Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.1986, Qupperneq 16

Læknablaðið - 15.11.1986, Qupperneq 16
296 LÆKNABLAÐIÐ Grundartanga um læknisskoðanir á starfsfólki, einkum varðandi heyrnarpróf og blásturspróf. Eitt er það sem algjörlega vantar á sjúkrahúsið og það er geðlækningaþjónusta. Lögum samkvæmt eiga deildaskipt sjúkrahús að sinna geðlækningum þótt ekki þurfi endilega að vera um geðdeild að ræða. Margir sjúklingar eiga við geðræn vandamál að stríða og er reynt að sinna þeim eftir föngum á sjúkrahúsinu en mikið vantar á að það sé fullnægjandi. Einnig er alls ófullnægjandi að senda sjúklinga til geðlækna í Reykjavík, reynslan er sú að oft hefur lítið komið út úr því. Geðlækningaþjónusta er því efst á lista þess sem bæta þarf við þjónustu Sjúkrahúss Akraness. Fjárhagsstaða Sjúkrahúss Akraness og breyttur fjárhagsgrunnur Sjúkrahúsið er rekið á daggjaldakerfinu. Á síðustu árum hefur rekstrarhalli verið um 20%. Árið 1985 voru útgjöld 154 milljónir en tekjur 120 milljónir króna. Miðað við þá þjónustu sem veitt er á sjúkrahúsinu er rekstrarkostnaður einstaklega lágur. Borgarspítalinn hefur t.d. verið með nálega tvöfalt hærri daggjöld en Sjúkrahús Akraness. Dæmi um rekstrardaggjöld sjúkrahúsa utan Reykjavíkur eru: Sjúkrahús Keflavíkur kr. 4.509, Sjúkrahús ísafjarðar kr. 4.714 og Sjúkrahús Akraness 3.819. Þessar tölur eru frá júlí 1986. Nú er fyrirhuguð breyting á rekstri sjúkrahússins og er ætlað að setja það á föst fjárlög í stað daggjalda. Það er erfitt að segja nákvæmlega til um hverjar afleiðingarnar kunna að verða en greinilega voru læknar uggandi um framtíðina vegna þessa. Miðað við upplýsingar frá Reykjavík og Akureyri um reynsluna af því að setja sjúkrahúsin á föst fjárlög töldu þeir ekki ástæður til bjartsýni. Menn óttast að breytingar á rekstrarfyrirkomulagi verði notaðar til blindra sparnaðarráðstafana án nokkurs tillits til aðstæðna, stefnt sé á niðurskurð þótt opinbert markmið sé hagræðing með óbreyttri þjónustu. Stærsti kostnaðarliðurinn, eða um 70% af rekstrarkostnaði sjúkrahússins, eru laun og launatengd gjöld. Viðmælendur okkar bentu á að daggjöldin hafa verið það lág á Akranesi að ótrúlegt er að hægt sé að klípa þar af. Fyrir hendi eru kröfur um aukna þjónustu, þeim kröfum verður ekki mætt nema með auknum launakostnaði. Auk þess er hæpið að búast megi við að tæki sem sjúkrahúsið sárvantar núna fáist gefins. Það þýðir einnig aukin útgjöld. En því miður hættir mönnum oft til þess að líta á beinar prósentutölur þegar á að spara. Hafa ber í huga að Sjúkrahús Akraness þolir ekki að draga þjónustuna saman frá því sem er. Það felst enginn sparnaður í því að hætta að taka sjúklinga frá Reykjavík, það veldur aðeins tilfærslu i kostnaði, og margir leita til sjúkrahússins vegna þess að þeim stendur þjónustan alls ekki til boða annars staðar. Hlutfall sjúklinga hefur verið þannig að Akurnesingar hafa verið um 45% en sjúklingar annars staðar frá um 55%. Hvað gerist ef fjárframlög verða skorin niður? Trúlega verður þróunin sú, að fyrst í stað verður safnað skuldum. Þegar það gengur ekki lengur verður reynt að spara í launum og þá trúlega byrjað á ræstingakonum og gangastúlkum, eins og gert hefur verið annars staðar. Þriðja skrefið verður að minnka sérfræðiþjónustuna sem sjúkrahúsið býður upp á í dag. Það þýðir aukið álag á sjúkrahúsin í Reykjavík og er alls óvíst að þau verði tilbúin að mæta slíku. Þessar fyrirhuguðu breytingar áttu að ganga í garð um síðustu áramót, en vegna andstöðu var þeim frestað. Búist er við að þær verði um næstu áramót og er undirbúningur hafinn. Rekstarstjórn sjúkrahússins mun t.d. hafa verið gert að senda skýrslu um fjárhagsáætlun næsta árs vegna væntanlegra fjárlaga. Allt gæti þetta hugsanlega gengið ef til væri eitthvert gæðamat í heilbrigðisþjónustunni og samræming á starfi þar innan. Kerfið er ótrúlega laust í reipunum. Augljóslega þykir heilbrigðisþátturinn of stór og þess vegna er reynt að höggva í þann útgjaldalið. Hins vegar er spurningum um hvaða þjónustu samfélagið vill veita og hvernig látið ósvarað. Þess vegna er alls óljóst við hvað verður miðað þegar ákveðið fjármagn verður skammtað til hvers sjúkrahúss fyrir sig. Læknarnir voru sammála um að daggjaldakerfið væri gallað, en það hefði þó kosti sem taka bæri tillit til. Megingalli þess fælist í vanstjórn. Það vantaði stöðlun fyrir sjúkrahúsin og eftirlit með útgjöldum. Hvað veldur t.d. mismunandi daggjöldum sjúkrahúsanna? Er það einungis mismunandi þjónusta sem boðið er upp á eða eitthvað annað.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.