Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1986, Qupperneq 7

Læknablaðið - 15.11.1986, Qupperneq 7
LÆKNABLAÐIÐ 289 skjaldkirtilshnútum, sem reyndist vera 6 af 20 körlum (30%) og 14 af 85 konum (16,5%). Samtals voru 20 af 105 sjúklingum með krabbamein (19,05%). Þetta eru mjög svipaðar tölur og Þórarinn Guðnason fann hjá 92 sjúklingum, sem hann gerði grein fyrir árið 1971 á þingi Nordisk Kirurgisk Forening í Reykjavík (10). Þórarinn fann krabbamein hjá 16 sjúklingum eða 17.3%, hjá fjórum af 10 körlum (40%) og 12 af 66 konum (18,8%). Báðar þessar rannsóknir sýna fremur háa tíðni miðað við erlendar rannsóknir, sem eru gjarnan á bilinu 7,7%-28,7%. (1-6). Búast má við hærri tíðni í síðari rannsóknum þar eð færri sjúklingum er vísað til skurðaðgerðar með tilkomu ómsjár og fínnálarsýna, sem hafa leitt til nákvæmari sjúkdómsgreiningar. Athyglisvert er, að nær helmingur sjúklinga með krabbamein í skjaldkirtli leitaði læknis vegna einkenna óskyldum skjaldkirtli, en hnútur fannst við almenna skoðun. Þegar sjúklingi er ráðlögð skurðaðgerð vegna þess að vissar tölulegar líkur eru á krabbameini, verður einnig að hafa í huga hugsanlega aukakvilla skurðaðgerðar. Annars vegar er lágt blóðkalk, sem krefst meðferðar og varanlegur skaði á afturhvarfstaug. Samkvæmt erlendum rannsóknum varð slíkur taugaskaði hjá 0,3-13,2% sjúklinga, (11, 12), en ef litið var á sérdeildir, þar sem læknar höfðu mikla reynslu í skjaldkirtilsaðgerðum var taugaskaði hjá 0,3-2% sjúklinga (12, 13), en eins og fyrr segir kom þessi aukaverkun fram í 1.8% þeirra tauga sem í hættu voru hjá þessum 105 sjúklingum. Á móti þessu ber að vega árangur aðgerðanna. Krabbamein fannst hjá 19% sjúklinga í þessari rannsókn og tel ég það réttlæta þá áhættu sem skurðaðgerð hefur. SUMMARY The records of 105 patients operated upon by the author for a »thyroid nodule« from 1975-1983 were reviewed. Men had a higher incidence of cancer in thyroid nodules or 30% (6 of 20) whereas the incidence for women was 16.47% (14 of 85). The overall incidence was 19.05% (20 of 105). This is in keeping with the known high incidence of thyroid carcinoma in Iceland which has been shown to be 2.6 pr. 100.000 for men and 7.2 pr. 100.000 for women. After 1981 fewer patients were operated upon, possibly because of increased use of ultrasound and fine needle aspiration for diagnosis. Recurrent laryngeal nerve palsy occurred in 1.8% based on the number of nerves at risk. One patient had postoperative hypocalcemia requiring treatment. Almost 50% of the patients who proved to have carcinoma of the thyroid were first found to have a thyroid nodule on general physical examination for problems unrelated to the thyroid or neck. HEIMILDIR 1. Hoffman GL, Thompson NW, Heffron C. The Solitary Thyroid Nodule. A reassessment. Arch Surg 1972; 105: 379-85. 2. Sanfilippo P, McConahey H, Beahrs OH, Thorvaldsson SE. Indications for Thyroidectomy. Mayo Clin Proceedings 1978; 48: 262-73. 3. Beahrs OH, Pemberton J, Black BM. Nodular Goiter and Malignant Lesions of the Thyroid Gland. J Clin Endocrinol Metab 1951; 11: 1157-65. 4. Brown L, Kantonis S. The Thyroid Nodule. View from the Community Hospital. Am J Surg 1975; 129: 532-6. 5. Bellegies NJ, Baskin RH, Sims G, Turney WH, Fender HR. Experience with Malignant Tumors of the Thyroid Gland in Private Surgical Practice. SGO 1982; 155:62-4. 6. Haugen SE, Sörlie DG, Sæboö-Larsen J, Sundsfjörd JA. To the Management of the Solitary Thyroid Nodule. Acta Chir Scand 1981; 147: 193-5. 7. Ringertz N (ed.). Cancer Incidence in Iceland, Norway and Sweden. Acta Path Microb Scand. Sect A. Suppl. 224, 1971. Quoted in (8). 8. Bjarnason Ó. Possible Environmental Risk Factors in the Causation of Thyroid Cancer in Iceland. Geomedical Aspects in Present and Future Research. Oslo, Bergen Tromsö, Universisetsforlaget 1980. 9. Sigurjónsson J. Studies on the Human Thyroid in Iceland. Thesis. Reykjavík 1940. 10. Þórarinn Guðnason. Personal communication. 11. Elmer A, Fex S, Ingelstedt S. Nerve Injury in Thyroid Surgery. Acta Chir Scand 1968; 134: 103-5. 12. Martenson H, Terins J. Recurrent Laryngeal Nerve Palsy in Thyroid Gland Surgery Related to Operation and Nerves at Risk. 1985; 120: 475-7. 13. Beahrs OH, Ryan R, White R. Complications of Thyroid Surgery. J Clin Endocrinol Metabol 1956; 16: 1456-69.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.