Læknablaðið - 15.11.1986, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ
301
enn í þessu sambandi athuguð stækkun
skjöldungs'í þungúðum skoskum konum og
íslenskum og stækkaði skjöldungur barnshafandi
skoskra kvenna sýnilega og áþreifanlega, en lítt
eða ekki í íslenskum konum. Jafnframt kom í
ljós, að ólífrænt joð i blóði íslenskra kvenna
reyndist all hátt en TSH (thyreotropic hormone) í
sermi að sama skapi lágt (16). Loks gerði Bjarni
Þjóðleifsson víðtæka rannsókn á tíðni
skjöldungseitrana (Graves’ disease) hér á landi og
reyndust íslendingar ekki frábrugðnir öðrum
þjóðum í því efni (17).
Nú er vitað um allmiklar lífsvenjubreytingar
íslendinga i mataræði og fleiru á síðustu 30-40
árum, sem nánar verður gerð grein fyrir hér á
þessum blöðum. Fróðlegt væri því að vita, hvort
slíkar breytingar endurspeglist í stærð
skjöldungs hér á landi svo að íslendingar verði
máske ekki lengur í sérflokki hvað slíkt snertir
eins og fram kom í meira en 40 ára gömlum
rannsóknum Júlíusar Sigurjónssonar í þeim
efnum eins og fyrr segir og enn er byggt á í
nútímaumfjöllum, svo sem við kennslu í þessum
fræðum við Háskóla íslands, samkvæmt
munnlegum upplýsingum kennarans í
lífefnafræði, Þorvaldar Veigars Guðmundssonar
dósents. Þessar upplýsingar dósentsins ásamt
áhuga hans á málinu hafa verið núverandi
höfundi drjúg uppörfun til nýrra
þyngdarmælinga á skjöldungum fullorðinna í
framhaldi af nýburarannsóknunum.
Ekkert í seinni tima rannsóknum, sem hér hefir
verið vitnað í, né heldur í rannsóknum núverandi
höfundar bendir þó til joðskorts í fæði
íslendinga, þvert á móti munu íslendingar enn
búa við joðríkan kost þrátt fyrir minnkandi
neyslu sjávarafurða, með stækkandi skjöldung.
Á hinn bóginn er vert að geta þess að viða þar sem
»einföld landlæg skjöldungsstækkun« var algeng
hefir verið beitt forvarnaraðgerðum svo sem
joðbættum matvælum, einkum matarsalti með
árangri.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Úr 462 nýburakrufningum á Rannsóknarstofu
Háskólans í meinafræði á árunum 1967-1976
voru valdir 292 einstaklingar af báðum kynjum til
þyngdarmælinga og annarra rannsókna á
skjöldungum og nýrnahettum. Hafði þá verið
sleppt úr úrtakinu öllum þeim efnivið, sem talinn
var ónothæfur vegna upplausnar (rotnunar),
bjúgs, áberandi blæðinga og vanskapnaðar.
Úrvalið og allflestar viktanir gerði núverandi
höfundur sjálfur í þessum yngstu aldursflokkum í
tengslum við víðtækar vefjameinafræðilegar
rannsóknir á burðarmálsdauða. (Þ.e. 0-7 daga
gamla nýbura, andvana og lifandi fædd.)
Þá voru í framhaldi af nýburarannsóknunum
viktaðir skjöldungar úr eldri börnum og
fullorðnu fólki.
Vegna erfiðleika á hreinsun er ekki hægt að taka
fullorðins nýrnahettur með hér.
Allir voru þessir skjöldungar viktaðir af
núverandi höfundi og öðrum starfsmönnum
stofnunarinnar á mjög nákvæma vikt eins og
nýburar (10 mg). Þegar úrtakið var gert var sleppt
öllum afbrigðilegum eða sjúklegum kirtlum, en
mest bar þar á góðkynja æxlum, en einnig sáust
einstaka illkynja æxli og víðtækar
bólgubreytingar svo sem »hashimoto« og
meinvörp. Sleppt var og fáeinum, skjöldungum,
sem viktuðu 40 g eða meira, þótt ekki sæjust á
þeim augljós merki sjúkdóma, í samræmi við þá
skoðun vísindamanna að við þau þyngdarmörk
lægju skilin á milli eðlilegra og sjúklegra kirtla
(18). í heild var reynt að haga þessu úrtaki þannig
að sem bestur samanburður fengist við fyrri
rannsóknir hér á landi.
Alls voru teknir með í úrtakið 1082 skjöldungar,
þar af eins og fyrr segir 292 úr nýburum og 790 úr
eldri börnum og fullorðnu fólki.
Til þess að meta hugsanleg áhrif ýmissa
umhverfisþátta á stærð skjöldungs voru
kannaðar fyrirliggjandi rannsóknir á mataræði
og neysluvenjum íslendinga frá því um 1938-40
og til síðustu ára. Ekki reyndist unnt að fá tölur
um líkamsþyngd fullorðinna við krufningu, þar
eð slíkt er ekki skráð hér, en talið er að ákveðið
hlutfall sé á milli skjöldungsþyngdar og
líkamsþyngdar við tiltekin sambærileg skilyrði.
Til þess að fá samt hugmynd um breytingar á hæð
og þyngd íslendinga eru fyrirliggjandi rannsóknir
birtar til viðmiðunar. Loks voru viktaðar 334
nýrnahettur samhliða skjöldungsviktunum
nýfæddra barna.
NIÐURSTÖÐUR
Nýburar. Meðalþyngd skjöldunga 292 nýfæddra
barna í 500-4000 gramma þyngdarflokknum
reyndist vera 0,98 g. Meðaltöl í léttasta flokki
voru 0,4 g, en í þyngsta flokki 1,42 g, en
staðal-dreifing (st. dev.) var aðeins 0,26-0,47
samanber fyrstu töflu. Meðalþyngd skjöldungs
fyrirburða reyndist 0,69 g og fullburða barna
(>2500 g) 1,25 g. Þyngstu kirtlar sem tiltækir
voru í úrtakið voru 3 g.