í hverri línu töflunnar eru ekki talin með þau börn sem þegar hefur verið sleppt vegna áður talinna ástæðna. Fjöldi barna eftir lengd meðgöngu og kyni er sýndur í töflu II, ásamt meðalþyngd og staðalfráviki fyrir hverja viku. Sú stað- reynd að fyrirburafæðingar eru fáar, einkum fyrir 34. viku meðgöngu, veldur tilviljana- kenndum sveiflum í tölum. Eðlilegt er því, að jafna þessar sveiflur við gerð vaxtarrita, sem nota á í daglegu starfi. Almennt er viðurkennt að þyngd nýbura við ákveðna lengd meðgöngu fylgi »normal- dreifingu« og eru því ýmist notuð hugtökin miðgildi (50% fraktíl) eða meðaltal. Enn- fremur eru venjulega notuð jöfn frávik upp og niður frá þessu gildi. Ýmist er miðað við staðalfrávik eða fraktíl samkvæmt normal- dreifingu. Hér er valin sú leið, að teikna fraktilrit hverrar viku meðgöngu á línuritspappír, þar sem kvarði lóðrétta ássins er þannig, að ferill normal-dreifingarfalls verður bein lína (pro- bit scale). Sýnt er dæmi um þetta á mynd 1. Dregnar eru síðan beinar línur eftir auganu og virðist ekki vera um reglubundin frávik frá þeim að ræða. Gildi frá þessum línum eru því notuð til þess að draga upp vaxtarritin, þ.e. 10, 50 og 90% fraktíl. Mynd 2 er þyngdarrit fyrir drengi og stúlkur eftir 28. viku meðgöngu. Stöðug þyngdar- Tafla 1. Fjöldi barna sem talin eru með við gerð vaxtarrita (þyngd). Fjöldi Fjöldi útilok- eftir arra útilokun Börn alls....................... 43.364 Andvana fædd...................... 296 43.068 Lifandi fæddir fjölburar.......... 750 42.318 Vantar meðgöngulengd.............. 240 42.078 Meðgöngulengd augljóslega rangt skráð........................... 13 42.065 Meðgöngulengd undir 28 vikum.... 64 42.001 Meðgöngulengd 45 vikur eða meira .. 6 41.995 Vansköpun....................... 1.000 40.995 Vantar þyngd ...................... 15 40.980 Samtals 2.384 aukning verður hjá báðum kynjum fram til 40. viku, en hún hægir á sér eftir það. Þyngdin minnkar jafnvel eftir 42. viku. Drengirnir eru að meðaltali 150 grömmum þyngri en stúlk- urnar (5). Sá munur virðist byggjast á fæðing- um eftir 35. viku, en fyrir þann tíma er þyngd- in svipuð hjá báðum kynjum. Er hér um að ræða þekkt fyrirbæri. Mynd 3 sýnir að fyrsta barn hverrar konu er að jafnaði léttara en síðari börn. Er þessi munur þegar til staðar við 28 vikna með- göngu, en eykst nokkuð er á líður og er orðinn um 150grömm viðfullameðgöngu. Þessimun- ur er álíka mikill hjá báðum kynjum. Verður að hafa þetta í huga þegar vaxtarrit eru notuð. 1000 1400 1800 2200 2600 3000 3400 3800 4200 4600 Mynd 1. Fraktílrit á líkindakvarða (probit-scale) um dreifingu fæðingarþyngdar fyrir hverja viku meðgöngulengdar. Drengir.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.