Læknablaðið - 15.11.1986, Qupperneq 14
294
LÆKNABLAÐIÐ
í sumum tilvikum hefur þessu starfsfólki verið
útvegað húsnæði í starfsmannabústöðum og
stundum er einnig mögulegt að bjóða dagvistun
fyrir börnin.
Lyfjafræðingur kemur ársfjórðungslega og lítur
eftir lyfjabúri sjúkrahússins.
Alls starfa um 230 manns í 160 stöðugildum á
Sjúkrahúsi Akraness og er sjúkrahúsið
fjölmennasti vinnustaður á Akranesi.
Er þörf fyrir sjúkrahús á Akranesi?
Á Akranesi eru um 5400 íbúar, með
nágrannasveitum sunnan heiða eru íbúarnir
nálægt 6000. Þessu svæði þjónar
heilsugæslustöðin á Akranesi. Sjúkrahúsið
þjónar auk þess öllu Vesturlandi að miklum
hluta, en geta má þess að Reykjavík er í þriðja
sæti hvað notkun snertir. Starfssvæði
sjúkrahússins hefur þó engin föst landamerki,
þannig að mögulegur sjúklingafjöldi er
breytilegur.
Samgöngur ráða einnig hve vel sjúkrahúsið
þjónar svæðinu. Menn hugsa sig t.d. tvisvar um
áður en fárveikir sjúklingar eru settir upp í bíl og
ekið með þá um sveitir Vesturlands.
Viðmælendur okkar voru á einu máli um að
Sjúkrahús Akraness yrði að starfrækja sem
deildaskipt sjúkrahús með
bráðaþjónustudeildum.
Með tilliti til þeirrar þjónustu sem nú er veitt þá
eru íbúar Akraness og nágrannasveita of fáir til
að nýta alla þjónustu sjúkrahússins. Til að bera
uppi fulla starfsemi á sjúkrahúsinu þyrftu íbúar
að vera um 15.000, að mati viðmælenda okkar.
Þar við bætist að sjúklingar liggja skemur inni á
sjúkrahúsum en áður þannig að hægt er að sinna
fleirum.
Sjúkrahúsið tekur við sjúklingum úr Borgarfirði,
Dölum, af Snæfellsnesi, Norð-Vesturlandi og auk
þess frá Reykjavík og reyndar víðar að og hefur
verið með rúmlega 100% nýtingu á sjúkrarúmum.
Flestir sjúklinga sem komið hafa frá Reykjavík
leggjast inn á kvenlækningadeild, eða alls um
24% af heildarfjölda sjúklinga á deildinni. Á
handlækningadeild koma um 16% frá Reykjavík
og nálægt 4% á lyflækningadeild. Þessar tölur
eru frá árinu 1985. Sjúklingar koma bæði að eigin
frumkvæði og að tilvísun Iækna sem starfa við
sjúkrahúsið og sinna sjúklingum í Reykjavík.
Margir sjúklingar fylgja læknunum eftir, og
margir burtfluttir Akurnesingar leita lækninga á
heimaslóðum. Algengt er að burtfluttar konur
komi á Skagann til að ala börn og sækja um leið
í skjól ættingja.
Verksvið Sjúkrahúss Akraness og tengsl við aðrar
sjúkrastofnanir
Á sjúkrahúsinu verður að vera hægt að sinna allri
bráðameðferð. Að sögn lækna geta þeir það, með
tiltölulega fáum undantekningum.
Á deildaskiptu sjúkrahúsi er þörf á sérhæfingu en
þegar ekki er um fleiri sérfræðinga að ræða en á
Sjúkrahúsi Akraness verður hver og einn að sinna
fleiru en þröngri sérgrein.
Slysadeild er sinnt af sameiginlegum vöktum og er
hún rekin á svipaðan hátt og slysadeild
Borgarspítalans. Verði slys í Borgarfirðinum er
hinum slösuðu sinnt frá Akranesi nema um
stórslys sé að ræða, þá getur verið nauðsynlegt að
flytja slasaða til Reykjavíkur.
Akranes er svolítið úr þjóðbraut og
ferðamannastraumurinn liggur meira í gegnum
Borgarnes. Þjónusta við ferðamenn kemur þar af
leiðandi meira til kasta heilsugæslulækna í
Borgarnesi. Fólk sem dvelur í sumarbústöðum og
orlofssvæðum í Borgarfirði leitar mikið til
Borgarness, en sjúklingar eru sendir til
sjúkrahússins ef þörf krefur og svipað er að segja
um skólana yfir vetrartímann.
Tengsl við heilsugæslulæknana í Borgarnesi hafa
verið mjög góð. Þeir geta hringt á sjúkrahúsið
allan sólarhringinn og náð þar í sérfræðinga og
vaktlækna endranær.
Heimafæðingar þekkjast ekki lengur á
heilsugæslusvæðinu, allar fæðingar eiga sér stað
á sjúkrahúsinu. Fæðingastofur eru tvær og fjöldi
fæðinga yfirleitt frá 170 til 220. Á síðasta ári voru
fæðingar 174.
Psoriasis-sjúklingar eiga kost á meðferð á
sjúkrahúsinu og eru þar ljós, böð og lampar.
Engin sérstök gjörgæsludeild er á sjúkrahúsinu,
en það mál er leyst með því að hafa veikustu
sjúklingana á stofum næst vaktstofum.
Alltaf er nokkuð um langlegusjúklinga inni á
almennum deildum þangað til þeir komast inn á
hjúkrunar- og endurhæfingardeild.
Á lyflækningadeild eru oftast Ianglegusjúklingar
í 5 til 10 rúmum af þeim 30 sem eru á deildinni.
Á lyflækningadeild er sinnt flestum
bráðatilfellum sem upp koma, þar á meðal í
barnasjúkdómum. Til Reykjavíkur eru eingöngu
sendir sjúklingar sem þarfnast mjög sérhæfðra