Læknablaðið - 15.11.1986, Side 39
LÆKNABLAÐIÐ 1986; 72: 307-12
307
Guðmundur J. Guðjónsson
ÁRANGUR SKURÐAÐGERÐA Á MEÐFÆDDUM
HOLFÆTI (PES VARO-EXCAVATUS CONGENITUS)
1972-1981
EFNISÁGRIP
Athugaður var árangur skurðaðgerða á 211
fótum 106 einstaklinga með meðfædda
holfótarskekkju (pes varo-excavatus congenitus
idiopathicus). Rannsóknin spannar tímabilið
1972-1981. Áttatíu og fimm sjúklingar (80,2%)
voru á vaxtarskeiði og tuttugu og einn var
fullvaxinn (19,8%) er aðgerð var gerð.
Skurðaðgerð þessi er eingöngu gerð á
mjúkvefjum fótar og hafði því ekki neikvæð áhrif
á vöxt fótarbeina. Meðaltímalengd frá aðgerð til
eftirrannsóknar var 3 Vi ár. Sjúkdómseinkenni
minnkuðu verulega í 96% tilfella.
INNGANGUR
Formgallar og skekkjur með afbrigðilegri
innbyrðis afstöðu beina eru aigengari í fæti en
nokkrum öðrum líkamshluta (1).
Holfótur (pes varo-excavatus congenitus
idiopathicus), með varusskekkju á hælbeini og
excavatus-skekkju á langbogum, er tiltölulega
algengur formgalli fótar (Mynd 1). Hann hefur í
för með sér óeðlilega mikið álag á óeðlilega lítinn
flöt iljar (táberg og hæl). Einkenni eru oft væg í
bernsku, en á unglings- og fullorðinsárum koma
oftast til vaxandi einkenni í formi þreytu- og
álagsverkja. Skekkjur valda oft slitgigt (artrosis
deformans) í smáliðum fótar vegna misgengis
fótarbeina. Afleiðingin er skert starfshæfni.
Hér er um að ræða meðfæddan formgalla sem oft
er ættgengur. Frumorsök hans er ókunn (2).
Skekkjurnar eru ekki áberandi við fæðingu, en
koma í ljós við fjögurra til sjö ára aldur og
ágerast með aldrinum.
Hefðbundin meðferð holfótar felst í notkun
innleggja, sérsmíðaðs skófatnaðar og annars
umbúnaðar til lagfæringar. Slík meðferð dregur
oftast úr einkennum sjúklings, en innleggin
viðhalda skekkjum fótarins með þvi að styðja
undir íhvolfu ilina (3).
Frá Bæklunarskurðdeild Landspítalans. Barst 07/03/1985.
Samþykkt í endanlegu formi 14/08/1986.
Það er almenn skoðun bæklunarskurðlækna að
sneiða beri hjá aðgerðum á beinum hins vaxandi
fótar þar sem slíkt geti valdið truflunum á vexti
þeirra. Skurðaðgerðir á mjúkvefjum fótar koma
því oftast eingöngu til greina. Steindler (4, 5)
hefur lýst mjúkvefjaaðgerð til réttingar á holfæti.
Slík aðgerð hefur ekki neikvæð áhrif á beinvöxt.
EFNIVIÐUR RANNSÓKNAR
Á bæklunarskurðdeild Landspítalans og á St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði voru áratuginn
1972-1981 gerðar aðgerðir a.m. Steindler á 393
fótum er hlotið höfðu sjúkdómsgreininguna pes
Fig. 1. Pes varo-excavatus congenitus idiopathicus.