Læknablaðið - 15.11.1986, Page 8
290
1986; 72: 290-7 LÆKNABLAÐIÐ
Birna Þórðardóttir
SJÚKRAHÚSIÐ Á AKRANESI
Sjúkrahús Akraness tók til starfa 3. júni 1952.
Snemma sumars ákvað ritstjórn Læknablaðsins
að hafist skyldi handa við öflun upplýsinga um
sjúkrahús landsins. Reynt yrði að afla upplýsinga
um þjónustusvæði viðkomandi stofnana,
starfsvettvang, vinnuaðstæður, staðbundna
erfiðleika og framtíðarhorfur, þannig að eitthvað
sé nefnt.
Ákveðið var að leita ekki langt yfir skammt og
hefjast handa á Akranesi. Flett var upp i bókinni
»Læknar á íslandi« eftir Lárus H. Blöndal og
Vilmund Jónsson til að afla sögulegra fanga. Þar
er að finna yfirlit yfir sjúkrahús og sjúkraskýli á
íslandi fram til ársins 1965. Sjúkrahúsi Akraness
er þar í engu getið. Ekki var það látið aftra för og
þann 10. júní lagði ritstjóri Læknablaðsins land
undir fót ásamt ritstjórnarfulltrúa og blaðamanni
og var Sjúkrahús Akraness sótt heim.
Læknarnir Ari J. Jóhannesson, Bragi Níelsson og
Guðjón Guðmundsson, allir yfirlæknar á
sjúkrahúsinu, veittu ljúflega upplýsingar og voru
okkur innan handar í hvívetna. Einnig leituðum
við upplýsinga hjá Jóhönnu F. Jóhannesdóttur
hjúkrunarforstjóra og Ásthildi Einarsdóttur
hjúkrunarframkvæmdastjóra. Kunnum við þeim
bestu þakkir og ekki síður öðru starfsfólki
sjúkrahússins sem veitti okkur aðstoð.
Rétt er að taka fram að þótt einkum hafi verið
leitað upplýsinga hjá fyrrnefndum yfirlæknum og
öðru tilgreindu starfsfólki, þá eru allar skoðanir á
ábyrgð blaðamanns eins.